Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 58

Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 ✝ GuðbjörgMagnúsdóttir fæddist í Reykjavík 16. apríl 1923. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 21. júní 2015. Foreldrar henn- ar voru Magnús Stefánsson frá Heiðarseli í Hróars- tungu, fv. dyra- vörður í Stjórnar- ráði Íslands og bóndi, f. 30.4. 1891, d. 25.5. 1982, og Arnbjörg Jónsdóttir frá Gilsárteigi í Eiða- þingi, húsmóðir, f. 14.11. 1895, d. 1.5. 1980. Guðbjörg var elst sinna systkina sem voru: 1) Anna María, f. 17.1. 1925, d. 31.1. 2010, gift Hans Danielsen, fram- kvæmdastjóra hjá skipadeild SÍS, f. 15.11. 1925, d. 16.9. 1977. Synir þeirra eru Ragnar og Magnús. 2) Stefán, flugstjóri, f. 26.8. 1926, er fórst í flugslysi 18.3. 1963, giftur Svövu M. Þórðardóttur, f. 24.8. 1929, d. 13.9. 2007. Börn þeirra eru Magnús Örn, Halla og Þorleifur, en áður átti Stefán dótturina Sigríði, móðir hennar var Anna Camilla Einarsdóttir, f. 4.6. 1925, d. 26.11. 2014. 3) Ragnar frá MR 1942. Starfaði svo sem ritari hjá Pálma Hannessyni rektor og vann m.a. að þýðingu Ferðabókar Sveins Pálssonar. Fór síðan til náms í fóstrufræð- um og ensku í London. Heim- komin vann hún sem fóstra í Reykjavík, m.a. sem forstöðu- kona á barnaheimilinu Baróns- borg. Guðbjörg og Benedikt bjuggu alla tíð í Þorlákshöfn, voru ein af frumbyggjum stað- arins og líf þeirra samofið sögu hans. Benedikt var fram- kvæmdastjóri Meitilsins frá 1951 til starfsloka. Guðbjörg starfaði um tíma sem fóstra í Þorláks- höfn og í Kaupfélaginu en var síðan stöðvarstjóri Pósts og síma þar til hún fór á eftirlaun. Guð- björg og Benedikt reistu sér hús við A-götu 4 árið 1952 og bjuggu þar til 1963. Fluttu þá í nýtt og reisulegt hús, Háaleiti, og bjuggu þar uns þau á efri árum fluttu í hentugra húsnæði. Bæði voru virk í Söngfélagi Þorláks- hafnar og kirkjukór. Þau áttu bústað á Syðri-Reykjum og dvöldu þar oft í næði og við út- reiðar. Síðustu æviárin dvaldi Guðbjörg um tíma á dvalarheim- ilinu á Blesastöðum á Skeiðum í góðu yfirlæti en síðan á Hrafn- istu í Hafnarfirði og naut þar góðrar umönnunar allt fram í andlátið. Útför Guðbjargar fer fram frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn í dag, fimmtudaginn 2. júlí 2015, og hefst kl. 14. Jón, fv. flugvél- stjóri, f. 15.7. 1932, d. 7.2. 2009. Guðbjörg giftist hinn 14.3. 1953 Benedikt Thor- arensen fram- kvæmdastjóra Meit- ilsins í Þorlákshöfn, f. 1.2. 1926, d. 26.1. 2008. Foreldrar hans voru Egill G. Thorarensen kaup- maður og síðar kaupfélagsstjóri Kaupfélags Árnesinga á Selfossi, f. 7.1. 1897, d. 15.1. 1961, og Kristín Daníelsdóttir Thorar- ensen, f. 4.8. 1900, d. 29.12. 1994. Benedikt var næstyngstur fjög- urra systkina sem nú eru öll lát- in. Þau voru Grímur, f. 7.6. 1920, Erla, f. 29.4. 1923, og Jónína Guðrún, f. 15.3. 