Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 77

Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 77
hátíðarsvæðinu. Þá verða, líkt og síð- ustu ár, ýmsar kvikmyndir sýndar og mun skoska síðrokksveitin Mogwai stýra kvikmyndadagskránni að þessu sinni. Meðal kvikmynda sem hljóm- sveitin hefur valið eru American Mo- vie, Don’t Look Back, The Exorcist og Rollerball. Allt er þegar þrennt er Hogan kveðst afar spenntur að sjá sveitirnar sem koma fram á hátíðinni í ár og nefnir meðal annars banda- rísku sveitina Drive Like Jehu sem eina af þeim hljómsveitum sem hvöttu hann áfram þegar hann stofn- aði hátíðina fyrir fjórtán árum. „Drive Like Jehu var í miklu uppá- haldi hjá mér fyrir um tuttugu árum. Það má segja það sama um það band og sveitir á borð við Slint, þetta eru sveitirnar sem komu mér almenni- lega inn í tónlistina og urðu til þess að ég vildi fara að skipuleggja hátíðir á borð við ATP. Það er því mikill heiður fyrir mig að fá að sjá hljómsveitina spila. Ég veit ekki hversu þekktir þeir eru á Íslandi en ég held að stór hluti alþjóðlegu gestanna sé að koma á hátíðina til þess að sjá þá sveit. Ég er einnig mjög spentur fyrir Swans. Ég sá hana í London nýlega og það eru einhverjir mest töfrandi tónleikar sem ég hef verið á. Swans átti að koma fram á Iceland Airwaves fyrir einhverju síðan en þurfti að hætta við tónleikana. Á síðasta ári var hljóm- sveitin líka bókuð á ATP á Ásbrú en komst ekki vegna veikinda söngv- arans,“ segir Hogan um Michael Gira og bandarísku rokksveitina Swans. „Ég á ekki von á öðru en allt gangi upp í ár. Allt er þegar þrennt er,“ segir Hogan vongóður og hlær lít- illega. Hann bætir auk þess við að hann sé spenntur fyrir þeim íslensku sveitum sem koma fram á hátíðinni að þessu sinni. „The Bedroom Community er til að mynda með spennandi svið og svo hafa sveitir á borð við Kiasmos og HAM vakið athygli mína. HAM virð- ist vera okkar búsetuband, þeir spiluðu líka á ATP árið 2013 og 2014. Ég er einnig nokkuð spenntur að sjá Kippa Kaninus,“ segir hann. Skeyta saman kynslóðum Nokkrar yngri sveitir stíga á svið með þeim eldri, á meðal þeirra er danska pönksveitin Iceage. Hogan segir tilvalið að blanda slíkum hljóm- sveitum saman við áhrifavalda sína og slíkt geti bæði skemmt og mennt- að áhorfendur. „Ég held að það sé gott að skeyta nýjum böndum sem eru að gera spennandi tónlist við eldri bönd sem hafa haft áhrif á þau. Það eru örugg- lega margir ungir tónlistaraðdáendur sem þekkja til dæmis ekki tónlist Public Enemy en Run the Jewles væru ekki að gera nákvæmlega það sem þeir eru að gera ef ekki væri fyr- ir Public Enemy. Iceage, Drive Like Jehu, Godspeed! og fleiri bönd, ekk- ert þeirra væri til í sömu mynd ef ekki væri fyrir Iggy Pop,“ segir Hog- an. ATP-hátíðin hefur lagt upp með að vera nokkurs konar rokkhátíð, vissulega með ýmsum tilbreytingum, og segir Hogan enga breytingu þar á þrátt fyrir að tveir af stærstu flytj- endunum þetta árið séu hiphop- listamenn. „Við erum mjög spennt að fá sveit- ir á borð við Public Enemy og Run the Jewels á hátíðina. Ég hef mjög gaman af báðum sveitum. Margt hip- hop þessa dagana snýst eingöngu um pening en ekki tónlistina sem slíka. Ég hef engan áhuga á hiphop- listamönnum á borð við Drake eða einhverju í svipuðum dúr, ég nenni ekki slíku kjaftæði. Ég hef meiri áhuga á tónlist sem hefur hvatt mig áfram við að koma ATP á laggirnar. Þegar við unnum með listamönnum á borð við Autechre árið 2003, þá vildu þeir til dæmis fá hiphop í dagskrána og Public Enemy var þar mjög of- arlega á lista. Við héldum tónleika með þeim í London á laugardaginn og það var stórkostlegt. Þeir spiluðu alla slag- arana auk nokkurra nýrra laga og voru mjög ferskir. Það verður mjög gaman að sjá Flavor Flav og Chuck AFP -kjaftæði 77 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 Hvatning Drive Like Jehu er ein þeirra hljómsveita sem hvöttu