Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Page 51

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Page 51
þeir tveir Styrmir og Grímur voru samtímamenn og sömuleiðis kunnugir hvorir öðrum er ekki fjarstætt að ætla, að Styrmir hafi fengið sérstakar upplýsingar um Asólf frá Grími þessum. Enn sterkari verður grunurinn þegar þess er gætt, að Grímur var áhugamaður um jarteiknir og greinilega heittrúaður sjálfur21. Hér er því varla ástæða til annars en taka orð Hauks sjálfs bókstaflega, þ.e. að hann hafi hér haft úr Styrmisbók „sem framar greindi.“22(H.354). I Sturlubók og Hauksbók er þessi frásögn af Asólfi með ákveðnum helgiblæ. Bent hefur verið á, að kraftaverk í sambandi við óvænta fiskigegnd ám og lækjum megi beinlínis tengja við ýmsa írska dýrlinga. Judith Jesch tekur svo til orða, að kraftaverkið sé „almost a hallmark of Irish saints"23 og bendir þar á Columcille, og Patrek sérstaklega. Það er athyglisvert að þeir voru báðir trúboðsdýrlingar og það er einnig þekkt í frásögn af Columcille að hann fór í 12 manna hópi til trúboðsstarfa á Skotlandi.24 Það er því óhætt að fullyrða, að báðar frásagnirnar bera írsk einkenni þó frásögn Hauksbókar bæti hér um betur. Því hefur verið haldið fram að Hauki hafi verið sérstaklega í mun að telja upp allt írskt, en það held ég sé orðum aukið.25 Ekki er hægt að segja að dæmin, sem Helgi Guðmundsson rekur skipulega séu tiltakanlega mörg og fullt eins væri hægt að hugsa sér að þessi atriði vitnuðu einmitt um áhuga- mál Styrmis. Ekki ætla ég að fara út í þá sálma hér en benda á eitt atriði sem gefur ótvírætt til kynna írskættuð áhugamál Styrmis. Þó Landnámutexti Styrmis sé ekki varðveittur nema í samsteypuriti Hauks Erlendssonar vill 21 Hann er nefndur í jarteinabók Þorláks helga, hann heitir þar á Þorlák byskup sem bregst vel við, síðan segir „sagði Grímr sjálfr þessa jartein Páli byskupi, ok virðu allir mikils þessa jartein þeir er frá heyrðu sagt.“Jarteinabók. ,bls. 104. 22 Hér vísa ég til alþekktra orða Hauks Erlendssonar um verklag sitt þ.e. að hann hafi notast við tvær gerðir af Landnámu þ.e. Stulubók og Styrmisbók. 23 Jesch, Judith 1985,bls.516. 24 Kálund nefnir þetta og vísar til A.D. Jörgensen í „Den nord. Kirkes Gundlæggelse“ bls. 212- 213(Kálund I, bls. 271nm.). A þetta bendir einnig Judith Jesch 1985, bls.516, en frásagnir af þessum írsku dýrlingum er að finna í Tripartie Life of Saint Patrick I-II. 1887. (Ed. Whitley Stokes, Rerm Briannicarum medii ævi Scriptorer 89.) og Admonan 's Life of Columba 1961, (Eds. Alan Orr Anderson and Marjorie Ogilvie Anderson.). Jakob Benediktsson minnist einnig á þetta einkenni skoskra trúboða (1968, bls. 62nm) en vísar þar til Kálunds. 25 Jón Jóhannesson benti íýrstur á þetta (1941, bls.189) Helgi Guðmundsson (1967, bls. 73-76) gerði síðan skipulega úttekt á þessum mun. 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.