1928. Guðbjörg og Benedikt voru barnlaus. Foreldrar Guðbjargar bjuggu fyrst í Reykjavík, síðan um tíma í Loðmundarfirði og á Seyðisfirði þar til fjölskyldan flutti aftur til Reykjavíkur 1926. Þau keyptu og hófu búskap á Laugahvoli í Laugarásnum 1929 og ólst Guð- björg þar upp öll sín bernsku- og unglingsár. Að loknu gagn- fræðanámi tók hún stúdentspróf Fyrir ungan strák fylgdi því mikil eftirvænting að fara í heim- sókn til Guðbjargar frænku í Þor- lákshöfn. Staðurinn framandi og í húsi hennar og Benedikts við A- götu var spennandi að leika sér. Sigga frænka var þar stundum samtímis og þá var margt hægt að bralla. Fara niður á höfn, veiða á bryggjunni, fara í rannsóknar- leiðangra út í hraun, jafnvel týn- ast og rata ekki heim. Stundum var tekið til hendinni við saltfisk- verkun eða í timburvinnu vegna byggingar nýs skóla. Verkefni voru næg og aldrei setið auðum höndum. Guðbjörg frænka var sterkur persónuleiki, skapföst, fróð, ein- staklega minnug, víðlesin, ætt- fróð og kunni glögg deili á fólki. Ung stundaði hún sund og keppti í þeirri grein. Hún var lífsglöð og hafði mikinn áhuga á tónlist. Á menntaskólaárunum hlust- aði hún mikið á djasstónlist með vinum sínum, m.a. bræðrunum frá Múla, Jóni og Jónasi. Útskriftarárgangur hennar frá MR, 1942, var mjög samheldinn, í honum eignaðist hún vini fyrir lífstíð og allt fram á efri ár hittist þessi hópur reglulega. Guðbjörg var mikill náttúru- unnandi og naut þess að ferðast um landið. Hún kunni vel nöfn á flóru landsins og kenndi ónísk þeim er fáfróðari voru. Þau Bene- dikt fóru margar tjaldferðir á af- skekkta staði, t.d. við Ísafjarðar- djúp, og nutu þar kyrrðar og náttúrufegurðar. Saman stund- uðu þau hjónin líka hesta- mennsku um árabil og fóru í margar hestaferðir víðsvegar um landið með góðu samreiðarfólki. Var þá oft glatt á hjalla og á efri árum hafði Guðbjörg gaman af að rifja upp þessar ferðir og mundi hún þá út í æsar allar fyrrverandi reiðleiðir og áningarstaði. Einnig ferðuðust hún og Benedikt tals- vert erlendis og drukku í sig menningu annarra þjóða, enda bæði heimsborgarar. Guðbjörg hafði víðan tónlistar- smekk, hafði yndi af óperusöng en fylgdist líka vel með í tónlist ungra listamanna hérlendis. Sjálf lék hún á píanó og var, ásamt Benedikt, virk í kórastarfi í Þor- lákshöfn árum saman. Þau hjónin áttu sumarbústað á Syðri-Reykj- um og systkini Guðbjargar, Anna María og Jón, bústað á aðliggj- andi lóð. Stundum var slegið upp kvöldvöku með söng, Benni þandi nikkuna og altrödd Guðbjargar hljómaði vel með djúpri bassa- rödd Benna. Guðbjörg var félags- lynd, leiðtogi og myndaði sterk tengsl við sitt samstarfsfólk. Á 70 ára afmæli hennar þökkuðu starfsstúlkur Pósts og síma henni góðar stundir og fyrir að hafa „leitast við af fremsta megni að kenna okkur að meta bókmennt- ir, ljóð, söngmennt og vín“. Á efri árum var Guðbjörg vel ern, minnið allt undir það síðasta óskert og viljastyrkurinn óhagg- aður. Hún stundaði göngur meðan hún gat og gerði jafnvel Mullers- æfingar á morgnana. Hún fylgd- ist vel með í fréttum, hafði ákveðnar skoðanir á flestum mál- um og stundaði bóklestur af mik- ill elju. Hinn 16. apríl