Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 38

Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 38
Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Hjólarallið Paris-Brest-Paris (P-B- P) er að sönnu helsta áskorun frí- stundahjólara, ekki aðeins í Frakk- landi heldur um heim allan. Nokkurs konar ólympíuleikar þessarar gerð- ar hjólreiðamanna og þangað kemst ekki nema brot af þeim sem vilja; margir eru kallaðir en fáir útvaldir. Mörg þúsund hjólarar um jarðir all- ar glíma við þrautir þær sem þarf að standast til að fá að vera með í rall- inu mikla sem fram fer 16.-20. ágúst í sumar. Eins og nafn rallsins gefur til kynna liggur leið keppenda til vest- urs frá París út á Bretaníuskagann, til bæjarins Brest og til baka. Leiðin í báðar áttir er að mestu sú sama og liggur um afar öldótt lands- lag. Hafa þátttakendur að hámarki 90 klukkustundir til að ljúka rallinu. Til marks um hversu brautin reynir á andlegt þol og líkamlegan styrk er um 400 hundruð brekkur að fara, all- margar mjög langar og brattar, en uppsafnað klifur á leiðinni er yfir 10.000 metrar. Til samanburðar er samsvarandi hæðarbreyting í WOW-cyclothon á Íslandi um 7.000 metrar, en það er 100 km lengra en P-B-M. Til að öðlast þátttökurétt í París- Brest-París-rallinu verða menn að fara í gegnum forkeppni og ljúka fjórum röllum fyrr á sama ári, 200 km, 300 km, 400 km og 600 km. Þau eru skipulögð og haldin um heim all- an samkvæmt settum reglum og önnur röll sem ekki hafa hlotið við- urkenningu franska félagsins sem fyrir P-B-P stendur gilda ekki. Þak er á þátttökunni, 5.500 manns fá að hámarki að vera með, sem er aðeins brot af fjöldanum sem reynir við röllin í ár í þeim tilgangi að vera með í P-B-P. Rúmlega 5.000 hjólamenn voru með í hvoru hinna tveggja síðustu París-Brest-París, 2007 og 2011. Voru um þrír fjórðu þeirra á aldurs- bilinu 40-59 ára. Lágmarksaldur er 18 ár en efri mörk engin. Keppendur hafa nokkurn veginn til helminga verið útlendingar og helmingurinn Frakkar. Konum hefur fjölgað jafnt og þétt þótt enn sem komið er séu þær í miklum minnihluta keppenda. Árið 2007 voru þær 343 en karlar um 4.800. Af þeim komust 209 alla leið í mark sem þýðir með öðrum orðum að um þriðja hver þeirra, eða 36%, heltist úr á leiðinni erfiðu. Þetta ár voru veðurfarslegar aðstæður einkar óhagstæðar, kalt og rigning allan tímann, í fyrsta sinn frá 1956. Til samanburðar féllu 27% karla úr leik eða 1.306 talsins. Heildar- brottfallið var 30,2% og var það að mestu rakið til veðursins því að jafn- aði hefur það legið á bilinu 15-20%. Þátttökulönd hafa aldrei verið fleiri en árið 2011, eða 53, en þá bættist Ísland í þann hóp. Þar var á ferð greinarhöfundur, sem um ný- liðna helgi vann sér þátttökurétt í rallinu að nýju í ár. Óvíst er þó hvort af þátttöku verður, hvort hann legg- ur á sig það mikla erfiði sem reiðin útheimtir. Víst er það eins og að upplifa fal- legt ævintýri að taka þátt í París- Brest-París-rallinu. Og þrátt fyrir þá miklu raun sem það er brýst alltaf fram bros á vörum keppenda þótt í andlitsdráttum þeirra skíni erfiðið í gegn. Í kvalræðinu líður þeim þrátt fyrir allt vel og þótt hætta verði för gleymast vonbrigðin fljótt. Þannig minnist ég reiðarinnar 2011. Hún hófst í hitabylgju í París