Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 18

Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 18
Brynja Dögg Guðmundsdóttir Briem brynjadogg@mbl.is „Horfur sjúklinga sem gangast und- ir skurðaðgerð vegna lungnakrabba- meins á Íslandi hafa batnað.“ Þetta er fyrirsögn BS-lokarit- gerðar Hannesar Halldórssonar við læknadeild Háskóla Íslands. Hannes hlaut verðlaun á rannsóknar- ráðstefnu þriðja árs læknanema í maímánuði síðastliðnum fyrir BA- verkefni sitt, en rannsóknina vann hann undir hand- leiðslu Tómasar Guðbjartssonar prófessors. Hannes segir horfur þessa sjúklingahóps sem rannsóknin tók til hafa batn- að á síðustu tíu árum, en til stendur að yfirfara betur niðurstöð- urnar í sumar og birta í erlendu vís- indatímariti. „Þetta eru ánægju- legar fréttir í baráttunni við lungnakrabbamein, sem er annað al- gengasta krabbameinið hjá báðum kynjum hér á landi,“ segir Hannes. Tæplega 700 aðgerðir Rannsóknin var framkvæmd með þeim hætti að upplýsingum var safn- að úr sjúkraskrám og krabbameins- skrá Krabbameinsfélags Íslands auk dánarmeinaskrár Landlæknisemb- ættisins. Um var að ræða umfangs- mikla rannsókn sem náði til áranna 1991-2014, en á tímabilinu voru framkvæmdar 693 aðgerðir á 655 einstaklingum. Algengasta skurð- aðgerðin var svokallað blaðnám, sem var beitt í 76% tilvika. Fyrir hvern sjúkling voru skráðar hátt í 100 breytur, til dæmis aldur, kyn og hve dreifður sjúkdómurinn hefði verið þegar hann greindist. „Í rannsókn- inni er bæði litið til fylgikvilla og dánartíðni innan 30 daga frá skurð- aðgerð en sérstaklega þó lang- tímahorfa sjúklinga, það er svokall- aðrar lifunar, sem gefur til kynna hversu margir eru á lífi einu, þremur og fimm árum frá aðgerð og er einn mælikvarði á árangur meðferða við krabbameinum. Einnig var litið á dánarorsakir þeirra sem létust,“ segir Hannes. Hann segir skurð- aðgerð vera einu vel rannsökuðu læknismeðferðina við lungnakrabba- meini þó að stundum komi til greina að beita geislun og lyfjameðferð, hafi krabbamein dreift sér. Rannsóknir á dreifingunni Niðurstöðurnar rannsóknarinnar benda til þess að sjúklingar sem fari í skurðaðgerð lifi sífellt lengur. Hannes segir erfitt að finna eina skýringu á bættum horfum sjúk- linga. Ekki virðist hægt að rekja bættan árangur til þess að sjúkdóm- urinn greinist fyrr en áður eða að fleiri greinist með meinið fyrir til- viljun. „Við teljum sennilegra að bættar rannsóknir á dreifingu sjúk- dómsins fyrir aðgerð hafi haft áhrif en einnig gæti aukin notkun krabba- meinslyfja sem viðbótarmeðferðar eftir aðgerð hjá sumum sjúklingum haft þýðingu, en slíkri meðferð hefur verið beitt hér á landi í rúman ára- tug við stærstu æxlin. Þetta þarf þó að rannsaka betur,“ segir Hannes. Góður árangur eldri sjúklinga Aðgerðir á síðustu tíu árum rann- sóknarinnar sýndu betri horfur en þær sem voru framkvæmdar fyrr á rannsóknartímabilinu, sem spannaði samtals 24 ár. Rannsóknin sýndi ekki mun á árangri hópsins eftir kyni eða aldri, en Hannes segir ár- angur eldri sjúklinga einnig hafa verið mjög góðan. „Næstum fjórðungur af sjúkling- um í rannsókninni var yfir sjötugu og hlutfall eldri sjúklinga á eftir að aukast enn frekar á næstu árum. Ekki er því hægt að segja að ákveðin aldursmörk séu til staðar fyrir að- gerð, en hvert tilvik er metið sér- staklega. Elsti sjúklingurinn í okkar rannsókn var til dæmis 83 ára og sú aðgerð gekk mjög vel,“ segir Hannes. Hátt hlutfall í skurðaðgerð Rannsóknin náði til þriðjungs allra þeirra sem greindust með lungnakrabbamein, það er allra þeirra sem gengust undir skurð- aðgerð, en ekki sjúklinga með dreifðan sjúkdóm. Að sögn Hann- esar þykir hlutfall þeirra sem fara í skurðaðgerð vegna lungnakrabba- meins vera hátt í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar og flest lönd í Evrópu. „Við getum verið stolt af því, enda markmiðið að bjóða sem flestum upp á læknandi meðferð þegar slík með- ferð á við.