sl. varð Guðbjörg 92 ára og enn ágætlega hress. En svo hrakaði heilsu hennar jafnt og þétt og að lokum kvaddi hún þennan heim sátt og södd lífdaga. Ragnar Danielsen. Guðbjörg frænka var elst af fjórum börnum ömmu og afa, og varð þeirra síðust til að kveðja. Hún var föðursystir mín og tengslin milli okkar voru náin. Það er oft talað um mikilvægi fyr- irmynda og hvatningar fyrir stúlkur. Ég get ekki kvartað yfir að hafa ekki hvatningu til að gera það sem ég helst vildi. En Guð- björg var eiginlega fremst í flokki t.d. í að hvetja mig til náms – jafnvel umfram það sem ég sjálf hugsaði mér á unglingsárum. Og fyrirmynd var hún líka. Dugleg og sjálfstæð, alltaf glæsileg, hafði áhuga á náttúrunni, menningu og fallegum hlutum. Hún á nokkuð stóran hlut í uppeldi mínu og vildi helst að úr mér yrði dugleg, heið- arleg og ærleg manneskja. Guðbjörg og Benni voru með yfirbragð heimsborgara, en hlýddu kalli og settust að í Þor- lákshöfn, voru þar frumbyggjar þegar staðurinn og atvinnulíf voru byggð upp. Ég minnist marga góðra stunda í Þorlákshöfn. Það var gott að vera í húsinu í A-götu, gaman að skoða bækur, hjálpa til í eldhúsinu og leggja á borð. Og það var alltaf lagt fallega á dúkað borð. Svo var kveikt upp í arninum og horft í eldinn. Ekki var síður ævintýralegt að vera úti, fara nið- ur á bryggju, í fjöruferðir og ferðir með frænku í kríuvarpið að skoða egg og unga. Og klettótta ströndin heillaði. Þar brimaði í roki en á lygnum og góðum dögum var hægt að fara þangað, ganga á klettunum og jafnvel bregða sér í bað í pollum sem höfðu myndast á þeim. Eftir að ég varð fullorðin og stofnaði sjálf fjölskyldu og flutt- ist norður fylgdist Guðbjörg með þótt úr fjarlægð væri. Fylgdist með því sem við tókum okkur fyr- ir hendur, með uppeldi og þroska barnanna, gaf góð ráð, hvatti og sagði sína skoðun. Eftir að Benni dó og hún var farin að eldast var samband okkar áfram náið og síminn notaður óspart. Gaman var að hittast og eiga góðar stundir, þar sem hún rifj- aði upp gamlar minningar. Frá uppvextinum, menntaskólagöng- unni, ferðum í sundlaugarnar þegar vera átti að lesa fyrir próf – og stúdentsárunum æskuglöðu. Ferðir og dvalir í erlendum borg- um voru rifjaðar upp – London og París áttu heiðurssess í huga hennar. En ekki sístar voru hestaferðir innanlands í góðra vina hópi, fundir við skólasystur úr MR og góðar stundir með konunum af símstöðinni, svo eitthvað sé nefnt. Þegar allt var lagt saman var Guðbjörg í mínum huga sam- bland af heimskonu og íslenskri alþýðukonu, náttúrubarni og jafnvel bóhem. Komin yfir nírætt hélt hún sæmilegri heilsu og sjálfstæði fram á þetta ár, og minni og reisn alveg fram í andlátið. Hún var enn, eins og alla tíð, með sterka sjálfstæðiskennd, átti erfitt með að láta aðra stjórna sér, og þoldi illa að vera upp á aðra komin, eins og gerðist síðustu vikurnar. Hún var enn að reyna að ala mig og fleiri harðfullorðin frænd- systkini upp. Hafði sterkar skoð- anir á mönnum og málefnum, ræddi t.d. um kvótakerfið, nátt- úruvernd og ríkisstjórnina. Var ennþá fróðleiksfús og hafði yndi af lestri og tónlist. Á kveðjustund þökkum við Er- lingur og krakkarnir okkar allt gott. Sigríður Stefánsdóttir. „Hún var vinsæl og vel að sér um flest og hinn mesti skörung- ur.