Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Side 105

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Side 105
og sjálfsrannsókn manna.3 Jón Helgason biskup hélt fram í kirkjusögu sinni að hin miklu skaut í kenningu Vídalíns væri skelfmg syndarinnar og dýrð náðarinnar og því væri nauðsyn á afturhvarfi mannsins. Trúin hefði verið aðalatriði fyrir Vídalín, en hann hefði ekki gert kenningu sem slíka að höfuðmáli, heldur hvernig hún birtist í lífi manna.4 Þá taldi Jón Helgason að kenning Vídalíns væri ekki kristsmiðlæg. Sá eini sem ritað hefur heila bók um Vídalínspostillu er Arne Möller, danskur fræðimaður. Hann fullyrti að trúarhugtak Vídalíns hafi fyrst og fremst verið vitsmunalegt. Jón Vídalín hafi lagt áherslu á að menn ættu að þekkja rétta útlistun boðorðanna. Þessi trúartúikun hafi leitt til þess að Vídalín hafi fallið aftur til kaþólsku og prestaáherslu, með lögmálsskilningi á sakramentum, skriftum, eiðum og iðrun.5 Samfara þessari trúartúlkun hafi verið smásmuguleg iðrunaráhersla sem hafi birst í nákvæmum siðferðisboðum, kirkju- og samfélags-lífi manna. Menn eigi að þekkja nákvæmlega stærð synda sinna, og iðrun skuli vera í hlutfallssamhengi við syndirnar. Túlkun Vídalíns á altarissakramenti og iðrunarferli undir vökulli stjórn prests sé tengt siðferði. Möller komst að þeirri skoðun að í stað trúar héldi Vídalín fram vitsmunalegri hlýðni og réttri kenningu. I stað þroska manna komi hlýðniáhersla og rétt athöfn jafnvel á þeim sviðum sem frelsi eigi að ríkja, t.d. í safnaðarlífi. Möller sagði að Vídalín sneiði hjá raunverulegri trú og kirkjulífi, en hafni í lögmálshyggju á flestum sviðum. Ahersla Jóns Vídalíns hafi ekki verið á trúarinnileika, heldur á rétta hegðun, praxis pietatis. Safnaðarlíf verði því útundan. Þá sé kirkjutúlkun Vídalíns á blindgötu. f stað trúar safnaðar sé öll áhersla á prestinn og stofnun kirkjunnar.6 Þegar rit Arne Möller er skoðað og kannað hversu vel það rímar við efni postillunnar læðist að sá grunur að Möller hafi mislesið ýmislegt. Af bók Möller er ljóst að hann hafði einkum áhuga á hvaða rit Jón Vídalín notaði við samningu postillunnar. Með því að greina ritabakgrunn eða 3 Páll Þorleifsson, „Meistari Jón og postillan,” XVIII-XXIX. 4 Jón Helgason, Kristnisaga íslands: Frd Öndverðu til Vorra Tima, II, Reykjavík: Félagsprentsmiðja, 1927, 222ff. 5 Sjá Arne Möller,/o« Vidalín oghanspostill en biografisk og 1 itterærkritisk undersogelse. Köbenhavn: Gyldendalske Boghandel, 1928, 360íf. 6 Möller, 350-77, 377, 369. 103
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.