Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Side 48

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Side 48
Stórmerki undir Eyjafjöllum Frásagnir af einbúanum Ásólfi í Landnámabók er að finna merkilega frásögn af kristnum kraftaverkamanni. Þessi frásögn er í báðum helstu gerðum Landnámu þ.e. Sturlubók og Hauksbók og hefur Haukur umtalsverðar viðbætur fram yfir frásögn Sturlu.9 Svo skemmtilega vill til, að frásögnina er einnig að finna í nokkuð breyttri mynd í samsteypuritinu Ólafs sögu Tryggvasonar, frá byrjun 14. aldar. Það hefur valdið mönnum ómældum heilabrotum hvernig beri að skilji þessi tengsl.10 Það sem hér er forvitnilegt að skoða, er hvort sjá megi merki um kristilega ritskoðun eða bragarbót. Eins og fyrr er nefnt studdist sögusmiðurinn guðhræddi við Sturlugerð Landnámu auk margra annarra rita. Ekki er ólíklegt að hann hafi ennfremur stuðst við aðra gerð af Landnámu og að því ýjar Ólafur Halldórsson á einum stað. Þar segir hann: „Að sjálfsögðu getur verið að sögusmiðurinn hafi þekkt fleiri gerðir Landnámu en Sturlubók...“n Mér finnst nærtækt að álykta að notast hafi verið við hina glötuðu Styrmisbók. Skömmu áður en hinn atorkusami ritari Ólafssögunnar miklu settist við skriftir var Haukur Erlendsson að rita bók um landnám á íslandi „epter þeiri bók sem ritad hafdi herra Sturla logmadr hinn frodazti madr ok eptir þeiri bok annarri er ritad hafdi Styrmir hinn fródi.“(H.354). Það er því Ijóst að á þeim tíma hafa þessar bækur fylgst að. I frásögninni um Asólf í Ólafs sögunni, má sjá nokkuð af sértexta Hauksbókar, sem ætla má að eigi uppruna sinn frá Styrmi. Ef þessar frásagnir eru bornar saman má glöggt sjá tilhneigingar ritara og ákveðna þróun í textanum. Hér ætla ég að taka til umræðu frásögn af kraftaverkamanninum Ásólfi, sem er að finna í tveimur gerðum Landnámu þ.e. Hauksbók og Sturlubók og svo jafnframt í Ólafs sögu samsteypunni. Munurinn á milli þessara texta er töluverður og því áhugavert að skoða hugsanlega þróun í texta. í Sturlubók er að finna sögulega frásögn af hinum írska kraftaverkamanni Ásólfi. Þar segir af einsetu hans undir Eyjafjöllum og gnótt fiskjar í lækjum og ám. Það er sérstaklega tekið fram að hann „villdi ekki eiga vid heidna menn 9 Þriðja miðaldagerð Landnámu hin svokallaða Melabók kemur hér ekkert við sögu. Hún er hér eingöngu varðveitt í samsteypugerðinni Þórðarbók og sýnir engin veruleg frávik. Sjá Skarðsárbók 16-18 nm. 10 Flestir hafa þó hafnað beinum tengslum við Landnámu t.d. segir Jakob Benediktsson „hún er frábrugðin gerðinni í H um margt og ekki úr Landn. komin.“(1968, bls.63nm). 11 Ólafur Halldórsson 2000, bls.32. 46 j
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.