“ Þau orð hefðu fylgt kynningu Guðbjargar Magnúsdóttur Thor- arensen, væri það skráð í Íslend- ingasögum. Það er líka eins og Bjarni Thorarensen hafi haft hana í huga þegar hann orti í eftirmæl- um fyrir 200 árum: Ei þó upp hún fæddist í öðlinga höllum, látasnilld lipur var henni sem lofðunga frúvum. Kurteisin kom að innan, sú kurteisin sanna, siðdekri öllu æðri af öðrum sem lærist. Öll framkoma hennar ein- kenndist af þeirri hógværu reisn sem fylgir því að bera af auðmýkt persónu sína og berast ekki á. Í samræmi við það gekk hún ekki að versla í andlegum skranbúð- um tísku og tækifærismennsku. Hún vissi hvað var vönduð vara og klæddist í samræmi við það. Hið sama gilti um eiginmann hennar, Benedikt. Og saman voru þau glæsilegt par sem tekið var eftir hvar sem þau fóru á götu eða mannamótum. En þau hjón eignuðust ekki börn. Guðbjörg lét sér hins vegar annt um önnur börn, ekki síst bróðurdóttur sína Sigríði, sem átti eftir að verða konan mín og Guðbjörg þar með eins og önnur tengdamóðir. Uppeldisáhrif hennar náðu eftir það einnig til mín. Fyrir það vil ég þakka. Guðbjörg Magnúsdóttir unni íslenskri náttúru og menningu. Hún vissi vel hvað var góð músík, góð bók eða góður hestur. Hún kunni einnig að vera með þjóðum. Ung hafði hún lært í Englandi, en París var hennar draumaborg. Þangað ætluðu þær frænkur að fara saman, en sú ferð verður aldrei farin. Erlingur Sigurðarson frá Grænavatni. Menning hvers þorps mótast af atvinnuháttum og því fólki sem byggir staðinn, en í þessu sem öðru þarf einhver að gefa tóninn. Í dag kveðjum við eina slíka, en Guðbjörg gaf tón sem er hverju þorpi nauðsynlegur og koma í hugann orð eins og reisn, mynd- ugleiki og fágun. Saga Þorláks- hafnar og þeirra hjóna Guðbjarg- ar og Benedikts Thorarensen er samtvinnuð. Þau voru á meðal frumbyggja og stýrðu tveimur mikilvægustu fyrirtækjum þorpsins, Benni stýrði Meitlinum, en Guðbjörg símstöðinni. Um miðja síðustu öld og allt fram á sjöunda áratuginn var símstöðin samskiptapunktur hvers byggðalags við umheiminn. Það var því oft mikið annríki á starfsfólki símans. Guðbjörg var símstöðvarstjóri í rúma þrjá ára- tugi og fórst starfið vel úr hendi, var röggsöm og hélt góðum vinnuanda og til marks um það má nefna að margir störfuðu hjá henni í áratugi. Á fyrstu árum Þorlákshafnar hljóp Guðbjörg oft í skarðið ef vantaði kennara og ein fyrsta minning mín úr skólastarfi er úr tíma þar sem Guðbjörg var að kenna okkur Gilsbakkaþulu. Önnur sterk minning frá bernsk- unni er sú að Guðbjörg fékk okk- ur til að hjálpa sér við að hreinsa garðinn og launaði okkur það ríkulega með kókflösku og prins póló – það var mikil sælustund og var lengi í minni haft meðal okkar strákanna. Heimili þeirra hjóna stóð fyrst