Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 30

Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Fótboltamenn verða áberandi á Akureyri næstu daga. Hvorki fleiri né færri en 1.800 leikmenn hófu þátttöku í N1 móti KA fyrir 5. ald- ursflokk stráka í gær og á morgun hefst Pollamót Þórs, þar sem eldri kempur af báðum kynjum spreyta sig.    Þetta er stærsta N1 mótið frá upphafi. Í fyrra voru þátttakendur rúmlega 1.300 svo að fjölgunin er mikil, en nú taka þátt alls 180 lið frá 39 félögum.    Fjölskyldur margra keppenda fylgja þeim jafnan á N1 mótið og þjálfarar og fararstjórar eru margir, svo að búist er við þúsundum gesta til bæjarins vegna mótsins.    Skemmtileg nýjung á N1 mótinu að þessu sinni er beinar út- sendingar frá leikjum á netsjón- varpsstöðinni sport.tv. Nokkrir leik- ir voru sýndir í gær og svo verður alla keppnisdagana.    Pollamót Þórs fer ætíð fram þessa sömu helgi, en þar láta gamlar kempur ljós sitt skína. Á þeim vett- vangi eru hárin færri og kílóin fleiri en gleðin yfirleitt álíka mikil og á KA-svæðinu.    Í tilefni 100 ára afmælis Þórs er óvenju mikið lagt í mótið núna. Á laugardagskvöldið, að keppni og verðlaunaafhendingu lokinni, verður til að mynda slegið upp sveitaballi í Boganum, þar sem Helgi Björnsson verður í aðalhlutverki með hljóm- sveitunum SS Sól og Reiðmönnum vindanna.    Jónas Þór Hafþórsson frá Akur- eyri afrekaði það á Arctic Open- golfmótinu um síðustu helgi að fara holu í höggi á 18. braut. Vann hann sér þar með inn eina milljón króna en gaf helming þeirrar upphæðar Hollvinasamtökum Sjúkrahússins á Akureyri.    Milljón krónur hafa verið í boði á Arctic árum saman fyrir þetta afrek en engum tekist að fara síðustu braut vallarins á einu höggi. Þrír voru nálægt því fyrri keppnisdaginn en boltar þeirra stöðvuðust 14, 15 og 16 cm frá holu. Jónasi tókst þetta svo loks, við mikinn fögnuð þeirra sem urðu vitni að högginu.    „Það var einkar ánægjulegt þeg- ar þetta tjón var tilkynnt,“ sagði Jón Birgir Guðmundsson, útibússtjóri Sjóvár, um afrek Jónasar, en Golf- klúbbur Akureyrar hefur lengi verið tryggður fyrir því að einhver nái draumahögginu á 18. braut.    Vert er að geta þess að sama dag og Jónas náði draumahögginu fór annar keppendi 4. braut Jaðars- vallar í einu höggi.    Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður Hollvinasamtakanna tók við gjöf Jónasar og fékk raunar af- hentar 612 þúsund krónur, vegna þess að 112 þúsund kr. söfnuðust í leik sem fram fór meðan á mótinu stóð og fylgdi hver króna þaðan með til samtakanna.    Stefán Gunnlaugsson, helsti hvatamaður stofnunar Hollvina- samtakanna, var einnig viðstaddur afhendinguna, sem fram fór við golf- skálann að Jaðri.    Jóhannes þakkaði Jónasi inni- lega fyrir stuðninginn og sagði pen- ingana án efa geta bjargað manns- lífi. „Við Jónas höfum þekkst lengi og hann skaust í dag upp Þórsara- vinsældalistann minn,“ sagði KA- maðurinn Jóhannes. „Hann er kom- inn upp í þriðja sæti; aðeins eigin- konan og tengdapabbi eru fyrir ofan hann á lista mínum yfir Þórsara núna.“    Arctic Open, Miðnætursólar- mótið eins og það er gjarnan kallað, heppnaðist einstaklega vel núna. Veður var með afbrigðum gott og keppendur frá útlöndum hafa aldrei verið fleiri, um 50.    Pétur Bolli Jóhannesson, skipu- lagsstjóri Akureyrarbæjar, hefur sagt upp störfum. Í fundargerð skipulagsnefndar er Pétri Bolla þakkað fyrir vel unnin störf og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.    Vísindaskóli unga fólksins, sem starfræktur var við Háskólann á Akureyri í fyrsta skipti í síðustu viku, þótti takast afar vel og ljóst að hann verður til frambúðar. Nem- endur voru liðlega 90, á aldrinum 11- 13 ára, og komust færri að en vildu.    