Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 66

Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is Pantanir í síma 562 0200 HJÓLREIÐAR Það kemur lesendum varla á óvart að Bragi stundar sjálfur hjólreiðar af miklum móð og raunar fjölskylda hans öll. Bragi segir að dellan hafi fyrst gert vart við sig árið 2009 þegar hann eignaðist sitt fyrsta götu- hjól. „Ég uppgötvaði hvað það getur verið góð byrjun á deg- inum að hjóla í vinnuna og ekki skemmdi heldur fyrir hversu öfl- ugan og góðan félagsskap má finna hjá hjólreiðafélögunum.“ Bragi er tölvunarfræðingur og starfar hjá RB, sem er aðalstyrktaraðili RB Classic. Hann segir fyrirtækið í far- arbroddi hvað snýr að því að hvetja starfsmenn til hjólreiða- iðkunar. „Fyrir rúmu ári voru innleiddir samgöngusamningar þar sem starfsmenn fá 7.000 kr. aukagreiðslu, skattfrjálst, gegn þvi að mæta að minnsta kosti þrisvar í viku til vinnu öðruvísi en á einkabíl. Nú þegar nýta 45% starfsmanna sér þennan styrk. Rausnarlegir íþrótta- styrkir eru í boði sem nota má til kaupa á reiðhjólum og reið- hjólafatnaði og aðstaðan góð fyrir þá sem hjóla til vinnu. Nú síðast keypti RB nokkur vönduð reiðhjól sem standa starfs- mönnum til boða yfir vinnudag- inn ef þeir þurfa að skjótast frá vinnustaðnum.“ Bragi á konu og þrjú ung börn, og hefði margur haldið að fjölskyldugerðin krefðist þess að fjölskyldan ætti bíl. Þau ákváðu þó í sameiningu síðasta sumar að prufa bíllausan lífsstíl og hafa eftir það farið allra sinna ferða á hjólum. Bragi vílar ekki fyrir sér að hjóla alla leið úr Breiðholtinu í vinnuna, jafnvel þegar snjór og ís er á götum og veður vond. „Í mestu snjóbyljunum er ég, ef eitthvað er, fljótari í vinnuna en nágranninn sem er fastur í hægfara umferðinni. Á hjólinu kemst ég áfram og þarf bara að berjast í gegnum snjóinn. Þegar ég svo mæti til vinnu er mér tek- ið eins og hetju, sem er ekki óskemmtilegt. Þegar maður hjólar sömu leiðina í vinnuna allt árið eru það í raun dagarnir þar sem veðrið er verst sem eru skemmtilegastir því þeir gefa smá tilbreytingu.“ Bragi saknar ekki einu sinni einkabílsins þegar kemur að matarinnkaupunum. „Það má finna lausn á öllum þessum reglulegu ferðum en í mínu til- viki festi ég kerru aftan á hjólið og fer þá léttilega með að ferja heim matarinnkaup fyrir 30- 40.000 kr.“ Ekkert mál fyrir fjöl- skylduna að vera bíllaus Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sunnudaginn 30. ágúst verður efnt til áhugaverðrar hjólreiðakeppni umhverfis Þingvallavatn. RB Classic hjólreiðamótið er núna haldið í annað sinn og er í boði að taka einn hring umhverfis vatnið, 65 km leið, eða tvo hringi, sem gerir 127 km. Bragi Freyr Gunnarsson stjórn- ar keppninni, sem haldin er á vegum reiðhjólafélagsins Tinds í samstarfi við RB (Reiknistofu bankanna), Ion Luxury Adventure Hotel og Kríu reiðhjólaverslun. Hann segir RB Classic mótið skilgetið afkvæmi Dav- ids Robertson í Kríu. „Honum hug- kvæmdist að það gæti verið gaman að skipuleggja keppni umhverfis Þingvallavatn sem hefði skírskotun í stóru klassísku evrópsku eins dags keppnirnar sem oft eru haldnar á mjög erfiðum brautum. Ein sú þekktasta af þeim keppnum er Paris Roubaix, sem fer að nokkru leyti fram á hellusteinum. Í tilviki RB Classic er um að ræða nokkuð langa og hæfilega erfiða keppnisleið í fal- legu umhverfi þar sem 10 km kafli á malarvegi gerir keppnina óhefð- bundna og meira krefjandi.