við A-götu 4 og ég man þá stund að við peyjarnir í þorpinu sýnd- um meiri fágun og kurteisi þar en víðast annars staðar, slík var virðing okkar fyrir þeim ágætu hjónum. Guðbjörg var myndarkona, ávallt vel klædd og bar sig vel. Hún gat virst ströng, en það var ávallt stutt í léttleikann. Hún lét til sín taka í félagsmálum og hugðarefni þeirra Benna og hennar tvinnuðust saman í kórn- um, þar hljómuðu saman bassa- röddin hans Benna og altröddin hennar Guðbjargar. Við sem þekktum munum enn raddir þeirra og þann góða tón sem þau gáfu fyrir margt löngu. Blessuð sé minning Guðbjargar M. Thorarensen. Þorsteinn Garðarsson. Guðbjörg Magnús- dóttir Thorarensen Þann 16. júní lést vinur okkar Kári Steingrímsson eftir langa og erfiða bar- áttu við krabba- mein. Þó að lát hans kæmi ekki á óvart var þetta samt harmafregn fyrir alla þá sem þekktu Kára. Við vorum ung að árum þegar við kynntumst Kára í gegnum sameiginlegan vinahóp og sam- starf við trésmiðar hjá Skipa- smíðastöðinni Dröfn og Bygg- ingafélaginu Þór. Hélst sú góða vinátta óslitið til dauðadags. Kári var aðeins 15 ára þegar faðir hans, Steingrímur Páll Bjarnason byggingameistari, varð bráðkvaddur, fjörutíu og fimm ára að aldri. Hafði þessi litla fjölskylda þá aðeins búið í örfáa daga í nýbyggðu húsi, sem faðir hans byggði af myndarskap við Reykjavíkurveg 10 í Hafnarfirði. Móðir Kára, Jóhanna Danívals- dóttir, lést úr krabbameini innan við fimmtugt. Þetta var Kára mik- ið áfall og minntist hann þeirra oft með söknuði. Kári lærði húsasmíði og fór eft- ir það til Svíþjóðar og Danmerkur í framhaldsnám í sínu fagi. Í Dan- mörku kynntist hann henni Siggu sinni og stofnuðu heimili sitt í Ála- borg. Eignuðust þau tvo mann- vænlega syni. Eftir heimkomu starfaði Kári aðallega við trésmíð- ar, enda var hann vandvirkur og laghentur smiður. Síðar hófu þau hjón búskap í Pálmholti í Reykja- dal og bjuggu þar stórbúi í 16 ár, eða þar til heilsa þeirra beggja tók að bila. Eftir það starfaði Kári aðallega við trésmiðar. Það er af mörgu að taka eftir Kári Steingrímsson ✝ Kári Stein-grímsson fædd- ist 4. október 1941. Hann lést 16. júní 2015. Útför Kára fór fram 30. júní 2015. meira en hálfrar ald- ar vináttu. Þær voru margar góðar stundirnar sem við áttum með Kára, bæði á yngri árum þar sem ýmislegt var brallað og síðar eftir að við stofnuð- um fjölskyldur. Margar urðu ferðirnar okkar norður í Pálmholt, með tilheyrandi skemmtilegheit- um og ógleymanlegum uppátækj- um. Þar var vel tekið á móti gest- um og myndarskapurinn á öllum sviðum. Kári var mjög orðhepp- inn og ógleymanleg voru tilsvörin hans oft á tíðum. Má t.d. nefna, þegar þau voru nýflutt í sveitina var hann spurður hvað tíkin á bænum héti, en ólíkindatólið Kári svaraði um hæl „Hún heitir Þor- björg digra og kölluð Píla“. Svona gátu tilsvörin hans verið. Dýrin á bænum hétu ýmsum mannanöfn- um eftir ýmsum vinum þeirra hjóna, t.d. var ein gyltan nefnd eftir undirritaðri, en sú gylta „hélt illa“ og var þar með fljótlega