Morgunblaðið - 02.07.2015, Blaðsíða 10
… er Ásdís að ljúka
við gerð Veðra-
brigða, 80 mínútna heimildamyndar
um Flateyri í Önundarfirði, sem er
samframleiðsla þriggja landa, Ís-
lands, Þýskalands og Póllands, og
fjallar um daglegt líf nokkurra
þorpsbúa árið 2014, kvótakerfið og
fleira sem snertir líf þeirra. Lit-
greiningu myndarinnar verður lokið
norður á Raufarhöfn þar sem Ásdís
og maður hennar, Pétur Magn-
ússon, reka lítið fyrirtæki, Arctic
Angling, og taka á móti og leiðsegja
stangveiðimönnum í veiðiferðum um
Melrakkasléttu og Langanes.
„Auk kvikmyndagerðar hef ég
starfað við ferðaþjónustu í tuttugu
ár, datt inn í þetta af því ég tala
mörg tungumál og hef flest sumur
farið í tvær tíu til ellefu daga ferðir
með Ferðaskrifstofu Harðar Erl-
ingssonar, gengið á fjöll og borðað
þríréttað á kvöldin. Algjör mun-
aður.“
Smálubbinn frændi kúalubbans
Á Melrakkasléttu ætlar Ásdís líka
að tína smálubba, sem er sveppur og
frændi kúalubbans, þurrka hann og
markaðssetja sem hráefni í súpur,
sósur, risotto og fleiri rétti. „Við
vonumst til að koma afurðinni á
markað í haust, en fyrst er að fá
vottun hjá Matís, hanna umbúðir og
þvíumlíkt. Fyrst um sinn erum við
með starfsstöð fyrir sveppa-
framleiðsluna í eldhúsinu í grunn-
skólanum á Raufarhöfn, en síðan er
meiningin að flytja hana í hús sem
við erum að gera upp í bænum.“
Frá því Ásdís lék í Skilaboðum til
Söndru hefur hún ekki verið laun-
þegi hjá öðrum, nema á árunum
2004-2006 þegar hún var safnstjóri í
minjasafninu á Hnjóti í Örlygshöfn
og síðan einn vetur skólastjóri Kvik-
myndaskóla Íslands. Eftir mennta-
skóla var hún skrifta hjá RÚV í eitt
og hálft ár og starfaði um þriggja
vikna skeið í Ljóðhúsum, bóka-
forlagi Sigfúsar Daðasonar, sem rit-
ari Málfríðar Einarsdóttur rithöf-
undar. „Mér fannst það mjög
skemmtilegt starf, þótt skammvinnt
væri, því í ljós kom að útgefandinn
hafði ekki efni á launuðum starfs-
manni. Ég hef líka haft mikla
ánægju af að lesa fyrir Hljóð-
bókasafn Íslands eins og ég hef gert
í mörg ár. Sérstaklega vegna þess
að þá les ég bækur sem ég hefði
kannski ekki annars lesið og svo
finnst mér skemmtilegt að lesa upp-
hátt.“
Ætlaði alltaf
að gera kvikmyndir
Ásdís ætlaði aldrei að verða leik-
ari. Hún ætlaði að gera kvikmyndir.
Þegar framleiðandinn, Guðný Hall-
dórsdóttir, frænka hennar, bað hana
að leika annað aðalhlutverkið í
Skilaboðum til Söndru á móti Bessa
Bjarnasyni sló hún til af þeirri ein-
földu ástæðu að hún hafði svo mik-
inn áhuga á kvikmyndum. „Ég hafði
verið í árs námi í leikhúsfræðum við
Háskólann í Gautaborg, þar sem ég
skrifaði leikrit og leikstýrði. Þegar
mér bauðst hlutverk Söndru hikaði
ég ekki, tók hlutverkinu og það varð
góður skóli.“
Á meðan á upptökum mynd-
arinnar stóð fékk Ásdís bréf um að
hún hefði komist inn í Þýsku kvik-
mynda- og sjónvarpsakademíuna í
Berlín (dffb). Veturinn áður hafði
hún þreytt inntökuprófið og stundað
nám í heimspeki við Die Freie Uni-
versität á meðan. „Ég hafði gott af
að kynnast annarri hugsun en ég var
vön í heimspekinni. Áherslan var á
málheimspeki, sem fjallar um
tungumál og samband þess við
heiminn og mannlega hugsun.
Kennari minn var stjörnuprófessor,
Ernst Tugendhat að nafni. Að vísu
vissi ég ekki þá hversu merkilegur
hann var, en eitt sinn vatt sér að
mér maður á bar hérna heima og
sagði að ég væri ábyggilega eini Ís-
lendingurinn sem hefði lært hjá Tu-
gendhat. Mér hefur alltaf þótt svo-
lítið fyndið að frægur
heimspekingur hafi spanderað visku
sinni á mig.“
Ingaló og Draumadísir
Ásdís útskrifaðist frá Kvikmynda-
og sjónvarpsakademíunni árið 1989.
