Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Blaðsíða 155
Andmœli við doktorsvörn Sigurjóns Árna Eyjólfssonar
síst 20. aldar guðfræði. Oft rekur Sigurjón Árni einstaka sprota allt aftur til
rita Biblíunnar, til grískrar heimspeki og til feðra guðfræðinnar. Fjöldi
ritaumsagna og endursagnir auka gildi ritsins í höndum þeirra sem leita
skjótfengins en ítarlegs yfirlits. En þarna er líka kominn vettvangur til skoð-
unar fyrir alla sem hafa löngun til að íhuga hina guðfræðilegu túlkun og við-
fangsefni í þýsku samhengi. Það er allt mikill bónus og til að gleðja hvern
sem rennur skeiðið til enda.
Athygli vekja hinir mörgu útúrdúrarar (excursus). Þessir eru hliðarhopp,
sérleiðir sem eru eins og kenningarsögulegar skýringar, trúarheimspekilegar
æfingar eða yfirlit, hugmyndasögubrot og annað sögulegt uppfýllingarefni.
Ekki er alveg ljóst hvernig á að túlka þessa skilningsauka. Af hverju er Sig-
urjóni Árna svo mikilvægt að birta allt þetta efni? Er lesandanum ekki
treystandi til handbókarkunnáttu? Er það kennarinn sem vill létta nemanda
lífið? Varla eru þetta námsnótur sem fá að fljóta með? Ekki er ljóst af hverju
allt þetta efni fýlgir, því stundum flækir það og jafnvel skyggir á viðfangs-
efnin. Er ekki einfaldara að sækja þetta efni á Netinu?
Leiðarval, markmið og afmörkun
Þegar kraftmikill höfundur er undir áratug að skrifa bók, fjöldi fólks hefur
lagt á sig mikla vinnu við að koma henni á prent, fólk úti í bæ gerir lestrar-
atlögu að þessum þéttrituðu 559 blaðsíðum flókinnar guðfræði um Martein
Lúther og höfundur vill að hún sé vegin sem doktorsritgerð er eðlilegt að
spurt sé: Hver er tilgangur þessarar bókar? Hvað er þarft og hvað er óþarft?
Þegar hefur margt verið sagt um gæði og gildi verksins. Markmið, sem höf-
undur sjálfur setur, eru í samhengi dagsins þó aðalatriði og til skoðunar. Þau
eiga að móta byggingarlag eða leið sem fara skal. Þegar rýnt er eftir gæðum
og göllum er ástæða til að skoða aðferð Sigurjóns Árna, sem er jafnframt
lýsing hans á burðarvirki bókarinnar. Ég hef brotið niður setningar firá Sig-
urjóni Árna, „hans eigin orðum,“ úr inngangi og formála til að greina við-
fangið:
Sigurjón Arni vill:
1. Leitast við að setja guðfræði Lúthers fram á samstæðilegan hátt (bls.
21);
2. Með hliðsjón af túlkun Lúthers á Jóhannesarguðspjalli frá árunum
1535-1540 (bls. 21);
3. Vill kynna Lúther með „hans eigin orðum“ (bls. 23);
4. Leitast við „að velja og greina kjarnatexta þar sem Lúther fjallar ítarlega
um tiltekin stef innan guðfræðinnar“ (bls. 23)“;
153