Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 44
Fjármálakreppan í Grikklandi
Eftir að hafa eytt um efni fram
árum saman voru skuldir
gríska ríkisins komnar í 350
milljarða evra (51.680 ma. kr.)
AGS og ESB samþykktu að veita Grikkjum lán
að andvirði 110 milljarða evra til hjálpa þeim að
greiða lánardrottnunummeð skilyrðum um erfiðar
sparnaðaraðgerðir, hækkun skatta og lækkun laun
2011 Fjölmenn götumótmæli vegna aðhaldsaðgerðanna.Ríkisstjórn Grikklands féll.
Frá 2010 hefur landsframleiðsla minnkað um 25%,
laun lækkað enn meira og atvinnuleysið er 28%.
2012 2015 Róttækur vinstriflokkur,Syriza, sigraði í kosningum
og hét því að semja um
breytingar á lánaskilmálum.
25. jan.
20. febr.
17. júní
ESB veitti Grikklandi lán
að andvirði 130
milljarða evra til viðbótar.
Lánardrottnar Grikklands
samþykktu að afskrifa
helming skulda landsins
við þá. Skuldir Grikklands
lækkuðu um 100 milljarða
evra. Björgunaraðgerðirnar voru fram-
lengdar til 30. júní. Gríska stjórnin
samþykkti að leggja fram nýja
áætlun um efnahagsumbætur
gegn því að fá aðstoð að andvirði
7,2 milljarða evra til viðbótar.
Eftir að samningaviðræður um nýja efnahagsáætlun
báru ekki árangur varaði stjórn Grikklands við
því að landið kynni að leggja niður evruna og
jafnvel ganga úr Evrópusambandinu.
30. júní Frestur Grikklands til að endurgreiða AGS 1,5
milljarða evra rann út og landið lenti í vanskilum.
2010
Grískum bönkum var lokað til 6. júlí og fjármagns-
höftum komið á. Kauphöllinni í Aþenu var lokað
til 8. júlí. Hlutabréfavísitölur lækkuðu víða um heim.
27. Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikkja, boðaði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um lánaskilmála ESB og
AGS. Evrópusambandið neitaði að framlengja
björgunaraðgerðirnar. Viðskiptavinir grískra banka
flýttu sér að taka út peninga af reikningum sínum.
29.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Alexis Tsipras, forsætisráðherra
Grikklands, sagði í sjónvarpsávarpi í
gær að staðið yrði við áformin um
þjóðaratkvæði á sunnudaginn kemur
um hvort Grikkir ættu að samþykkja
lánaskilmála Evrópusambandsins og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann
kvaðst ætla að halda áfram samn-
ingaviðræðum við lánardrottna
Grikklands og tók fram að hann vildi
að landið héldi evrunni og yrði áfram
í Evrópusambandinu.
Tsipras neitaði því að þjóðarat-
kvæðið fyrirhugaða væri í reynd at-
kvæðagreiðsla um aðild Grikklands
að Evrópusambandinu og myntsam-
starfinu eins og leiðtogar ESB-ríkja
hafa sagt. Hann bætti við að ef
Grikkir höfnuðu skilmálum Evrópu-
sambandsins og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins myndu þeir setja „mikinn
þrýsting“ á lánardrottnana og auka
líkurnar á því að þeir léðu máls á
breytingum á lánaskilmálunum.
„Nei í þjóðaratkvæðinu væri mikil-
vægt skref í átt að betri samningi,“
sagði hann.
Merkel vill ekki viðræður
fyrir þjóðaratkvæðið
Fregnir hermdu í gær að Tsipras
hefði sent lánardrottnunum bréf þar
sem hann léði máls á því að sam-
þykkja flesta af skilmálunum sem
þeir höfðu sett fyrir frekari aðstoð
við Grikkland áður en hann tilkynnti
um síðustu helgi að skilmálarnir
yrðu bornir undir þjóðaratkvæði.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, sagði að ekki yrði hægt að
semja um frekari aðstoð við Grikk-
land fyrr en þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni lyki. Francois Hollande, forseti
Frakklands, hvatti hins vegar til
„tafarlausra samninga“ til að leiða
deiluna til lykta.
Fréttaskýrandi breska ríkisút-
varpsins sagði að í bréfinu til lánar-
drottnanna léði gríski forsætisráð-
herrann máls á því að samþykkja
skilmálana ef þeir féllust á nokkrar
breytingar. Nýjasta tilboð hans væri
háð því að lánardrottnarnir yrðu við
beiðni Grikkja um tveggja ára aðstoð
til viðbótar að andvirði rúmra 29
milljarða evra, jafnvirði 4.300 millj-
arða króna. Tsipras mun einnig hafa
óskað eftir endurskipulagningu
skulda og breytingum sem talið er að
önnur evrulönd ljái ekki máls á núna.