Þar hafði hún kynnst Martin Schlüt-
er og eignast með honum dótturina
Gunni, sem fæddist 1988. Fjöl-
skyldan fluttist til Íslands tveimur
mánuðum áður en múrinn féll. Ásdís
og Martin stofnuðu framleiðslufyr-
irtækið Gjólu ehf. og framleiddu
m.a. Inguló 1992, sem fór á kvik-
myndahátíðir út um allan heim, og
Draumadísir fjórum árum síðar. Ás-
dís skrifaði handrit og leikstýrði
báðum. Þau Martin skildu í millitíð-
inni, en eru góðir vinir. Hann bjó
lengi á Íslandi eftir skilnaðinn en
býr núna í Berlín og er ráðgjafi hjá
Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Fram til þessa dags hefur Ásdís
komið víða við í kvikmyndagerð, ým-
1983
NÚNA
Geri bara það sem mér
finnst skemmtilegt
Ásdís Thoroddsen var 24 ára þegar hún lék sitt fyrsta og eina aðal-
hlutverk í kvikmynd árið 1983. Skilaboð til Söndru í leikstjórn Krist-
ínar Pálsdóttur var nýverið endursýnd á RÚV. En hvar er Ásdís nú,
rúmum þrjátíu árum eftir að hún lék Söndru, ungu ráðskonuna sem
Jónas, miðaldra rithöfundur, réð til að sjá um sig á meðan hann
skrifaði kvikmyndahandrit um Snorra Sturluson? Og hvað hefur á
daga hennar drifið síðan?
Persónur og leikendur Ásdís, Bessi Bjarnason og Ásgeir Sigurvinsson.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Glæsileg garðhúsgögn á frábæru verði!
Kauptúni 3, 210 Garðabær | s. 771 3800 | www.signature.is
Opið: Mán–fös kl. 12–18, lau. 12–16
Duo Harpverk heldur tónleika í Bóka-
kaffinu á Selfossi í kvöld kl. 20.30.
Dúettinn, sem stofnaður var árið
2007, er skipaður hinni bandarísku
Katie Buckley hörpuleikara og Hol-
lendingnum Frank Aarnink slagverks-
leikara.
Markmið dúettsins hefur frá upp-
hafi verið að panta og flytja tónlist
fyrir hörpu og slagverk og hafa þau
pantað mörg slík verk eftir tónskáld
frá Íslandi, Danmörku, Bandaríkj-
unum og víðar að.
Buckley og Aarnink eiga langan
tónlistarferil að baki. Þau hafa spilað
með mörgum erlendum sinfón-
íuhljómsveitum og leikið með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands í mörg ár. Dúett-
inn hefur einkum getið sér gott orð
fyrir flutning á nýrri tónlist.
Þótt þau hafi flutt verk reyndra
tónskálda hefur dúettinn lagt áherslu
á að leika tónlist ungra íslenskra tón-
skálda.
Á tónleikunum í Bókakaffi á Sel-
fossi í kvöld frumflytja þau verk eftir
Ruud Wiener, Áka Ásgeirsson, Guð-
mund Stein Gunnarsson og Jeffrey
Mumford. Auk leika þau verkið Á
himni og jörðu frá 2011 sem er svíta
úr ballettinum Englajólum eftir Elínu
Gunnlaugsdóttur.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill meðan hús-
rúm leyfir.
Vefsíðan www.facebook.com/sunnlenska.bokakaffid
Duo Harpwerk Dúettinn Frank Aarnink og Katie Buckley.
Harpa og slagverk í Bókakaffinu
Norræna húsið í Vatnsmýrinni var
fullbyggt árið 1968 og opnað al-
menningi það ár. Æ síðan hefur
það þótt ein af perlum borgarinnar.
Finninn Alvar Aalto (1898-1976) er
arkitekt þessa stílhreina og klass-
íska húss, en það er eitt sárafárra
húsa eftir hann utan Finnlands.
Alvar Aalto, sem þykir einn af
merkustu arkitektum síðustu aldar,
hannaði ekki aðeins byggingar
heldur einnig flest sem húsum og
híbýlum tilheyrir, eins innréttingar,
húsgögn og lampa, gler- og skraut-
muni.
Núna og allt til ágústloka stend-
ur yfir sýning á hönnun Aalto í
Norræna húsinu, þar sem gestum
gefst tækifæri til að setja hana í
samhengi við önnur verk hans og
valin verk í eigu hússins eftir aðra
norræna listamenn.
Húsið er eitt af síðustu verkum
Aalto og þykir meistaraverk í sjálfu
sér og sköpun þess eitt fegursta
sameiningartákn norræns sam-
starfs og menningar. Á sýningunni
gefst einstakt tækifæri til að fá til-
finningu fyrir sögu Norræna húsins
að sögn sýningarhaldara.
Endilega …
… fáið tilfinn-
ingu fyrir sögu
hússins
Morgunblaðið/Sverrir
Byggingarlist Norræna húsið eftir
Alvar Aalto.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
„Óður til glysgjarnra en hirðuleysis-
lega klæddra hippa á sjöunda ára-
tugnum“ sögðu margir tískurýnar
þegar Saint Laurent Paris-tískuhúsið
kynnti vor- og sumartísku herra árið
2016 í París á sunnudaginn. Ef rétt er
væri það ekki í fyrsta skipti sem
tískufrömuðir heimsins sæktu inn-
blástur sinn til hippanna og þess
tímabils sem var þeirra blómaskeið.
Rifnar gallabuxur, prjónahúfur,
ógreitt hár, blússujakkar, hermanna-
jakkar, ponsjó og upplitaðir bolir ein-
kenndu flíkur fyrirsætnanna, sem
margar líktust stelpum. Hedi Slim-
ane, hönnuður og listrænn stjórnandi
fyrirtækisins, mun hafa leitast við að
kalla fram áhrif Woodstock-
tónlistarhátíðinnar 1969. Tiltækið
átti að ögra – sem það og gerði að
sögn eins tískurýnisins sem varð litið
á verðmiðann.
Herratískan frá Saint Laurent vorið og sumarið 2016
AFP
Óður til hippa –
aftur og aftur