Morgunblaðið - 02.07.2015, Qupperneq 80

Morgunblaðið - 02.07.2015, Qupperneq 80
Passíusálmarnir hafa síðustualdir verið hryggjar-stykkið í íslenskum trúar-bókmenntum ásamt Vídalínspostillu; þetta er 92. útgáfa sálmanna. Ekkert íslenskt skáld- verk hefur verið prentað jafnoft. Þetta er jafn- framt í fyrsta skipti sem sálm- arnir eru gefnir út með þessu nafni, Passíu- sálmarnir. Ákveðni grein- irinn markar sérstöðu verks- ins, annað slíkt er ekki til í heimi hér þótt það kallist á við annan kveðskap um píslarsög- una, eigi samhljóm í tónlist auk þess sem píslarsagan er ríkulega túlkuð í myndlist. En af hverju urðu sálm- arnir svo ríkjandi og vinsælir sem raun ber vitni? Margt ber þar að sama brunni. Þeir eru prýðilega ort- ir. Það fer ekki milli mála að Hall- grímur var stórskáld. Hann var ein- lægur trúmaður og það skilar sér í kveðskaparblænum, einlægni, traust og auðmjúkt trúarþel blasa við í hverjum sálmi; Kristur er ekki að- eins herra skáldsins, heldur og nán- asti vinur. Enn má nefna að Hall- grímur hnýtir í yfirvöld, valdhroka þeirra, dómgleði og spillingu, og all- ur almenningur gat tekið undir þá ádeilu. Óbeint lyfti annar kveð- skapur skáldsins undir sálmana. Hallgrímur orti mikið af verald- legum kveðskap af listrænum þrótti og tók þá oft upp í sig. Margir kunnu slitur úr verkum hans, jafnvel löng kvæði. Þjóðsagan gerði síðan úr honum píslarvott. Passíusálmarnir urðu bráðlifandi þáttur í þjóðlífinu og mildi þeirra stangaðist líklega á við hörku tím- ans, hvort sem var í sambúð við landið, kónginn og legáta hans eða strangtrúarboðskap kirkjunnar. Þeir voru lesnir á flestum heimilum á föstunni og fólk kunni marga sálma utanbókar og fegurstu erindin lágu öllum á tungu. Æðimargt varð samgróið tungumálinu og er það enn. En hvernig vegnar þessum kveðskap í samtímanum? Lestur Passíusálma er fastur liður í Ríkis- útvarpinu vikurnar fyrir páska og stutt er síðan gyðingleg stofnun mæltist til þess að þeim lestri yrði hætt því þar væri ómaklega veist að gyðingum. Margir hlusta á sálma- lesturinn og þjóðkunnir karlar frem- ur en konur hafa tekist á við verk- efnið, sem engan veginn er auðvelt. Sá sem þetta skrifar minnist þess að báðar ömmur hans hlustuðu með andakt á lestur sálmanna í útvarp- inu; Hallgrímur sálugi hét skáldið í munni þeirra. Eitt og annað hefur breyst á þeim 350 árum sem liðin eru síðan sálmarnir voru fyrst gefnir út, áherslur, tónfall, orðaforði – en þó er engum ljóðelskum manni vor- kunn að lesa sálmana þótt þeir geti sums staðar villst um myrkan staf. Brot úr sálmum eru í sálmabók kirkjunnar og í gullkornasöfnum úr bókmenntum. Valdir sálmar eru lesnir í skólum landsins. Annars hef- ur þjóðina að sumu leyti rekið frá kirkjunni og kannski líka daglegri trúrækni, og kveðskapur af trúar- legum toga er af þeim sökum ekki í seilingarhæð yngri kynslóða. Þó skal áréttað að Megas flutti tónlist sína við sálmana fyrir fullu húsi og féll hún í frjóa mold og Steinunn Jóhannesdóttir hefur ritað bækur um Hallgrím og Guðríði konu hans sem opna nútímamönnum glugga til að skyggnast um til fortíðar. Mörður Árnason hefur unnið stór- virki með þessari útgáfu. Hún er í alla staði frábær. Hann titlar sig leiðsögumann. Markmiðið er að flytja kveðskapinn frá 17. öld til hinnar 21. með traustum skýringum, en jafnframt að greiða lesanda leið úr nútíma aftur á öld skáldsins (bls. 643). Og í hverju er þá leiðsögnin fólgin? Undan hverjum sálmi fer texti úr Guðspjöllum og pistlum sem komu út á Hólum 1617 og Hallgrím- ur studdist við. Síðan kemur við- komandi sálmur prentaður eftir bestu handritum í samræmi við traustustu rannsóknir. Í öllum sálm- unum eru textavers sem byggjast á frásögnum helgirita af píslum Krists. Þau standa oftast í upphafi. Síðan leggur Hallgrímur út af text- anum og það er meginatriði hvers sálms og þar eru oft tiltekin leið- söguorð; hér má nefna huggun, dauði, hroki, ágirnd, synd o.s.frv. Í lokin er síðan bæn. Minnisstæðustu erindin eru í útleggingunni og bæna- versunum. Mörður tilgreinir við hvert vers hvaða parti það tilheyrir og útskýrir torræð orð, tekur saman línur og lýkur þeim upp fyrir les- anda. Óhjákvæmilega leiðir það til endurtekninga, en þær eru nauðsyn- legar því ekki lesa allir alla sálmana. Í lok hvers sálms er síðan saman dregin ítarleg skýring og túlkun, leiðsögustefin skilgreind, bragar- háttur skýrður og vísað milli sálma. Margar vísanir eru í þessum köflum á tiltekna staði í Biblíunni sem