og allt gekk vel lengi vel. Að kvöldi annars keppnisdags rifnuðu himn- arnir með þrumu- og eldingaveðri sem stóð í nokkrar stundir. Í byrjun leitaði ég skjóls í hlöðu við veginn ásamt nokkrum öðrum en vegna tímamarka var fljótlega ákveðið að halda á enda næsta áfanga þar sem keppniskortin voru stimpluð og nýtt svigrúm til að skoða herfræðina gafst. Frá hlöðunni tók þessi kafli nokkuð á aðra klukkustund og hjól- uðum við fimm í einfaldri röð eins og við ættum lífið að leysa. Ljósabún- aður er ekki sérlega skilvirkur í bleytunni sem buldi og bremsur seinvirkar á vatnslegnum felgum. Einbeitingin á afturdekk hjólarans á undan varð að vera algjörlega óskert til að ekkert brygði út af. Lofteldar í hrunadansi Yfir dönsuðu lofteldar hrunadans sem þeir vildu klóra manni í koll- inum. Svo fá voru sekúndubrotin á köflum milli ljósblossans og reið- arþrumunnar að maður virtist rétt undir og beygði sig ósjálfrátt niður til að forðast kinnhest blossanna. Augnablik sem aldrei gleymast og skjólið sem við tók í smábæ utarlega á Bretaníuskaga var vel þegið. Í íþróttasal bauðst að leggjast til hvílu og sjálfboðaliðar sáu um að ganga á milli rúma og ræsa eftir fyrirfram gerðri pöntun. Þar lágu á þriðja hundrað manns á hermannabeddum er mig bar að garði og hrutu meira og minna allir í kór. Ótrúleg lífs- reynsla og líka eftirminnileg. Ekki mátti á milli sjá hvort hefði yfirhönd- ina, hroturnar eða rigningin sem áfram buldi á þaki hússins. Þrátt fyrir gauraganginn dottaði ég fljótt. Meðan ég skreið í koju í tvær stundir eða svo var rennblautum gallanum skellt í þurrkara og beið sem nýr þegar vaknað var síðar um nóttina og síðasti spölurinn til Brest tekinn. Í tvö önnur skipti hallaði ég mér ögn en hugurinn vildi áfram og stoppa sem styst á eftirlitsstöðvum sem voru 10 á útleið og jafnmargar til baka. Áfram seiglaðist fákur minn jafnt og þétt, ýmist einn eða í slag- togi við fleiri. Upp bratta og brekkur sem virtust jafnmargar og finnsku vötnin þúsundanna. Eftir því sem leið á bakleiðina efldist tiltrúin á að í mark kæmist þótt þreytan safnaðist upp; ég var oftast vel innan tíma- marka á tékkstöðvum en nái menn þeim ekki er þeim kippt úr leik. Hausinn hékk á milli herðanna Mín biðu hins vegar sömu örlög og um fimmtungs þátttakenda, að kom- ast ekki alla leið í mark. Alls 66 stundum eftir ræsingu og með 1.000 kílómetra að baki olli hálfgerð lömun í hálsi því að ég ákvað að láta gott heita. Átti sólarhring inni til að klára kafla sem alla jafna tæki 8-10 stund- ir og formið var mjög gott að öðru leyti. Hálsinn var ekki til í slaginn og krankleikinn lýsti sér í því að ég gat ekki lengur haldið höfðinu uppi til að sjá það sem framundan var. Nema með því að rífa höfuðið upp á hönd- unum og styðja við það, ella hékk það á milli herðanna. Ég var með hangandi haus í bókstaflegri merk- ingu og upplifunin afar einkennileg. Þetta skrifaði ég á þungan bakpoka sem ég hafði borið alla leiðina með ýmsu sem til þarf. Hafi maður ekki aðstoðarmenn til að liðsinna sér á leiðinni og flytja pokann milli eftir- litsstöðva verða menn að bjarga sér sjálfir. Þrjóskan sagði mér að halda áfram en skynsemin náði yfirhönd- inni því í þessu ásigkomulagi taldi ég hættulegt að halda áfram. Fram- undan var meðal annars