Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Nýjar hagstæðar lausnir í innréttingum.
Nútímaleg hönnun, glæsilegt útlit og
örugg gæði frá fagmönnum.
Verktakar – húsbyggjendur
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
„Ef miðborgin getur ekki vaxið verður borgin
eins og risi með dvergshjarta sem er of lítið til
að viðhalda þrótti hennar og borgin verður
máttfarin og líflaus.“ Þannig komst Bjarki Jó-
hannesson, verkfræðingur og arkitekt, að orði
í lesbók Morgunblaðsins árið 1981, þar sem
hann færði rök fyrir því að Reykjavíkur-
flugvöllur ætti að víkja úr Vatnsmýrinni. Í stað
hans myndi fást aukið rými fyrir miðbæinn og
starfsemi Háskóla Íslands, auk 10-15 þúsund
manna íbúðahverfis.
Hugmyndir Bjarna hljóma vafalítið kunnug-
lega í eyrum þeirra sem fylgst hafa með um-
ræðunni um Reykjavíkurflugvöll síðustu miss-
eri. Af máli hans má að minnsta kosti ljóst vera
að staðsetning vallarins hefur verið umdeild
um þónokkurt skeið, en brátt verða liðin 70 ár
síðan Bretar afhentu Íslendingum flugvöllinn
til afnota eftir stríðslok, þann 6. júlí 1946.
Tæpum sex árum áður, haustið 1940, hafði
breski herinn hafið flugvallargerð í Vatnsmýr-
inni þrátt fyrir hörð mótmæli þáverandi
borgarstjóra, Bjarna Benediktssonar.
Að loknu stríði var fljótlega farið að huga að
mögulegum flutningi vallarins og síðan þá hafa
fjölmargar nefndir verið skipaðar og enn fleiri
skýrslur verið gerðar þar sem reynt hefur ver-
ið að finna honum betri stað.
Þjóðhagslegur kostnaður umfram ábata
Árið 1965 skipaði samgönguráðherra nefnd
til að gera tillögur um framtíðarskipan flug-
vallarmála Reykjavíkur. Klofnaði nefndin í af-
stöðu sinni en meirihluti hennar taldi að innan-
landsfluginu væri best borgið á Álftanesi.
Áratug síðar, árið 1975, kom fram þings-
ályktunartillaga á Alþingi um flugvöll á
Lönguskerjum í Skerjafirði, byggð á hug-
myndum Trausta Valssonar skipulagsfræð-
ings, sem vann tillöguna með alþingismönn-
unum Guðmundi G. Þórarinssyni og
Steingrími Hermannssyni. Snerist hugmyndin
um að nýta flugvallarstæðið til að reisa þéttan
byggðarkjarna til að efla háskólasamfélagið.
Samgönguráðherra skipaði árið 1988 nefnd
til að vinna áhættumat vegna vallarins. Í
niðurstöðunum var meðal annars mælt með
því að æfinga-, kennslu- og einkaflug fengi að-
stöðu á nýjum flugvelli í nágrenni borgarinnar.
Í úttekt Hagfræðistofnunar HÍ árið 1996
var þjóðhagslegur kostnaður við flutning vall-
arins talinn vera umfram ábata, en ef miðað
væri eingöngu við hagsmuni Reykvíkinga væri
niðurstaðan innan óvissumarka.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, kom árið 1999 fram með hug-
mynd að innanlandsflugvelli í Engey. Hug-
myndin gat þó ekki talist raunhæf að mati
borgarverkfræðings, meðal annars vegna lítils
landrýmis og árekstra við hafnarstarfsemi.
Almenna verkfræðistofan gerði sama ár
lauslega athugun um flugvallarstæði í Skerja-
firði. Voru umsagnir fremur neikvæðar, meðal
annars vegna mikils kostnaðar.
Dræm þátttaka í atkvæðagreiðslunni
Í mars árið 2001 var loks haldin rafræn at-
kvæðagreiðsla á meðal borgarbúa þar sem af-
staða þeirra til flugvallarins var könnuð. Gaf
hún yfirvöldum óljós skilaboð en 49,3% þeirra
sem greiddu atkvæði vildu að flugvöllurinn
færi á meðan 48,1% vildi að hann yrði áfram.
Þátttakan var dræm eða sem nam 37,2%.
Á vormánuðum ársins 2008 kynnti Ólafur F.
Magnússon borgarstjóri áform um byggingu
samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri, sem rísa
ætti fyrir árslok 2009. Höfðu áætlanirnar verið
í farvatninu í nokkur ár á undan en líklegt
verður að teljast að efnahagskreppan hafi sett
strik í reikninginn. Að minnsta kosti bólaði
ekkert á miðstöðinni að ári liðnu og var hún
endanlega slegin út af borðinu seint árið 2010.
Í apríl 2013 gerði borgin samkomulag við
innanríkisráðuneytið um byggingu nýrrar
flugstöðvar og var vonast til að hún myndi rísa
vorið 2015. Þau áform kunna að hafa raskast
nokkrum mánuðum síðar vegna samkomulags-
ins sem ríkið, Reykjavíkurborg og Icelandair
Group gerðu um að flugvöllurinn yrði í Vatns-
mýri til 2022. „Við erum að taka þetta mál upp
úr skotgröfunum og setja það í lausnamiðaðan
farveg,“ sagði Dagur B. Eggertsson, núver-
andi borgarstjóri, við það tilefni.