Barry Hogan til þess að stofna tónlistarhátíðina. Godspeed you! Black Emperor Godspeed You! Black Emperor eru meðal grundvallars- íðrokkssveita aldarmótaáranna ásamt böndum á borð við Mogwai og Explosions in the Sky. Plötur þeirra hafa lifað góðu lífi og má þar helst nefna Lift Your Skinny Fists Like Antennas to Heaven sem kom út árið 2000 og hefur fengið hátt í eina og hálfa milljón spilana á YouTube frá því hún var sett á vefinn fyrir þremur árum. Sveitin gaf nýverið út plöt- una Asunder, Sweet and Other Distress og hefur verið að fylgja henni eftir með tónleikum. Platan hefur fengið nær einróma lof gagnrýnenda, miðlar á borð við The Guardian og Pitchfork gefið henni toppeinkunn. Eins og með flestar síð- rokkssveitir er þessi þekkt fyrir kraftmikla framkomu. Iceage Danska pönksveitin Iceage er ein af yngri sveitunum sem fengnar voru inn á ATP til að vega upp á móti eldri lista- mönnum. Hljómsveitin hefur farið nokkuð mikinn upp á síð- kastið og skapað sér orðstír sem ein mest spennandi pönk- sveit Evrópu um þessar mundir. Lögin „You’re Blessed“ og „Ecstasy“ af plötunum New Brigade og You’re Nothing gefa ágætis mynd af tónlist hljómsveitarinnar en eins og sjá má á titlum laganna er kröftugt pönkið ekki sungið á móðurmáli hljómsveitarmeðlima. Í fyrra gaf sveitin út plötuna Plowing Into the Field of Love og áhugavert verður að sjá hvernig flutningur sveitarinnar blandast saman við reyndari hljóm- sveitir á hátíðinni. Run the Jewels Hiphop-dúóið Run the Jewels var stofnað 2013 af reynslu- boltunum El-P og Killer Mike. Þeir hafa gefið út tvær breið- skífur og sú þriðja, Run the Jewels 3, er væntanleg á næsta ári. Fyrstu tvær plöturnar fengu afar góða dóma, þar af fullt hús stiga hjá The Guardian og níu af tíu hjá NME og því spennandi að sjá hvað tvíeykið dregur upp úr erminni á næstu plötu. Run the Jewels hefur meðal annars unnið með Big Boi úr Outkast og Zack de la Rocha úr Rage Against the Machine og þykja nokkuð frumlegir miðað við marga aðra kollega þeirra í senunni. Þess má til gamans geta að Killer Mike kom fram í þáttaröðinni The Eric Andre Show og háði rímnaeinvígi við ActionBronson á hlaupabrettum. Atlantic Studios  Kl. 14.45. Stafrænn Hákon  Kl. 15.55. Chelsea Wolfe  Kl. 17.20. Deafheaven  Kl. 18.45. The Bug  Kl. 20.15. Public Enemy  Kl. 22. Iggy Pop  Kl. 23.45. Belle & Sebastian  Kl. 1.30. Run the Jewels Andrews Theatre  Kl. 18.45. Tall Firs  Kl. 20.15. Grísalappalísa  Kl. 21.45. Kippi Kanínus  Kl. 23.15. Vision Fortune  Kl. 00.45. Mr. Silla Offiseraklúbburinn  Kl. 00.00. DJ Styrmir Dans- son  Kl. 2.30. ATP DJs. Dagskrá hátíðarinnar í dag D loksins á Íslandi,“ segir Hogan, fullur tilhlökkunar. Hátíðin komin til að vera Talsverðar breytingar hafa orðið á skipulaginu í kringum Ásbrú þetta árið og hefur Tómas Young, skipu- leggjandi hátíðarinnar síðustu tvö ár- in, dregið sig í hlé. Hogan segir breyt- ingarnar þó ekki stafa af neinum illindum, aðeins sé um hefðbundnar skipulagsbreytingar að ræða. „Tómas var einn af þeim sem tóku þátt í að skapa þetta með okkur. Hann ákvað þó, eftir tvö ár við stjórn- völinn, að einbeita sér að tónleika- staðnum í Keflavík sem hann stjórn- ar, það er mjög kröfuhart starf. Hann steig því til hliðar að þessu sinni en það þýðir ekki að hann muni aldrei starfa fyrir ATP aftur. Við erum í talsverðum samskiptum ennþá og það er ekkert slæmt á milli okkar,“ segir Hogan og blæs að lokum á þær sögu- sagnir að hátíðin í ár verði sú síðasta hér á landi. „Við viljum byggja upp hátíðina hér á landi og gera hana að árlegu dæmi. Það er þó alltaf einhver orð- rómur í gangi. Það eina sem ég get sagt er að hátíðin í ár verður frábær. Við erum nú þegar byrjuð að plana hátíðina árið 2016 og farin að ræða við nokkra listamenn. Það er því hreinlega ekki satt að þetta sé síðasta ATP-hátíðin á Íslandi,“ segir Hogan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.