Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Blaðsíða 126
Gunnlaugur A. Jónsson
flétta fær þó óvæntar og afdrifaríkar afleiðingar þar sem hin nýja eiginkona
flyst fyrirvaralaust úr landi, og skilur Kolya fimm ára son sinn eftir og kem-
ur í hlut Louka að annast.
Louka neyðist til að taka drenginn með sér í vinnuna og þannig kynnist
Kolya Sálmi 23 sem stöðugt er verið að syngja við jarðarfarir. Tómstunda-
iðja hans verður smám saman helst sú að teikna líkkistur og jafnvel að svið-
setja jarðarfarir.
Sálmur 23 myndar umgjörð um myndina og lokaatriðið er áhrifaríkt þeg-
ar Louka skilar drengnum til móður sinnar og Kolya heldur í flugvél með
henni út í óvissuna heim til Rússlands og hefúr þá yfir Sálm 23, sem er hið
fyrsta sem hann hafði lært í tékknesku, og má í því atriði merkja hið hugg-
unarríka eðli sálmsins. Notkun Sálms 23 í niðurlagi myndarinnar fær áhorf-
endur til að trúa því að allt muni fara vel „því að þú ert hjá mér.“ í myndinni
sjáum við því annars vegar það einkenni Sálms 23 að hann er mikið notað-
ur við útfarir og í návist dauðans en hins vegar líka að hann tjáir vernd og
handleiðslu.
Sunnudagsenglar
Ekki síður athyglisverða notkun á Sálmi 23 er að finna í norsku kvikmynd-
inni Sunnudagsenglum og svo skemmtilega vill til að þessi mynd keppti við
Kolya um óskarsverðlaunin sem besta útlenda kvikmyndin 1996.
Myndin Qallar um Maríu, norska prestsdóttur á táningsaldri, og uppreisn
hennar gegn hinum stranga föður sínum og þeirri kristnu trú sem hann boð-
ar.
Jóhannes faðir Maríu sýnir lítinn skilning á því uppgjöri sem dóttir hans
á í og vandamálum táningsáranna. María hugsar til þess að þegar hún fermist
hefur hún setið 640 tíma í kirkjunni og hana langar meira á veitingahús bæj-
arins og getur ekki skilið að það sé synd að drekka kók eða bera eyrnalokka.
Smám saman byrjar María að uppgötva sinn eigin styrk.
Gegn hinni ströngu guðsmynd kirkjunnar og foður síns teflir María
annarri guðsmynd sem hún finnur t.d. í Ljóðaljóðunum og Sálmi 23 og teng-
ir við ástir og fegurð sköpunarverksins. „Ég á mér stað út af fyrir mig inni í
skóginum,“ segir María og þann stað tengir hún við Sálm 23. Þá spyr hún
vinkonu sína, Tunheim kirkjuvörð, hvort Salómon konungur hafi verið guð-
leysingi þar sem hann tali í Ljóðaljóðunum um konur, kossa og vín. „Furðu-
legt að þetta skuli vera í Biblíunni,“ segir hún.
Segja má að María tefli fram fagnaðarerindi ritningarinnar gegn einhliða
lögmálstúlkun föður síns og það fagnaðarerindi finnur hún ekki síst í Sálmi
23, sem hún tengir við fegurð sköpunarverksins.
124