Morgunblaðið - 02.07.2015, Side 54

Morgunblaðið - 02.07.2015, Side 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 ✝ SigurðurSveinbjörn Bjarnason fæddist í Stykkishólmi 30. ágúst 1933. Hann lést 19. júní 2015 á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Sig- urður var sonur hjónanna Bjarna Jakobssonar verkamanns, f. 1901 á Ísafirði, d. 1973, og Kristínar Brynhildar Davíðs- dóttur húsmóður, f. 1908 á Hraunhálsi í Helgafellssveit, d. 2007. Sigurður var þriðji í röðinni af níu systkinum. Birna Mjöll, f. 1970. Sigurður hóf nám í múrs- míði, lauk sveinsprófi árið 1968 og bætti auk þess við sig meistaraprófi í iðninni árið 1973. Eftir að hann lauk nám- inu starfaði hann fyrst hjá meistara sínum, en fór svo að vinna sjálfstætt sem hann gerði um þó nokkurra ára skeið. Árið 1978 lét hann af störfum sem múrari og réð sig til starfa í Álverinu í Straums- vík þar sem hann vann starfs- ævina á enda. Áhugamál Sigurðar voru mörg en hann stundaði hesta- mennsku um langt skeið, batt inn bækur, sótti ýmis nám- skeið í tréútskurði og renni- smíði auk þess sem þau hjónin stunduðu ferðalög innanlands jafnt sem utan. Sigurður var jarðsunginn frá Lágafellskirkju í Mos- fellsbæ 30. júní 2015. Sigurður kvænt- ist árið 1963 Lillý S. Guðmunds- dóttur, f. 1939. Börn þeirra eru: 1) Aldís, f. 1962. 2) Bjarki, f. 1965. Dóttir hans með Örnu Hilmars- dóttur, f. 1971, er Guðrún Eva, f. 1991. Hún er gift Davíð Jónssyni, f. 1989, og eiga þau Viktor Örn, f. 2012, og Jón Arnar, f. 2015. Bjarki er kvæntur Önnu Jódísi Sigurbergsdóttur, f. 1969, börn þeirra eru Gústaf Orri, f. 1996, og Harpa Líf, f. 1998. 3) Elsku pabbi minn. Ég trúi því varla að þú sért farinn. Fjársjóður minninga þyrlast um huga minn þegar ég rifja upp samverustundir okkar. Ég man vel eftir þegar þú tókst mig með þér í vinnuna þegar ég var 4-5 ára, þú varst að múra hús á Arnarnesinu og ég fékk að skottast í kringum þig, hjálpa að hræra steypuna og keyra litlar hjólbörur og af ein- hverjum ástæðum man ég eftir því þegar þú gafst mér í fyrsta skipti flatbrauð með hangikjöti, sem mér fannst hræðilega vont og hef aldrei borðað síðan. Svo voru það sumrin við Hæðargarðsvatn rétt fyrir utan Kirkjubæjarklaustur. Fyrstu sumrin gistum við í hjólhýsum, en síðan voru byggðir sum- arbústaðir og áttum við mörg góð sumarfrí á þessum slóðum. Minnisstæð er ein nóttin sem við vorum að veiðum í vatninu. Pabbi hafði tekið með sér vöðl- ur og tvær stengur, óð út í og kastaði og það brást ekki að á meðan hann óð í land var búið að bíta á. Við mamma stóðum á bakk- anum og höluðum inn fiskinn á meðan pabbi fór með hina stöngina út í og kastaði. Svo varð pabbi að koma í land og rota fiskinn sem ég halaði inn því ég gat það ekki. Svona gekk þetta langt fram eftir nóttu og var aflinn töluverður sem síðar var settur í reyk. Eða þegar við fórum eitt sumarið, helgi eftir helgi, upp í Galtarholt til að girða Halavöll- inn. Fyrst var stoppað í Hyrn- unni, borðaður morgunverður og keypt nesti fyrir daginn. Síðan keyrt upp eftir, kerran affermd sem var erfitt því við vorum með stóran bensínloft- bor, eða símaborinn eins og við kölluðum hann, til að gata bergið á Klettaborginni. En síðan unnið og spjallað, bara við tvö, um alla heima og geima, fjölskylduna, hestana, hundana, vinina, landafræði, út- sýnið af Borginni og drauma eins og að reisa sumarbústað undir Borginni, hafa hestana á beit á Vellinum og rannsaka Borgarfjörðinn þveran og endi- langan á hestbaki. Þá minnist ég einnig hesta- ferðanna sem við fórum í, ann- aðhvort fjölskyldan eða í hópi vina, hvort sem riðið var til kirkju, í kaffið í Fák eða til Þingvalla, þá varstu alltaf hress og glaður. Dýrin hændust að þér enda minnist ég þess að Ponsa mín vildi hvergi annars staðar vera en hjá þér þegar horft var á sjónvarpið. Svo var samband ykkar Glettu alveg sérstakt. Hvernig þú náðir sambandi við þessa skapmiklu meri var einstakt, enda varst þú sá eini sem gast riðið henni án mikillar fyrir- hafnar, því til dæmis átti ég og merin ekki skap