Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1971, Page 21
BENEDIKT gíslason frá hofteigi
Síðasta lestaferð yfir Steinvarar-
tungulieiði
Júlíus Jónasson segir hér frá síðustu lestaferðinni, sem farin
mun hafa verið yfir SteinvarartunguheiSi milli VopnafjarSar og
efra Jökuldals.
Júlíus Jónasson var f. 26. nóv. 1899 í Fagradal á Hólsfjöllum.
Hann fluttist á barnsaldri að Ytra-Nípi í Vopnafirði, þar sem hann
missti móður sína árið 1913. Jónas faðir hans var sonur Kristjáns
ríka í Hólsseli á Fjöllum og víðar, en móðir hans, Sigríður Jóhann-
esdóttir, eyfirsk að uppruna, og var hún síðari kona Jónasar. Voru
þeirra börn 5 bræður, og var Júlíus elztur. Leið Jónasar og flestra
drengjanna lá aftur upp á Fjöllin, og fór Júlíus í Möðrudal og
dvaldist þar um skeið og varð brátt hinn mesti þrekmaður, og þótti
Júlli í Möðrudal vera maður fyrir sínu, er hann átti erindi til
Vopnafjarðar, sem frekast var á lestum vor og haust. I þeim ferðum
var stundum við nokkuð að etja. Fyrir utan ágætt þrek var Júlíus
kappsmaður mikill, trúr og skyldurækinn og merkur lil orðs og æðis.
Slíkir þurfa sendimenn að vera. I hríðum villtist hann aldrei, hélt
út hvert sem langræðiö var án þess að láta á sjá eða vera ekki jafn-
góður á eftir. Frá Möðrudal lá leið Júlíusar ofan í Dalinn. Eg
hitti hann heimilisfastan á Hákonarstöðum 1927. Eftir 1933 fór
Júlíus út í Tunguhrepp, að Vífilsstöðum, og gekk að eiga dóttur
Ásmundar bónda þar, Þórarinssonar, Jónínu að nafni. Þau reistu
brátt ný'býli í Vífilsstaðalandi og kölluðu Vífilsnes. Gegndi Júlíus
verkstjórastörfum í vegagerð mörg ár, meðan hann bjó í Vífils-
nesi. Þau hjón fluttu til Reykjavíkur eftir 1953 og reistu hús, Háa-
gerði 59.
MÚLAÞING
19