Morgunblaðið - 02.07.2015, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Náttúran í öllum sínum fjölbreyti-
leika er skemmtilegt myndefni,
hvort sem það er fuglalífið eða lit-
brigðin, fugla- og dýralíf eða á vet-
urna þegar norðurljósin dansa um
himinhvolfið,“ segir Höskuldur B.
Erlingsson, lögregluvarðstjóri á
Blönduósi. „Í vinnunni er ég eðli-
lega mikið á ferð um þetta víð-
feðma svæði sem við sinnum og oft-
ast er ég með myndavélina í
lögreglubílnum. Ef tök eru á
stoppa ég svo og tek myndir af því
sem fyrir augu ber. Á frívöktum
fer ég oft í sérstakar myndatöku-
ferðir.“
Við Hvammstanga-
afleggjarann
Fræg sakamálasaga sem kom út
í íslenskri þýðingu fyrir mörgum
árum heitir Löggan sem hló.
„Já, það er bara gaman að rabba
við þig og endilega taktu mynd,“
sagði Höskuldur og hló þegar
blaðamaður Morgunblaðsins hitti
hann nyrðra á dögunum. Leiðir
sköruðust við afleggjarann að
Hvammstanga, en þar var Hösk-
uldur við umferðareftirlit.
Lengi hefur farið orð af kappi
lögreglumanna á Norðurlandi
vestra við að halda umferðarhraða
á þjóðvegunum niðri. Þetta hefur
verið áhersluþáttur í starfi lögregl-
unnar á Blönduósi, þar sem Hösk-
uldur hefur starfað frá 2001. Tæp
30 ár eru síðan hann gekk í lög-
regluna, var fyrst í Reykjavík, svo
allmörg ár á Hólmavík eða þar til
leiðin lá í Húnavatnssýslurnar.
„Ég er Reykvíkingur að upp-
runa, en áhugamálin af þeim toga
að ég vil búa úti á landi. Ég hef
gaman af veiðiskap, bæði með
byssu og á stöng, og á sumrin gríp
ég oft í að leiðsegja veiðimönnum
við húnvetnsku árnar. Í því stússi
finn ég oft góð myndefni og eins í
hestamennskunni,“ segir Hösk-
uldur, sem næstliðna daga hefur
verið með fjölskyldunni í hestaferð
um Húnavatnssýslurnar, það er
sveitirnar í hringum Hópið.
Máni og tröllskessan Kola
Síðustu árin hefur viðmælandi
okkar gert víðreist um Húnavatns-
sýslurnar og myndað fallega fossa í
ám, en margir þeirra eru faldar
náttúruperlur og utan alfaraleiða.
Myndasmiðurinn nefnir þar til
dæmis fossana fremst í Vatnsdalsá,
þar sem heitir Forsæludalur.
„Í Laxá á Ásum, sem er ekki
langt hér fyrir utan Blönduós, er
hinn fallegi Mánafoss, sem nefndur
er eftir landnámsmanninum Mána.
Fossarnir í Kolugljúfri í Víðidaln-
um eru nefnir eftir tröllskessunni
Kolu – og svona gæti ég haldið
áfram. Nöfn á ótal stöðum í nátt-
úrunni eru dregin af alls konar sög-
um og þeim hef ég lagt mig sér-
staklega eftir,“ segir Höskuldur,
sem að undanförnu hefur verið að
safna og vinna myndir af fossunum
í Húnaþingi. Verkefnið fékk stuðn-
ing frá menningarráði Norðurlands
vestra. Í bígerð er að halda sýn-
ingu á fossamyndum innan tíðar.
Lögreglan leitar að fallegum fossum
Fuglar, dýr og dansandi norðurljós ber fyrir augu í Húnaþingi Höskuldur er með myndavélina í
lögreglubílnum Reykvíkingurinn sem vill vera úti á landi Sýning á myndum af fossum er í bígerð
Ljósmynd/Höskuldur B. Erlingsson
Perla Kolgljúfur, sem kennt er við tröllskessuna Kolu, er innarlega í Viðidalnum. Fossinn þar fellur fram í nokkrum þrepum og það er sannarlega vel þess virði að gera sér erindi á þessar slóðir.
Ljósmynd/Höskuldur B. Erlingsson
Fallegt Fyrir innan Vatnsdalsvatnið þar sem heitir Forsæludalur er Dals-
foss, einn margra slíkra sem eru utan alfaraleiða á Norðurlandi vestra.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Brosmildur „Já, það er bara gaman að rabba við þig og endilega taktu
mynd,“ sagði Höskuldur þegar blaðmaður hitti hann nyrðra á dögunum.
Ljósmynd/Höskuldur B. Erlingss
Sjónarspil Steinkirkjan fræga á Þingeyrum á mynd sem tekin er á vetr-
arnóttu undir birtu dansandi norðurljósa í öllum regnbogans litum.
„Þetta smáa og fallega í nátt-
úrunni er yfirleitt bara beint fyrir
framan okkur ef við höfum augun
opin,“ segir Höskuldur B. Erlings-
son. „Við ósa Blöndu, niður af lög-
reglustöðinni, halda straumendur
sig í stórum stíl og það hefur
spurst út. Erlendir ljósmyndarar
eru gjarnan þarna á árbakkanum í
hópum með sínar allra stærstu
linsur og útkoman hjá því fólki
virðist yfirleitt góð. Hvað telst góð
mynd er annars alltaf smekks-
atriði. Myndir sem teknar eru í
glaðasólskini um hásumar geta
verið ágætar en séu ský á himni og
einhver litur í himinhvolfinu verður
útkoman oft enn betri.“
Straumendur í stórum stíl
FALLEG NÁTTÚRA ER BEINT FYRIR FRAMAN OKKUR
Ljósm/Höskuldur B. Erlingsson
Straumendur Stór hópur er á ósum Blöndu, rétt við lögreglustöðina.