Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Page 95

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Page 95
og Ferðamann (Hauströkkrið...).33 Þar með fær ópið úr djúpinu sérstaka merkingu og tengist þjáningu Krists. Hin ótvíræða vísun ljóðsins felst aftur á móti í titlinum sem skírskotar til upphafs 130. sálms Davíðs: Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn, Drottinn, heyr raust mína...34 Það er því ljóst að þetta ljóð vísar til ýmissa átta, bæði inn í kveðskap Snorra sjálfs og út úr honum. Vísunin sjálf er þó „innri“ vísun sem hverfist öll um ópið og er borin uppi af samlíðan með hinum örvæntingarfulla. Með vísunum til bæði Gamla og Nýja testamentisins (óbeint gegnum Getsemane-ljóðin) tengist „Op“ Snorra öðru eftirlátnu ljóði með afdrátt- arlausri vísun til Fyrstu Mósebókar en það er Drottinn á gangi. I fyrri hlut- anum er vísað til senu úr Fyrstu Mósebók í kjölfar syndafallsins: En er þau heyrðu til Drottins Guðs, sem var á gangi í aldingarðinum í kveldsvalanum, þá reyndi maðurinn og kona hans að fela sig fyrir Drottni Guði millum trjánna í aldingarðinum.35 I Genesis er það þó skömm sem hræðir manninn frá augliti Guðs en sekt hans í Ijóðinu.36 Um miðbik ljóðsins verða athyglisverð hvörf, vísunin beinist út á við, að stöðu mannkyns í útlegðinni. Ljóðmælandi spyr hvort nú sé dagur frelsunarinnar loks upp runninn, þó ekki sem lausnardagur er geri manninum kleift að snúa aftur heim eða til upprunalegs ástands heldur 33 Hjalti Hugason 2007: 161-164. 34 S1 130. 1. 35 1M 3. 8. 36 1. Mósebók endurspeglar þann skilning að viðbrögð mannsins við fallinu og þeirri meðvitund er það gaf honum um nekt sína hafi ekki verið andleg tilfinning fyrir eða vitsmunleg glíma við sekt sína heldur frumlæg, líkamleg tilfinning fyrir skömm eða blygðun. Vitundin um sektina kemur fyrst til sögunnar samkvæmt Genesis við hina ágengu spurningu Drottins: Hver hefir sagt þér að þú værir nakinn? 1M 3. 11. von Rad 1967: 73-74. Michelsen 1972: 65-66. Skömm og sekt eru nátengd fyrirbæri. Til dæmis fylgir blygðun samviskubiti og sektarkennd. A þessu tvennu er þó sá meginmunur að sekt/sektarkennd beinist ætíð að einhverju sem eintaklingur hefur gert. Blygðun eða skömm tengist aftur á móti því hvern eða hvernig einstaklingur telur sig vera. Greint hefur verið á milli þess sem kallað er sektarmenning og skammar-/blygðunarmenning. Lúthersk menning Norður-Evrópu er þá talin falla undir fyrrnefnda flokkinn en Biblían, einkum Gamla testamentið, undir hinn síðari. Getur það verið hluti af skýringunni á því að Snorri Hjartarson dregur fram sekt mannsins í ljóði sínu þar sem Genesis leggur áherslu á skömmina og blygðunarsemina. Cullberg Weston 2008: 86-91, 203-204, 218
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.