“ Vegleg verðlaun í boði Keppnin hefst við afleggjarann að Ion hótelinu snemma á laugardeg- inum og hjólað er réttsælis kringum vatnið. Um er að ræða bikarmót sem myndar hluta af verðlaunakerfi ÍSÍ og segir Bragi Freyr stefnt að því að gera RB Classic eina af stóru reið- hjólakeppnum Íslands. Í fyrra tóku 144 manns þátt og gerði það mótið strax að því þriðja stærsta það sum- arið. „Við njótum góðs af því að eiga þrjá mjög öfluga bakhjarla sem bæði hjálpa okkur að standa straum af kostnaðinum við keppnishaldið og leggja fram vergleg verðlaun,“ út- skýrir Bragi, en peningaverðlaun í boði RB eru veitt fyrir efstu fimm sætin í flokki karla og kvenna í A- flokki. Þá verður einn heppinn þátt- takandi dreginn úr potti og hreppir öndvegis reiðhjól í boði Kríu. Að auki verður fjölid annarra skemmtilegra vinninga dreginn út. Keppt er á götuhjólum, þ.e. „racer“-hjólum, svo að keppendur ferðast hratt umhverfis vatnið, en Bragi reiknar með að þeir síðustu skili sér í mark 5-6 tímum eftir að keppnin hefst. Vart er hægt að finna fallegri eða skemmtilegri hjólaleið: „Mal- arkaflinn brýtur upp hringinn og getur verið krefjandi fyrir hjólreiða- fólkið, ekki síst vegna þess að þó svo að götuhjól geti vel komist greiðlega eftir malarvegunum eykur mölin hættuna á að hjólið skriki ef farið er óvarlega, eða jafnvel að springi á dekki.“ Segir Bragi að í samanburði við evrópsk atvinnumannamót sé keppn- isleiðin í styttra lagi. „Á megin- landinu fara atvinnumenn í hjólreið- um varla á fætur fyrir minna en 200 km keppni,“ segir hann og hlær. „En 127 km leið er hæfileg vegalengd fyr- ir reynda íslenska hjólreiðamenn og 65 km fínt fyrir þá sem eru komnir skemmra á veg í sportinu.“ Könnun sem gerð var meðal keppenda síðasta sumar leiddi í ljós mikla ánægju með viðburðinn. Góð þjónusta er við keppendur og gesti og Ion hótelið undirlagt á meðan keppnin varir. Í lok keppninnar er efnt til verðlaunaafhendingar við hótelið, eða innandyra ef veðrið kall- ar á það, og veitingarnar eru inni- faldar í þátttökugjaldinu, sem er 5.500 kr. Nánari upplýsingar má finna á slóðinni www.rbclassic.is en þar er hlekkur á síðuna Hjólamót.is þar sem skráning fer fram. Hjóla fallega leið sem er brotin upp af stuttum malarkafla  RB Classic er skemmtileg áskorun fyrir hjólreiðafólk og varla hægt að finna fallegra umhverfi fyrir keppnina  Sækir innblástur í krefjandi evrópskar keppnir Morgunblaðið/Kristinn Spenna Bragi Freyr segir hægt að bjóða upp á vegleg verðlaun í RB Classic, þökk sé rausnarlegum bakhjörlum. Ljósmyndir / Arnold Björnsson Slagur Fjölbreyttur og stór hópur tók þátt síðasta sumar. Ljósmynd/Arnold Björnsson Fegurð Varla er hægt að ímynda sér betra umhverfi til að hjóla í en þjóðgarðinn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.