Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Page 68

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Page 68
herra Guðmundi Arasyni bréf, þar sem hann segir frá vitrun hennar. Bréfið er varðveitt í Guðmundar sögu og þar segir: „minnist þér, heilagur faðir, hvað vér töluðum af líkamlegri upprisu sællar Guðs móður, hvers eg minnumst í þessu mínu bréfi, skrifandi yður það letur er vottar hversu gerst hefir með vitran hennar upprisu.“5 Frásögninni lýkur með orðunum: „ Leiðist það af vináttu vorrar frú og herra Guðmundar að drottningin eignast þvílíkan part í hans lífssögu“.6 Þannig segir 14. aldar höfundurinn Arngrímur Brandsson frá vitrun Elísabetar: Fyrrnefnd systir Elísabet hafði ellifu ára gömul í klaustur gengið og Iifði svo dýrlegu lífi sem allsvaldandi Guð og hans blessaða móðir virðust bæði vitni um bera, því að þann tíma sem þessi nunna hafði lifað í klaustri önnur ellifu ár, hafandi tvo vetur og tuttugu, auðgaði guð hana svo óendalegri huggan, að heilög Guðs móðir birtist henni oftlega, talandi með henni ýmislegar greinir og skynsemdir heilagra ritninga. Hér með birtir henni enn oftlegar einn guðs engill, sá er vandist hana að læra með einkanlegri speki. Kenndi hún þenna engil jafnan hinn sama til sín komanda sem sannan vin og kæran félaga. Og er hún blómgast með þvílíkum gjöfúm, stundar hún því framar að líka sem best Guði í öllum hlutum, geymandi sitt lítillæti með góðum verkum. Og það gerist, sfðan hún skilur að vor frú, Guðs móðir María, virðist hennar oftlega að vitja, að hún segir leynilega einum andlegum föður sínum þar í klaustrinu, hver henni gefúr það ráð að spyrja nokkurs drottninguna þá er hún birtist henni næsta sinn. Systirin segist þess spyrja vilja sem hinn gamli maður vill henni ráð til gefa. Hann segir: Það bið eg, dóttir mín, að þú spyrjir hana hvort hún hafi af dauða risið og lifi nú í Guði bæði með önd og líkama.7 Það líður nokkur tími og María birtist nokkrum sinnum þar til hún álítur að Elísabet sé orðin nógu verðug til þess að fá svar við þessari stóru spurn- ingu. Grípum nú aftur niður í frásögn Arngríms, þar sem segir frá veik- indum Elísabetar á sjálfum himnafarardeginum 15. ágúst: En þann tíma sem háleit þjónusta gerist á þeim blessaða degi, líður yfir hana þungi eða ómegin, og því næst sér hún mjög fjarri eina steinþró. I þrónni lítur hún liggja einn kvenlegan líkama. Alla vega umbergis stóðu heimamenn himinríkis, bjartir Guðs englar með skínanda Ijósi skærrar birti. Og eftir lítinn tíma rís þessi upp með dýrð mikilli er áður lá í gröfinni.8 5 Biskupa sögur. Kaupmannahöfn 1858 - 1878. II, 151. 6 Biskupa sögur II, 155. 7 Biskupa sögur II, 151. 8 Biskupa sögur II, 152. 66
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.