Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Page 55
Nútíminn og hefðir í hnattvœddum heimi
inga sé misjöfn efitir árstíðum og vegna annarra ástæðna má segja að
WoDaaBe flytji búferlum að meðaltali á þriggja daga fresti. Öllum eigum
heimilisins er þá pakkað saman og þær fluttar á nýjan stað með hjálp asna
sem eru notaðir sem burðardýr. Húsdýr WoDaaBe eru aðallega kýr en
kúahjörðin er ekki eingöngu mikilvæg fyrir afkomu hirðingjanna heldur
byggja WoDaaBe sjálfsmynd sína sterklega á tengslum sínum við þær og á
hreyfanlegum lífsstíl en slík samsömun er ekki óalgeng meðal hirðingjahó-
pa. Skepnur eru í mörgum hirðingjasamfélögum þáttur í að endurskapa
félagslegt kerfi vegna þess hve mikilvægar þær eru sem myndlíkingar og
vegna þess hlutverks sem þær gegna í athöfnum sem marka fæðingu, í
aldurs- og stöðutengdum innvígslum sem og dauða einstaklinga. Hagrænt
mikilvægi nytjadýra er þannig samofið gildi þeirra sem uppsprettu marg-
breytilegra tákna og myndlíkinga. WoDaaBe leggja megináherslu á kýr af
hinu svokallaða Zebu Bororo kyni sem taldar eru vel aðlagaðar aðstæðum á
Sahel svæðinu. Sögur WoDaaBe um uppruna sinn leggja áherslu á að þessi
ákveðni kúastofn og þeir sem sérstakur hópur hafi orðið til á sama tíma. í
mörgum slíkum sögum er litið á WoDaaBe, kýr og hjarðmennsku (þá
sérstaklega hreyfanleika) sem samofna heild.8
Sjálfsmynd þeirra sem WoDaaBe byggist því að miklu leyti á táknum sem
tengjast hjarðmennsku og hreyfanleika hirðingjalífsins. Slík tákn eru oflt
samofin öðrum siðferðislegum hugmyndum. Mbodagansi er eitt það sem
einstaklingar nefna oftast sem lykilþátt í sjálfsmynd sinni sem WoDaaBe en
hugtakið dregur saman önnur hugtök sem vísa til þolinmæði, þolgæðis,
afneitunar efnislegra gæða og virðingar fyrir öðrum. Hugtakið mbodagansi
er sérlega mikilvægt vegna þess að WoDaaBe nota það til að aðgreina sig frá
öðrum hópum, þar á meðal frá Fulani fólkinu. Fulani útskýra sjálfsmynd
sína út frá hugmyndinni um pulaaku sem eins og mbodagansi hjá WoDaaBe,
vísar í siðferðisgildi sem aðgreinir Fulani frá öðrum.9 Sá sem ekki hefur
þolinmæði getur ekki séð um skepnur, leggja WoDaaBe áherslu á í sam-
ræðum við mig, og undirstrika þannig að sjálfsmynd og efnahagslegir þættir
eru samofin ferli í lífi þeirra.
Umhverji og aðlögun
Kýrnar gera WoDaaBe kleifit að framfleyta sér á hinu þurra Sahel svæði sem
þekur stóran hluta Níger. Hugtakið Sahel kemur úr arabísku og má þýða sem
strönd eða jaðar og vísar til jaðars Sahara eyðimerkurinnar. Sahel svæðið
8 Adebayo 1991.
9 Stenning 1959: 55.
53