Gríski forsætisráðherrann lagði
nýja tilboðið fram daginn eftir að
Grikkland lenti í vanskilum við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn. Frestur
Grikklands til að greiða afborgun af
láni frá AGS upp á 1,6 milljarða evra
(236 milljarða króna) rann út án þess
að greiðsla bærist. Þetta er í fyrsta
skipti sem Evrópuland lendir í van-
skilum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Einu löndin sem eru í vanskilum við
sjóðinn eru Afríkuríkin Súdan, Sóm-
alía og Simbabve.
Minni andstaða við
skilmálana í Grikklandi
Ný skoðanakönnun bendir til þess
að andstaðan við lánaskilmála lánar-
drottnanna hafi minnkað eftir að
grísk stjórnvöld ákváðu á sunnudag-
inn var að loka bönkum og koma á
fjármagnshöftum. Fyrir fjármagns-
höftin sögðust 57% ætla að greiða at-
kvæði gegn skilmálunum og 30%
ætluðu að samþykkja þá. Í könnun,
sem gerð var í fyrradag, sögðust
46% ætla að greiða atkvæði gegn
skilmálunum, 37% sögðust ætla að
styðja þá en 17% höfðu ekki gert upp
hug sinn.
Um 20.000 manns söfnuðust sam-
an í miðborg Aþenu í gær til að láta í
ljósi stuðning við skilmála lánar-
drottnanna. Svipaður fjöldi and-
stæðinga skilmálanna hefur efnt til
götumótmæla í borginni síðustu
daga.
Framtíð ESB „ekki í veði“
Talsmaður Thorbjørns Jagland,
framkvæmdastjóra Evrópuráðsins,
sagði að þjóðaratkvæðið fyrirhugaða
í Grikklandi stæðist ekki evrópskar
reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur.
Boðað hefði verið til atkvæðagreiðsl-
unnar með of skömmum fyrirvara og
spurningarnar sem lagðar væru fyr-
ir grísku þjóðina væru ekki nógu
„skýrar og skiljanlegar“.
Angela Merkel sagði að gríska
fjármálakreppan væri alvarlegt
vandamál en stefndi ekki Evrópu-
sambandinu í hættu. „Heimsbyggðin
fylgist með okkur. En framtíð Evr-
ópusambandsins er ekki í húfi.“
Valdis Dombrovskis, varaforseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, tók í sama streng. „Hvern-
ig sem þetta fer í Grikklandi er ég
viss um að efnahags- og myntbanda-
lag Evrópusambandsins komist
klakklaust í gegnum þetta,“ sagði
Dombrovskis, sem er fyrrverandi
forsætisráðherra Lettlands. Hann
kvaðst einnig telja að samkomulag
næðist við Grikki fyrir 20. júlí þegar
þeir eiga að greiða næstu afborgun
af láni frá Evrópusambandinu. Þá á
Grikkland að greiða Evrópska seðla-
bankanum 3,46 milljarða evra (550
milljarða króna).
Tsipras vill samþykkja skilmála
lánardrottna með skilyrðum
Forsætisráðherra Grikkja kveðst standa við áformin um að bera skilmálana undir þjóðaratkvæði
AFP
Glundroði Grískir ellilífeyrisþegar bíða í röð fyrir utan útibú banka í Aþenu. Aldraðir Grikkir fengu í gær að taka út reiðufé í um þúsund bankaútibúum.
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Glundroði ríkti fyrir utan marga
banka í Grikklandi í gær þegar
þúsundir aldraðra Grikkja biðu í
röðum eftir því að fá tækifæri
til að taka út peninga fyrir lífs-
nauðsynjum.
Alexis Tsipras, forsætisráð-
herra Grikklands, tilkynnti á
sunnudaginn var að grískir
bankar yrðu lokaðir út vikuna til
að koma í veg fyrir bankahrun
eftir að Grikkir tæmdu hrað-
banka landsins vegna fjár-
málakreppunnar. Skv. fjár-
magnshöftum sem gríska
stjórnin greip til geta Grikkir
tekið út allt að 60 evrur (8.800
krónur) á dag á hvert greiðslu-
kort. Þar sem margir aldraðir
Grikkir eiga ekki greiðslukort
var ákveðið að opna banka til að
gera lífeyrisþegunum kleift að
taka út allt að 120 evrur (17.700
krónur) sem eiga að duga þeim
út vikuna.
„Ég var sjómaður í 50 ár og
nú þarf ég betla 120 evrur,“
sagði einn öldunganna. „Ég á
enga peninga fyrir lyfjum handa
konunni minni sem fór í upp-
skurð og er veik.“
Aldraðir
flykktust í
bankana
FJÁRMAGNSHÖFT Í GILDI
AFP