saman. En þú sýndir henni þolinmæði og væntumþykju og hún gerði hvað sem var fyrir þig og bar þig um landið í öllum þeim löngu hestaferðum sem þið mamma fóruð í. Þú varst svo örlátur og hjálpsamur við að hjálpa þeim sem til þín leituðu, hvort sem það var fjölskyldan, ættingjar eða vinir. Ég er sannfærð um að þér hefur verið vel fagnað fyrir handan og að ástvinir okkar, menn og dýr, umvefji þig ást og umhyggju. Ég á eftir að sakna þín óend- anlega mikið. Þín Birna Mjöll. Elsku pabbi minn er dáinn. Nú þegar hann hefur kvatt þetta jarðlíf þyrlast minning- arnar um hann í kring um mig og ég man bæði stærri atburði sem og eitthvað smálegt. Ég man að hann var alltaf boðinn og búinn að hjálpa fólki þegar um það var beðið og aldrei taldi hann eftir sér að gera fólki greiða. Ég man ótal ferðir sem við fjölskyldan fórum um landið þegar við systkinin vorum ung. Þá var gist í tjaldi og oftar en ekki þurfti pabbi að kasta út kóngulónum sem höfðu skriðið inn í tjaldið um nóttina áður en ég treysti mér á fætur. Ég man hvað hann var mikill dýravinur og að öll dýr áttu vin í honum. Hestar, hundar og eitt sinn köttur töldust til dýra- halds fjölskyldunnar og lét hann sér alltaf annt um þau með klappi og kjassi og umönn- un. Páfagauka áttum við líka þó nokkra. Best man ég eftir Píu, en hún sóttist eftir að sitja hjá pabba. Á þessum tíma reykti hann pípu og fuglinn vildi helst vera í reyknum og þá sat hún á brjóstvasanum þar sem pabbi geymdi píputóbakið og varði vasann af heift ef maður fór þar nálægt með puttana. Eftir að pabbi hætti að vinna gaf hann fyrir fólk hestum í hest- húsahverfinu gjöfina á morgn- ana og taldi það ekki eftir sér. Ég man að hann var mjög félagslyndur og þótti gaman að vera innan um fólk. Þegar hann kom í heimsókn þegar ég bjó á Ísafirði fórum við í ferðir og leituðum uppi ættingja okkar þar. Og síðar þegar hann heim- sótti mig í Stykkishólm, þar sem hann var fæddur og uppal- inn, þótti honum mjög gaman að fara og heimsækja gamla vini og félaga. Einnig þótti hon- um gaman að rifja upp gamlar minningar og sagði hann mér bæði sögur af mönnum og mál- efnum í Stykkishólmi í gamla daga sem og sögur um leiki og störf þegar hann var strákur í Hólminum. Ég man alla fallegu munina sem hann skar út og gaf mér. Klukka sem var útskorið sól- blóm, fallegt refakefli og prjónastokkur voru á meðal þeirra muna. Hann renndi líka diska, penna og fleira í renni- bekknum sínum. Síðast en ekki síst man ég bækurnar sem hann batt svo fallega inn og gaf mér. Ég man er við horfðum sam- an á sjónvarpsþættina Blacklist sem okkur þóttu bæði skemmtilegir og spennandi. Ég man hvað hann tók veik- indum sínum af miklu æðru- leysi. Hann kvartaði ekki en bar veikindin með reisn, jafnvel þegar ljóst var að hverju stefndi. En best man ég undanfarnar vikur og mánuði þegar hann var hættur að geta lesið og ég las fyrir hann bækur sem hon- um fannst skemmtilegar. Voru þetta miklar gæðastundir sem við áttum saman, bæði heima- við, á Landspítalanum og á líknardeildinni þar sem hann dvaldist síðustu vikur lífs síns. Allar minningarnar um þig eru dýrmætar, pabbi minn, og mun ég geyma þær í huga mín- um um ókomin ár. Allt þar til við hittumst aftur þegar ég fer af jörðu hér og hitti þig og Ösku mína og Ponsu og fleiri ástvini sem ég veit að munu dvelja hjá þér í sumarlandinu. Frá þinni Aldísi. Sigurður Svein- björn Bjarnason Kæri vinur. Ég kveð þig nú í hinsta sinn. Ég var að vona að við fengjum að verða gamlir karlar saman. Við áttum eftir að gera svo margt saman, en einhvern veginn finnst manni tíminn alltaf vera nægur. Þrátt fyrir allan söknuðinn og sorgina sem fráfalli þínu fylgir er ég líka endalaust þakklátur fyrir að hafa eignast þig fyrir vin. Betri vin var ekki hægt að eiga. Þú komst alltaf til dyr- anna eins og þú varst klæddur, varst mjög duglegur við allt sem þú tókst þér fyrir hendur, hress og umfram allt hreinskil- inn. Ég kunni alltaf vel að meta orkuna þína og hreinskilni. Maður vissi alltaf nákvæmlega hvar maður hafði þig og