Í samkomulaginu var gert ráð fyrir stýri-
hópi sem finna myndi flugvellinum nýja stað-
setningu og var Ragna Árnadóttir, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, fengin til að leiða hópinn.
Kynnti hópurinn niðurstöður sínar í síðasta
mánuði en þar kemur fram að nýr flugvöllur í
Hvassahrauni sé besti framtíðarkosturinn.
Hvassahraun langversti kosturinn?
Athyglisvert þykir að í janúar árið 2001 lýsti
flugráð, sem var samgönguráðherra og flug-
málastjóra til ráðuneytis um flugmál, sig mót-
fallið tillögum Stefáns Ólafssonar prófessors
um nýja staðsetningu flugvallarins. Taldi ráðið
Hvassahraun vera langversta kostinn frá flug-
tæknilegum sjónarmiðum. Í skýrslu Stefáns
var kosturinn hins vegar talinn vænlegastur.
Erfitt er að spá um framhaldið en víst má
vera að málefni flugvallarins verða ekki óum-
deild næstu ár, fremur en áratugina á undan.
Deilur um Reykjavíkurflugvöll frá aldamótum
Mars 2001
Atkvæðagreiðsla
haldin um framtíð
flugvallarins. 49,3%
vildu hann burt eftir
árið 2016. 48,1%
vildu hann áfram.
Apríl 2005
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra
skipar nefnd til að
skoða sex kosti
um staðsetningu
innanlandsflugvallar.
Apríl 2007
Nefndin skilar
niðurstöðum sínum.
Þar er staðsetning
á Hólmsheiði álitin
koma þjóðhagslega
best út.
Apríl 2008
Ólafur F. Magnússon
borgarstjóri kynnir
áætlanir um
samgöngumiðstöð í
Vatnsmýri, sem rísa
skuli árið 2009.
Nóvember 2010
Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra og Jón
Gnarr borgarstjóri slá áform
um samgöngumiðstöð út af
borðinu.
Apríl 2013
Innanríkisráðuneytið
og borgaryfirvöld gera
samkomulag um byggingu
nýrrar flugstöðvar, sem rísa eigi
vorið 2015.
Ágúst 2013
Félagið Hjartað í Vatnsmýrinni
hefur undirskriftasöfnun gegn
áformum um að flugvöllurinn víki.
Nærri 70.000 undirskriftum var
skilað um mánuði síðar.
Október 2013
Ríkið, Reykjavíkurborg
og Icelandair Group
gera samkomulag um
að flugvöllurinn verði í
Vatnsmýri til 2022.
Nóvember 2013
Stýrihópur um
innanlandsflug,
einnig þekktur sem
Rögnunefndin, kemur
fyrst saman á fundi.
Júní 2015
Rögnunefndin kynnir
niðurstöður sínar. Þar er
staðsetning í Hvassahrauni
talin henta best undir nýjan
flugvöll.
Deilt um flugvöllinn í marga áratugi
Hugað að flutningi vallarins allar götur frá stríðslokum Fjölmargar nefndir verið skipaðar
Rafræn atkvæði gáfu yfirvöldum óljós skilaboð Flugráð gagnrýndi Hvassahraun árið 2001
Bertil M. Hellman, flugvalla-
sérfræðingur Alþjóðaflugmálastofn-
unarinnar, gerði árið 1963 skýrslu
þar sem hann athugaði möguleika
fyrir nýjan flugvöll.
Skoðaði Hellman staðsetningar á
Álftanesi, í Gálgahrauni og Kapellu-
hrauni, nærri þeim stað þar sem ál-
verið í Straumsvík stendur nú. Gaf
hann þessum stöðum auk Reykja-
víkur einkunnir eftir kostnaði og
uppbyggingu og út frá flugtækni-
legum atriðum. Fékk staðsetning
flugvallar á Álftanesi flest stig en
núverandi staðsetning í Vatnsmýr-
inni fékk fæst stig.
Síðar leitaði flugmálastjóri ráða
hjá Hellman, sem þá fékk finnskan
arkitekt til að gera frumúttekt á því
hvort unnt yrði að breyta hluta
Hótels Loftleiða í flugstöð.
Í febrúar 1974 lagði hann fram
greinargerð og teikningar, að því er
fram kemur í skýrslu undirbúnings-
hóps um samgöngumiðstöð í
Reykjavík, frá árinu 2005.
Þar var gert ráð fyrir að núver-
andi hótelbygging yrði stækkuð
vegna þessara viðbótarþarfa um
tæplega fimm þúsund fermetra, en
hótelið sjálft myndi áfram að fullu
nýta efri hæðirnar. sh@mbl.is
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Hótel Loftleiðir Myndin er líklega tekin skömmu eftir byggingu hótelsins.
Könnuðu möguleika á flug-
stöð í Hótel Loftleiðum