Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1971, Síða 16
þrúðar Kristín Eiríksdóttir frá Bót, Magnússonar, en móðir Krist-
ínar ÞrúSur, síðari kona Halls prests Högnasonar á Kirkjubæ og
fyrri konu Eiríks í Bót, en hún var talin náfrænka Guttorms á Brú,
Jónssonar er var dótturdóttursonur Þorsteins Jökuls.
HaustiS 1882 tekur Jónas sig til og gengur á landbúnaSarháskóla
í Kaupmannahöfn, en felur konu sinni meS ársgamlan dreng forsjá
búsins. Yar GuSlaug hin mesta forstands- og skörungskona og fór
þetta vel úr hendi. AS loknu þessu námi héldu þau Jónas og GuSlaug
áfram búi á EiríksstöSum. Var þá veriS aS stofna búnaSarskóla á
EiSum, og var hugur manna heill og óskiptur til búskapar og trúin
á framtíS þjóSarinnar var bundin landbúnaSi. En EiríksstaSir voru
tæplega búnir aS ná sér eftir öskuna og þröngt gerSist þar um tvo
stórhuga bændur. Tók Jónas til ábúSar áriS 1885 KetilsstaSi í
HlíS og bjó þar unz hann gerSist skólastjóri á EiSum 1888. Þar meS
varS þessi bóndi frá EiríksstöSum einn þýSingarmesti maSur aust-
firzkrar framtíSar.
Gunnlaugur og Steinunn
Þau hjón Gunnlaugur og Steinunn eignuSust tvo drengi, Yilhjálm
Jón og Jón Vilhjálm. Gunnlaugur tók sér ættarnafniS Snædal, af
Jökuldal, og báru þaS synir hans Vilhjálmur og Jón. En Gunnlaugur
varS ekki langlífur. Hann dó 1888.
Nú hafSi veriS gott aS búa á Eiríksstööum. LandgæSin urSu ó-
skiljanlega mikil eftir gosiö, aS askan lagöist yfir landiS, fjárverS
var hátt, sauöasalan til Bretlands. HarSindin sem þá gengu yfir
landiö geröu Jökuldælingum ekki neitt illt. Sauöamennirnir stóöu
yfir fulloröna fénu, og þeir voru ódrepandi og frægir af sínum hátt-
um. Þeir stútfylltu sig af feitu kjöti, og var oft rómaS af Jökuldal
hversu húsfreyjur skömmtuöu sauSamönnum. Gunnlaugur átti því
góSa jörS og gott bú þegar hann dó. Steinunn hélt áfram búskapn-
um, og ráSsmaSur hennar geröist Einar Eiríksson frá Hafrafelli,
smiöur og búfræSingur. Gengu þau Steinunn og Einar í hjónaband
um 1890. Einar var af ÁsunnarstaSaætt eins og Jónas Eiríksson í
föSurætt, en í móöurætt var hann kominn af Jóni ættfræöingi á
SkjöldólfsstöSum. HöfSu ættfeSur hans ekki búiS á Jökuldal síSan
14
MULAÞING