“ Skurðaðgerðir árangursríkar  Yfirgripsmikil rannsókn sýnir bættar horfur vegna lungnakrabbameins Morgunblaðið/Ómar Veikindi Hlutfall sjúklinga sem fer í skurðaðgerð vegna lungnakrabbameins þykir hátt á Íslandi í samanburði við Norðurlandaþjóðir og margar aðrar þjóðir innan Evrópu. Batahorfur sjúklinga hafa einnig batnað verulega. Hannes Halldórsson 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 Laugavegi 103 | 101 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is Ný sending af March ferðatöskum Xtra léttar og á frábæru verði Embætti rík- islögmanns hefur ekki tekið ákvörðun um hvort áfrýjað verður dómi þar sem íslenska rík- ið var dæmt til að greiða ungri konu, sem þjáist af arfgengum hrörnunarsjúkdómi, bætur vegna þess að hún fékk ekki endurgjalds- lausa táknmálstúlkaþjónustu. Í svari embættisins við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að mennta- málaráðuneytið muni fyrst skoða efni dómsins. Samkvæmt upplýs- ingum frá ráðuneytinu hefur Illuga Gunnarssyni menntamálaráðherra ekki gefist tóm til að skoða efni dómsins en það mun hann gera á næstu dögum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á þriðjudag íslenska ríkið til að endurgreiða Snædísi Rán Hjartardóttur gjöld sem hún greiddi Samskiptamiðstöð heyrn- arlausra og heyrnarskertra vegna þess að miðstöðin hafði synjað henni um endurgjaldslausa túlka- þjónustu. Að auki fékk hún dæmdar miskabætur á þeirri forsendu að ís- lenska ríkið hefði vanrækt að setja reglur og byggja upp kerfi sem mið- aði að því að tryggja einstaklingum með þá fötlun, sem Snædís Rán glímir við, viðhlítandi aðstoð að þessu leyti. „Í þessu felst viðurkenning á þeirri augljósu staðreynd að ríkið hefur um langa tíð brotið með mjög grófum hætti gegn mannréttindum þessara einstaklinga. Það þurfti Snædísi Hjartardóttur og hennar kjark og þor til að kenna ríkinu þá lexíu. Við skulum vona að það dugi til,“ sagði Páll Rúnar M. Krist- jánsson, lögmaður Snædísar, við mbl.is. sh@mbl.is Áfrýjun ekki enn ákveðin  Ríkið dæmt til greiðslu miskabóta Snædís Rán Hjartardóttir Umboðsmaður Alþingis hefur sent háskólaráði Háskóla Íslands bréf vegna afgreiðslu á beiðni nemanda um endurskoðun skrásetningar- gjalds skólans. Umboðsmaður óskar eftir rökstuðningi vegna ákvörðunar ráðsins um að synja erindinu og að taka ekki afstöðu til athugasemda sem þar komu fram. Háskólaráð fer með úrskurðarvald í málefnum skól- ans en umboðsmaður tók fram í bréfi sínu að sendandi erindisins væri nemandi skólans og greiddi því skrá- setningargjaldið. Aukin gjaldtaka í HÍ Í kvörtun nemandans til umboðs- manns segir að þótt gjaldið hafi áður verið umkvörtunarefni hafi laga- grundvöllur málsins breyst. Í beiðninni til háskólaráðs rekur nemandinn áhyggjur sínar vegna hækkunar skrásetningargjalda og lækkandi opinberra fjárframlaga. Samkvæmt reglum háskólans sé skrásetningargjaldinu ekki ætlað að standa undir kostnaði við almenna kennslu. Hún skuli fjármögnuð með almannafé samkvæmt lögum um op- inbera háskóla en gjaldflokkar skrá- setningargjaldsins bendi til þess að gjaldið fjármagni kennsluna að ein- hverju leyti. Óskað eftir endurskoðun Með beiðninni óskaði nemandinn eftir heildarendurskoðun á skrásetn- ingargjaldinu með hliðsjón af laga- umgjörð þess og einstökum gjaldlið- um. Að auki krafðist nemandinn þess að háskólinn félli frá töku skrásetn- ingargjalda vegna þjónustu sem ekki félli að eðli þjónustugjalda enda væri skrásetningargjaldið þjónustugjald. Nemandinn telur háskólaráð hafa brotið gegn lögmætisreglu stjórn- sýsluréttar og óskráðum megin- reglum um þjónustugjöld með fyrirkomulagi gjaldtökunnar. jbe@mbl.is Deilt um skrá- setningargjald  Málið á borði umboðsmanns Alþingis Morgunblaðið/Ómar Háskólaráð Umboðsmaður hefur afgreiðslu ráðsins til skoðunar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.