Við brautskráningu fengu nem- endur viðurkenningarskjöl og rós frá Sigrúnu Stefánsdóttur, skóla- stóra Vísindaskólans, og Eyjólfi Guðmundssyni, rektor Háskólans á Akureyri. Blásarasveit háskólans flutti vel valin lög, útskriftarnemar fluttu ræður og Sean Scully, sér- fræðingur í efnafræðibrellum, skaut áhorfendum skelk í bringu með kraftmikilli sprengjusýningu.    Listaverkefninu RÓT 2015 í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi lýkur á laugardaginn með sýningu frá klukkan 15 til 17, eftir tveggja vikna ferli, sjö vinnudaga og þátt- töku 31 skapandi einstaklings. Þar með er sýningin fullunnin og verður því opnuð formlega.    Sýningu Bjargar Eiríksdóttur á fjórðu hæð Ráðhússins á Akureyri lýkur í dag með leiðsögn kl. 17 til 18. Hún sýnir þar textílverk unnin með aðferðum líkt og í lagskiptu mál- verki og mun Björg taka á móti gest- um og gangandi og fræða um tilurð sýningarinnar og einstök verk.    74,2 milljónum kr. hefur verið út- hlutað til menningar, atvinnuþróun- ar og nýsköpunar í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum úr Uppbyggingar- sjóði Norðurlands eystra. Sjóðurinn er nýr og tekur við af Menningarsamningi Eyþings, Vaxtarsamningi Eyjafjarðar og Vaxtarsamningi Norðausturlands.    Í ár var sérstaklega litið til verk- efna sem jafna stöðu kynjanna og aldurshópa á svæðinu. Sjóðnum bár- ust 169 umsóknir en samþykkt var að veita 94 verkefnum styrk.    Dagskráin á Græna hattinum er einföld næstu daga: Ljótu hálfvit- arnir einoka staðinn og verða með þrenna tónleika; fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagskvöld.    Á sunnudaginn hefst Sumar- tónleikaröð Akureyrarkirkju í 29. sinn. Kammerhópurinn Reykjavík Barokk ríður þá á vaðið og flytur m.a. verk eftir Vivaldi, Telemann og Kristínu Lárusdóttur. Tónleikarnir hefjast kl. 17. Aðgangur er ókeypis.    Sýning sem kölluð er Nowhere else/Hvergi annarsstaðar verður opnuð á morgun kl. 17 í Verksmiðj- unni á Hjalteyri. Sýningarstjóri er Sirra Sigrúnar Sigurðardóttir, en í sýningunni taka þátt alþjóðlegir listamenn og einn líffræðingur, að því er segir í tilkynningu.    Titill sýningarinnar er vísan til einnar áhrifamestu myndar mann- kynssögunnar, The Pale Blue Dot, fölblár punktur, sem var tekin fyrir 25 árum af geimkönnunarfarinu Voyager 1. „Þegar könnunarfarið var um það bil að yfirgefa sólkerfi okkar var myndavélum Voyager snúið aftur í átt til jarðar og myndin tekin úr sex milljarða kílómetra fjar- lægð.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fjörið byrjað Njörður Njarðarson, leikmaður Breiðabliks, og Þróttarinn Kári Kristjánsson á N1 móti KA í gær. Flinkir boltamenn af öllum stærðum Morgunblaðið/Skapti Peningagjöf Stefán Gunnlaugsson, Jóhannes G. Bjarnason, formaður Hollvinasamtakanna, Jónas Þór Hafþórsson og Jón Birgir Guðmundsson. Mennta- og menningar- málaráðherra hefur skipað Ernu Ómars- dóttur listdans- stjóra Íslenska dansflokksins frá 1. ágúst nk. Erna stundaði dansnám meðal annars við List- danskóla Íslands, Rotterdamse Dansakademie og PARTS í Brussel undir stjórn Önnu Teresu de Keersemaeker. Hún hefur á ferli sínum unnið með mörgum danshöf- undum og öðrum listamönnum við uppsetningu eigin verka og ann- arra. Erna var listrænn stjórnandi danshópsins Shalala frá 2007, Les Grandes Traversees í Bordeaux 2008, Reykjavík Dancefestival 2013 og hefur verið listrænn ráð- gjafi Íslenska dansflokksins frá 2014. Erna Ómarsdóttir skipuð listdansstjóri Erna Ómarsdóttir ÖRYGGISVÖRUR VERKTAKANS –Þekking og þjónusta í 20 ár Tunguhálsi 10 • www.kemi.is KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.