Morgunblaðið - 02.07.2015, Side 2

Morgunblaðið - 02.07.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 SÓLARHRINGUR SUMARFERÐA 2.-3. JÚLÍ Hefst á hádegi í dag 2. júlí Betri verð í sólina SUMARFERDIR.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Fáir mótmælendur voru mættir á Austurvöll við upphaf eldhúsdagsumræðna á Alþingi í gær- kvöldi. Umræður hófust um klukkan 19:50. Að sögn sjónvarvotta voru þá um 100 manns á Austurvelli, þar af um 10 mótmælendur og um 90 erlendir ferðamenn. Fjögur settust undir styttu Jóns Sigurðssonar og börðu á trommur og blésu í lúður. Um 400 manns höfðu boðað komu sína á mótmælin á Facebook. »6 Barið og blásið undir styttu Jóns Morgunblaðið/Golli Fáir mótmælendur á Austurvelli við upphaf eldhúsdagsumræðna „Þetta er búið að vera nokkuð rólegt í [gær]kvöld og engin merki eru um eldhræringar,“ segir Hildur María Friðriksdóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um jarð- skjálftahrinu á Reykjanesskaga sem hófst um klukkan 21 á þriðjudag og skiptu skjálftarnir sem mældust hundruðum. Stærsti skjálftinn mæld- ist 5 að stærð aðfaranótt miðviku- dags. Hildur segir að skjálftahrina sem þessi sé eitthvað sem gerist reglu- lega. „Gliðnunarhrina á sér stað reglulega vegna spennulosunar í jarðskorpunni,“ segir hún. Ólíklegt að það fari að gjósa Aðspurð hvort útiloka megi eldgos segir Hildur aldrei hægt að útiloka neitt slíkt. Svæðið sé eldvirkt sögu- lega séð „en við erum farin að anda nokkuð rólega. Þetta virðist vera að róast,“ segir hún en bætir við að áfram verði fylgst með gangi mála. Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi var litakóði fyrir flug enn gulur fyrir eldstöðina Eldey sem er 15 km norðaustur af Geirfuglaskeri en Veðurstofa Íslands ákvað í sam- ráði við vísindamenn og Almanna- varnir að breyta litakóðanum úr grænum í gulan í gær. Kristín Jónsdóttir, fagstjóri jarð- skjálftavár hjá Veðurstofu Íslands, sagði í samtali við mbl.is í gær að ekki væri óvanalegt að sjá svona hrinur á rekbeltinu. „Það sem við höfum séð síðustu ár er að þá kemur svona virkni og svo deyr hún bara út.“ 5 á Richter á Reykjanesskaga  Skjálftahrinan hófst á þriðjudagskvöld  Svæðið er eldvirkt sögulega séð  Engin merki um eldhræringar og dró úr skjálftum í gærkvöldi Reykjaneshryggur Jarðskjálftahrina hófst á þriðjudagskvöld Geirfugladrangur Krýsuvík Gerðardómur hefur boðað deiluaðila til fundar í kjaradeilu BHM og ríkis- ins á morgun, að sögn Garðars Garðarssonar hæstaréttarlögmanns, sem var í gær skipaður formaður gerðardóms. Auk hans taka þau Ásta Dís Óladóttir, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Fríhafnarinnar, og Stefán Svavarsson endurskoðandi sæti í dómnum. Hæstiréttur tilnefndi þau þrjú í gærmorgun og gekk at- vinnuvegaráðuneytið í kjölfarið frá skipun dómsins. Hlutverk gerðardóms er að ákveða kaup og kjör félagsmanna BHM, m.a. Dýralæknafélags Íslands, Fé- lags geislafræðinga og Ljósmæðra- félags Íslands, en kveðið var á um skipun dómsins í lögum sem sett voru á verkfall BHM hinn 13. júní sl. Garðar segir að á fundinum á föstudag verði lagðar fram gerðar- reglur sem dómurinn er búinn að búa til. „Þetta verður fyrsti snertiflötur aðila og dómsins. Við ræðum um framhaldið. Það eru ýmis formsatriði sem þarf að fara yfir og útskýra,“ segir Garðar. Spurður hvort stefna BHM á hendur íslenska ríkinu vegna laga- setningar á verkfallið muni hafa áhrif á störf gerðardóms segir Garðar svo ekki vera á meðan lögunum eða til- nefningunum hafi ekki verið hnekkt. „Við höfum ekki annan kost en að halda áfram. Við eigum eftir að ræða það við aðila málsins. Gerðardómur vill ekki deila við neinn, það eru að- ilarnir sem bera ábyrgð á þessari deilu,“ segir Garðar, en gerðardómi er gert að úrskurða í málinu eigi síð- ar en 15. ágúst nk. Gerðardómur boðar deilu- aðila til fundar á morgun Morgunblaðið/Styrmir Kári Kjaradeila Gerðardómi er ætlað að kveða upp úrskurð fyrir 15. ágúst.  Búið að ganga frá skipun dómsins Kjarasamningur milli Félags leið- sögumanna og Samtaka atvinnu- lífsins var und- irritaður hjá rík- issáttasemjara í gærkvöldi. Gildir hann til 31. des- ember árið 2018. Snorri Ingason, formaður samn- inganefndar félagsins, segir að samningurinn verði kynntur fé- lagsmönnum, sem eru um 900 tals- ins, á sunnudagskvöld. Í kjölfarið fari fram rafræn kosning um samn- inginn og er því gert ráð fyrir að nið- urstaða úr kosningunni liggi fyrir um miðjan mánuð. Hann segir niðurstöðuna vera í þá átt sem lagt var upp með í kjara- viðræðunum. „Taxtabreytingarnar eru í þessu mynstri sem var sett upp í samning- unum í maí. Það eru sérkröfur sem við vorum að ræða miklu frekar,“ segir Snorri og bætir við að heil- miklar breytingar hafi þurft til og því hafi margt þurft að leiðrétta í samningnum. „Við komumst á veg með hluta þess en ekki allt saman. Það er fleira sem þarf að ræða í samvinnu seinna meir, en eins og staðan er núna get- um við verið nokkuð sátt með þær breytingar sem náðust,“ segir Snorri sem mun hvetja félagsmenn til þess að samþykkja samninginn. Samið hjá leiðsögu- mönnum Samningur Kosið verður rafrænt.  Sérkröfurnar að- allega til umræðu Tíu ára gömul stúlka féll í sjóinn við Krossanes í fyrrakvöld. Lögreglan á Akureyri var kölluð út ásamt sjúkra- liði til að bjarga stúlkunni. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu var stúlkan að leik með yngri vinkonu sinni þegar hún féll í sjóinn. Vinkonan hljóp heim til foreldra sinna til að láta vita hvað hafði gerst en í millitíðinni sáu íbúar á svæðinu stúlkuna í sjónum og komu henni til aðstoðar. Lögregla kom á svæðið ásamt sjúkrabíl og var stúlkan flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynn- ingar. Stúlkan var köld og með blóð- nasir en að sögn lögreglu er mikil mildi að sjórinn hafi verið stilltur. Ung stúlka féll í sjóinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.