nótt og þá hefði ég þurft báðar hendur á stýri. Hugsaði sem svo að betra væri að láta slag standa; betra væri að vera lifandi heigull en dauð hetja, en af al- vöruhetjum væru franskir kirkju- garðar sneisafullir. Þannig fór um sjóferð þá. Þorskalifrin reyndist vel Í forkeppnisröllunum fjórum í ár lagði ég mig eftir því að leita uppi erfið röll, með helst ekki minni hæð- arbreytingu en í höfuðrallinu sjálfu. Þannig væri best að búa sig undir al- vöru-„ólympíuhátíð“ frístundahjóla- manna, ef á annað borð yrði reynt aftur við rallið frá París til Brest og til baka. Í forkeppnunum í ár tók ég upp á því nýmæli – eftir ábendingu frá frönskum hjólavini – að búa mér til samlokur sem ég smurði með þorskalifur. Skar þær niður í bita svo lesa mætti þá upp úr vösunum og snæða á ferð. Borðaði þessa bæti- efnabita aðallega framan af ralli en sykurbita og orkustangir frekar undir lokin. Það góða við þorska- lifrina var að hún var úr íslenskri lögsögu og fæst í úrvali í öllum mat- vælabúðum í höfuðstað Bretaníu- skagans, Rennes. http://www.paris- brest-paris.org Ólympshátíð frístundahjólara  1.220 km hjólarall frá París til sjávar í Brest og til baka fer fram á fjögurra ára fresti  Nokkurs konar ólympíuleikar frístundahjólara á öllum aldri  Tugir þúsunda reyna að fá að vera með Slakað á Hvíldinni feginn þótt aðstaðan sé ekki þægileg.Veifa Margir fylgjast spenntir með hjólreiðaköppunum. Klár í slaginn Greinarhöfundur (l.t.h.) með liðsfélögum. Öldótt landslag Um 400 brekkur eru á leiðinni frá París til Brest og til baka. Myndin er dæmigerð fyrir leiðina. Rallið mikla Leiðin frá París til Brest og til baka er 1.220 kílómetra löng. Ermarsund París Angers Nantes Hjólaleiðin á milli Brest og Parísar Brest Óhætt er að segja að hugdetta ritstjóra lítils Parísarblaðs, Le Petit Journal, hafi velt þungu hlassi. Pierre Giffard fékk þá flugu í hausinn að stofna til hjólreiða- keppni frá París til Brest og til baka til að vekja athygli á blaði sínu og örva sölu þess. Árangurinn er elsta hjólalangreið sögunnar. Í árdaga rallsins voru traustir rammar og slöngudekk að taka við af háum hjólum með trégjörðum. Var keppnin því góður mælikvarði á nýjungarnar og endingu reið- hjólanna en ekki mátti nota nema eitt og sama hjólið á leiðinni. Giffard rak áróður fyrir keppninni í leiðurum sem hann skrifaði undir dulnefninu „Jarðarlausi Jón“. Þar skrifaði hann um sjálfbæra keppni þar sem keppendur bæru sjálfir mat sinn til að snæða á leiðinni og fatnað til skiptanna. Aðeins Frökkum var leyfð þátttaka og mættu 207 til leiks. Upphaflega var leiðin P-B-P 1.200 km löng. Keppnin fór fyrst fram árið 1891 og hefur verið háð reglulega síðan. Aðeins eitt hjólamót í heiminum sem enn fer fram mun vera eldra, Catford CC- brekkuklifrið á Englandi. Atvinnumenn kepptu síðast 1951 og síðan hafa eingöngu áhugamenn og loks frístundahjólarar verið með. Formlega er ekki um keppni að ræða en tími er þó tekinn á öllum og verðlaun og viðurkenningar veitt. HJÓLREIÐAKEPPNIN FRÁ PARÍS TIL BREST FÓR FYRST FRAM ÁRIÐ 1891 Charles Terront vann fyrstu reið- ina frá París til Brest og til baka en keppnin var hugdetta rit- stjóra blaðsins Le Petit Journal. Hugdetta ritstjóra velti hlassi 38 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.