Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Síða 166
Gunnlaugur A. Jónsson
Delitzch (1813-1890), að tvö megin áhugamál hans hafi verið annars vegar
að kynna kristindóminn fyrir gyðingum og hins vegar að kynna kristnum
mönnum Gamla testamentið og gyðingdóm. Sem ungur maður var Bo John-
son meðal annars um skeið við nám í Jerúsalem og er ekki ótrúlegt að þar
hafi áhugi hans á gyðingdómi vaknað fyrir alvöru. Hann hefur um árabil ver-
ið einn af forystumönnunum í „Lutherische Europáische Komission fiir
Kirche und Judentum." Það er því með tilhlökkun sem maður sest niður og
les bók sem hann hefur skrifað um tengsl kristindóms og gyðingdóms.
Annars hefur fræðasvið dr. Bo Johnsons verið mjög víðfeðmt. Þannig
fjallaði doktorsritgerð hans frá árinu 1963 um textafræðileg vandamál í 1.
Samúelsbók og í öðru verki frá 1968 hélt hann áfram á sömu braut. Þessi
verk, sem reyndu á mjög víðtæka kunnáttu á sviði forntungumála auk mik-
illar nákvæmni yfirleitt, skipuðu Johnson í hóp helstu sérfræðinga á sviði
textafræðinnar. Hann er ekki síst málvísindamaður sem býr yfir mjög yfir-
gripsmikilli þekkingu á tungumálum, fornum og nýjum
Hér er ekki ætlunin að gera úttekt á Bo Johnson sem fræðimanni, en eina
af kennslubókum hans, Ursprungeí (1992), sem er stutt en læsilegt skýringa-
rit við 1. Mósebók, notaði ég um skeið sem kennslubók hér við guðfræði-
deildina. Sú bók lýsir vel þeirri viðleitni höfundarins að skrifa ekki aðeins
fyrir aðra fræðimenn heldur einnig fyrir breiðari lesendahóp. Loks skal get-
ið gagnmerks rits hans um réttlætishugtakið í Biblíunni (Ráttfárdigheten i
Bibeln, 1985), sem ég hef ritdæmt í öðru samhengi. Þar lét gamlatestament-
isfræðingurinn Bo Johnson sig ekki muna um að draga línurnar yfir til Nýja
testamentisins og sýna á sannfærandi hátt fram á að mun minni munur er á
réttlætishugtökunum í Gamla og Nýja testamentinu en yfirleitt hefur verið
haldið fram.
Bo Johnson var einstakur kennari, hafsjór af fróðleik og flutti efni sitt
þannig að engum gat dulist að þarna var hann að tala um það sem átti hug
hans og hjarta. Það var eiginlega sama hvar borið var niður alltaf virtist þetta
ljúfmenni hafa ítarleg svör á reiðum höndum, svör sem greindu kjarnann frá
hisminu. Var því mjög að vonum þegar Lundarháskóli heiðraði hann á sín-
um tíma fyrir einstaklega góða kennslu. Sjálfur var ég svo lánssamur á Lund-
arárum mínum að dr. Bo Johnson var annar af leiðbeinendum mínum er ég
vann að doktorsritgerð minni.
En snúum okkur þá að bók Bo Johnsons um gyðingdóminn af kristnum
sjónarhóli. Titillinn er að vissu leyti lýsandi íyrir höfundinn og heiðarleg
vinnubrögð hans. Hann vill vissulega stefna að því að vera eins málefnaleg-
ur og hlutlaus og honum er unnt. En samtímis gerir hann sér grein fyrir að
hið kristna sjónarhorn hans geti auðveldlega stýrt framsetningu hans þegar
164