það þótti mér gott. Félagarnir bjuggust nú ekki við að sambúð okkar á heima- Garðar Sigurðsson ✝ Garðar Sig-urðsson fædd- ist 22. september 1971. Hann lést 12. júní 2015. Útför Garðars fór fram 22. júní 2015. vist Vélskólans myndi endast nema í nokkra daga, enda báðir þekktir fyrir að standa fast á skoðunum okkar. En við skildum strax hvor annan og úr varð traust og góð vinátta. Við studdum hvor ann- an í náminu, það er m.a. þér að þakka að ég komst í gegnum alla dönskuáfangana. Þegar ég var við það að gefast upp á henni tókstu bara upp orðabókina og sagðir að nú þýddi ekkert kjaft- æði. Svo sátum við saman, þýddum og lærðum dönsku. Það hafðist fyrir rest og báðir útskrifuðumst við sem vélstjór- ar. Með þessu hugarfari nálg- aðist þú svo margt í þínu lífi. Þú hlífðir þér aldrei og gafst aldrei upp. Með því gafstu svo mörgum svo margt. Við sátum nú ekki alltaf yfir skólabókunum. Djammið tók sinn tíma. Gaukurinn var einn af þeim stöðum sem við sóttum mest, enda var þar spilað al- vöru rokk. Það kunnum við fé- lagarnir vel að meta. Lög með hljómsveitum eins og Guns N’ Roses, Metallica og fleiri góð- um munu ávallt vekja upp góð- ar minningar um þig. Svo urðum við fullorðnir. Eignuðumst konur og börn. Samverustundunum fækkaði en alltaf hélt strengurinn á milli okkar og við hittumst af og til og spjölluðum í síma. Við áttum það líka til að horfa á einn og einn íþróttaleik saman, það voru góðar stundir. Þú varst virkilega góður fað- ir og eiginmaður og það er svo sorglegt að þú fáir ekki að fylgja börnunum þínum og Ástu lengur í lífinu. En þau eru dugleg, eins og þú, enda varstu alltaf svo stoltur af þeim. Undanfarin fjögur ár hef ég fundið sterkt hversu djúp vin- átta okkar er, sérstaklega síð- astliðinn vetur þegar þú háðir lokabaráttu þína við meinið sem tók þig að lokum frá okk- ur. Þú barðist hetjulega allt til enda. Æðruleysi þitt og styrkur var einstakur. Við vorum auð- vitað alltaf að vonast eftir kraftaverki en fengum ósk okk- ar því miður ekki uppfyllta. Tómleikinn og söknuðurinn er stundum yfirþyrmandi. Það er svo óraunverulegt að þú sért ekki lengur hjá okkur. En ég verð ævinlega þakklátur fyrir að fá að hafa fengið að fylgja þér alla leið. Ekkert varir að eilífu, kæri vinur, nema minningarnar og ég mun varðveita þær þar til yfir lýkur. Þá hittumst við hin- um megin. Hvíl í friði, kæri vinur. Þinn vinur, Þröstur Sigmundsson. Elsku Garðar. Það er sárt að kveðja þig í blóma lífsins. Við höfum alltaf dáðst að bjartsýni þinni, baráttuþreki og jákvæðni í gegnum árin. Það var ekki óalgengt að sjá undir iljarnar á þér og hundinum þar sem þú varst að ganga rösklega á Þorbjörninn. Það var alltaf gleði og kraftur sem fylgdi þér og þú hafðir jákvæð og notaleg áhrif á þá sem nálægt þér voru. Við kveðjum góðan vin og minnumst samverustundanna með hlýjum hug. Sendum aðstandendum okk- ar dýpstu samúðarkveðjur. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Katrín Sigurðardóttir og Eiríkur Tómasson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HEIÐAR ÞÓR BRAGASON vélfræðingur, Blikahólum 6, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn 29. júní 2015. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju föstudaginn 10. júlí kl. 13. . Júlíus S. Heiðarsson, Kristín Margrét Gísladóttir, Hjalti Þór Heiðarsson, Kristín Jónsdóttir, Gyða Gunnarsdóttir, Alex Þór, Andri Týr, Sara Margrét, Sóldís og Aníta. ÓLAFUR HANNIBALSSON er látinn. Við þökkum hverja stund sem við áttum með honum. . Guðrún Pétursdóttir, Hugi, Sólveig, Kristín, Ásdís og Marta Ólafsbörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÁSGEIRSDÓTTIR, áður til heimilis að Garðavegi 9, Hafnarfirði, lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði 17. júní. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 3. júlí kl. 13. . Lilja Sölvadóttir, Ásgeir Sölvason, Þórdís Sölvadóttir, Erla Sölvadóttir, Kristín Sölvadóttir, Benedikt Kröyer, Steinunn Sölvadóttir, Stefán Símonarson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.