látin hverfa og nafnið ekki notað aftur. Kári var mikill dýravinur og til marks um það fengu hund- arnir að sitja í kjöltu hans inni í íbúðarhúsinu. Því höfðum við ekki kynnst á þeim bæjum þar sem við höfðum komið áður. Ekki má gleyma vinskap þeirra Kára og Sölku okkar, en Kári bað um að hún fengi að koma með í heimsóknirnar í Breiðuvík- ina. Það urðu fagnaðarfundir þeg- ar tíkin stökk upp í fangið á vini sínum. Að leiðarlokum kveðjum við Kára vin okkar með söknuði og vottum Siggu, Steingrími, Guð- jóni og fjölskyldum þeirra okkar okkar dýpstu samúð. Hafðu þökk fyrir allar góðu stundirnar kæri vinur. Minning þín lifir. Theresia og Gísli. Móðir þín fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út í heiminn en þorpið fer með þér alla leið. (Jón úr Vör) Allt og allir, sem á vegi þínum verða í uppvextinum, hafa á þig áhrif. Þetta verður manni æ ljós- ara eftir því sem tíminn líður. Og lengi býr að fyrstu gerð. Meðal þeirra, sem í þorpinu hvar ég ólst upp höfðu ótvíræð áhrif á mig og mótuðu, var Lína. Hún hefur með einum eða öðrum hætti drepið niður fæti í lífshlaupi mínu í hart- nær hálfa öld. Við Ari kynntumst um það bil sem skólakerfið náði fyrst á okkur tökum og allt frá þeim degi var ég tíður gestur á heimili Línu. Í gegnum grunn- skólagöngu vorum við svolítið eins og bræður á köflum; áttum enda hvorugur slíka heima hjá okkur, og fyrir vikið varð Lína mér svolítil mamma. Heimili hennar var ungum dreng skemmtilegur staður að koma á. Menntaðra og menningarlegra en flest sem ég þekkti. Bækur uppi um alla veggi, steinasafn í glugg- um og geymslum, merki um ferðalög til annarra landa. Stórt Sigurlína Gunnlaugsdóttir ✝ SigurlínaGunnlaugs- dóttir fæddist 29. júlí 1924. Hún lést 19. maí 2015. Útför Sigurlínu fór fram 27. maí 2015. hús, mörg herbergi, spennandi leikvöll- ur. Gagnfræðaskóla- árin eru þó stærri í minningunni en árin fyrir fermingu. Löngum stundum vörðum við Ari sam- an á þeim árum við alls lags iðju er þeim tilheyra. Lærdóm- inn, vangaveltur um lífið og tilveruna, almennan fífla- gang. Lína var alltaf einhvers staðar nálæg en skipti sér lítið af. Að við héldum. Eftir á að hyggja held ég hún hafi fylgst mun betur með okkur en okkur grunaði. Umhyggju sína sýndi hún ekki með stöðugum aðfinnslum eða af- skiptum. Þegar henni þótti þörf á að blanda sér í málin var það gert með stuttum, skýrum ábending- um, ekki boðum og bönnum. „Er það nú skynsamlegt“ var kannski það eina, sem hún sagði um ein- hverja ungæðislega hugmynd okkar. Ekkert meira. Eftirlét okkur að vinna úr athugasemd- inni. Ekki ætla ég að fara að hlaða skrif þessi reynslusögum. Tíminn leið, við Ari hófum, eins og geng- ur, lífsgöngu okkar, hvor sína leið, en hálft í hvoru þó hönd í hönd. Og Lína var alltaf nálæg. Hún sýndi mér ávallt umhyggju og hlýju, fylgdist með mér og mínum, hélt stöðu sinni sem svolítil mamma. Lína hefur fylgt mér alla leið. Fyrir það er ég þakklátur. Haukur Svavarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.