opna augu lesenda fyrir því hvað Hall- grímur var feikilega vel að sér í trúarlegum efnum, greinilega læs á nokkur tungumál. Eftir hverjum sálmi er síðan kafli eða kaflar um eitt og annað sem yndi er að lesa og tengist sálmunum, málsögunni, trúnni og túlkun á einstökum efnum. Allt er það með góðum brag. Hér má nefna kafla um málfar 17. aldar, frið- þægingarkenninguna, djöfulinn eins og hann birtist í sálmunum, marg- vísleg stílbrögð höfundar. Hér er vikið að náttúrusýn Hallgríms, fjallað um þann lága málshátt sem einkennir alla framsetningu í kvæð- unum, um framgöngu kvenna í sálm- unum, spáð í af hverju sálmarnir eru 50 og svo framvegis. Þetta er afar aðgengilegt efni og traustlega stílað hjá Merði og er hér einungis fátt eitt talið; með sínum hætti eru þessir kaflar góðir lyklar til að ljúka upp kveðskapnum og þeir veita lesanda sýn á það samfélag sem sálmarnir eru sprottnir úr. Ævi Hallgríms er sett á tímalínu og til hliðsjónar eru skorðaðir á tímakvarða viðburðir úr sögu Ís- lands, sögu mannkyns og frá öld „barokks og biblíu“. Alltaf má deila um hvaða atvik er ástæða til að velja og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Pétur Hrafn Árnason lagði Merði lið við þennan þátt og þegar lesið er lóð- rétt í töfluna birtist æviferill Hall- gríms í bjartara ljósi en ella; enginn er eyland í heimi nútímans og ekki heldur á 17. öld. Í lokin er tvöföld heimildaskrá. Ekki er vísað í heimildir í textaskýr- ingunum, en í fyrri heimildaskránni er rakið hvaða rit eða vefsíður liggja til grundvallar skýringum og saman- tekt á hverjum sálmi. Það fer vel á því. Síðan er hefðbundin heimilda- skrá. Loks er atriðisorðaskrá. Bókarhönnun Birnu Geirfinns- dóttur er stílhrein og einföld á ytra borði eins og efninu sómir. Erindi hvers sálms eru tölusett og þau fljóta vel á síðunum, ef svo má taka til orða, þrjú til fjögur á hverri síðu, stundum fleiri, og loftar vel milli þeirra; skýringar fyrir neðan hvert erindi með smækkuðu letri og rauð- lituð þau orð eða orðasambönd sem skýrð eru; rauðlituð orð og skáletur til áhersluauka annars staðar í texta. Á vinstri síðu á undan hverjum sálmi er viðeigandi kafli úr Guðspjöllum og pistlum frá 1617 prentaður með aukinni leturstærð, en á hægri síðu er númer sálms og heiti með rauðu letri. Allt saman einfalt og smekk- legt. Þessi útgáfa er tímamótaverk og leiðsögumaður, bókarhönnuður og forlag eiga mikinn heiður skilinn. Ef trú Hallgríms var rétt situr hann nú í sældum hjá Kristi herra sínum og vini – og sé raunin sú, þá er það mín trú að megi þeir líta í bók þá brosi þeir nú báðir breitt. Hallgrímur á háum tróni Sálmar Passíusálmarnir bbbbb Eftir Hallgrím Pétursson. Útgáfa og leiðsögn: Mörður Árnason. Bókarhönnun: Birna Geirfinnsdóttir. Crymogea 2015. 652 bls. SÖLVI SVEINSSON BÆKUR Morgunblaðið/Golli Leiðsögumaður „Mörður Árnason hefur unnið stórvirki með þessari út- gáfu. Hún er í alla staði frábær. Hann titlar sig leiðsögumann,“ segir í rýni. Ásjóna Hallgríms Mynd mín af Hallgrími nefnist sýning sem sýnd var í forkirkju Hallgrímskirkju árið 2006. Þar sýndu 27 íslenskir myndlistarmenn útfærslur sínar á hinni alkunnu mynd Hjalta Þorsteinssonar af Hallgrími Péturssyni. Meðal þeirra sem tóku þátt voru (frá v. til h.) Sigrún Eldjárn, Kristín Geirsdóttir, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Helgi Þorgils og Kristín Þorkelsdóttir. 80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 35.900,- Verð Kr. USG CNIP4 Yfirskápur 4 skúffur. Sterkur skápur með lás. 88.900,- Verð Kr. USG FIRP7B Verkfæraskápur 7 skúffur – 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir. 115.900,- Verð Kr. USG FIRP7B-FOAM Verkfæraskápur 7 skúffur með frauðefnisbökkum. 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett. Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar, skiptilykill, meitlar, sexkantar, rennimál, þjalir. 172 verkfæri í sterkum vagni með lás. 15.900,- Verð Kr. USG B5094M 1/2“ & 1/4" Topplyklasett 94 stk Skrall 72 tanna, framlengingar, hjörluliður, átaksskaft, djúpir- toppar, kertatoppar, bitajárn. USG GWB2045M 1/4“ Topplyklasett 45 stk Skrall 72 tanna, framlengingar, hjörluliður, átaksskaft, bitar, sexkantar, bitajárn, 4.990,- Verð Kr. USG GWB3029M 3/8“ Topplyklasett 29 stk Skrall 72 tanna, hjöruliður, djúpir & grunnirtoppar, kertatoppar, framlengingar. 7.990,- Verð Kr. Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899 Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.