Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1971, Page 77
Iiið fyrsta verða má rannsóknir, svo ítarlegar og nákvæmar sem frek-
ast er unnt, útaf nefndri kæru og öðrum fylgiskj ölum þessa bréfs“.
Fylgiskjölin voru: 1. Kæruskjal frá ýmsum sóknarmönnum í Hofs-
og Hálssóknum. 2. Bréf Jónasar P. Hallgrímssonar prófasts dags. 14.
maí 1889. 3. Umsögn séra Stefáns Sigfússonar. 4. Eftirrit af vottorð-
um sem séra Stefán lét fylgja.
Nú leið að vísu fram á haustið, en árið 1889 föstudaginn 18. og
laugardaginn 19. október var enn settur réttur í Suður-Múlasýslu á
Djúpavogi af sýslumanni Suður-Múlasýslu. Var þá fram haldið prófi
um meint hneykslanlegt framferði séra Stefáns. Viðstaddir voru í
réttinum séra Stefán og Stefán Guðmundsson faktor.
Mætti þá fyrir réttinum Þórunn Eiríksdóttir veitingakona í Lundi.
Hún er 41 árs gömul. Hennar framburður er þannig: Séra Stefán
Sigfússon gisti þar um nóttina og hafði verið mikið drukkinn. En
hann hafði aldrei sýnt af sér neinn ófrið nema eina nótt. Þegar
Mannauppboðið var haldið var þar mikið um ryskingar, og þar voru
útlendir og innlendir menn meira og minna drukknir, og urðu rysk-
ingar, og var prestur í þeirri þvögu. En hún veit ekki hvort prestur
var þátttakandi í áflogunum. Hún vissi bara að prestur tapaði þá
gleraugunum, þetta kvöld. Veit ekki hvernig hann missti þau. Hún
kannast við að prestur hafi verið svo drukkinn þar, að það hafi
þurft að hjálpa honum í rúmið. Þetta hafi verið á Mannauppboðinu,
og nú nýlega hafi hann farið að sofa drukkinn uppi í hennar her-
bergi, en muni hafa oltið niður af sófanum og legið á gólfinu. Fór
í rúmið þegar búið var að vekja hann. Fleiri upplýsingar getur hún
ekki gefið.
Þá mætir fyrir rétti Antoníus á Hamri Sigurðsson, 63 ára. Hann
getur ekki borið á móti því að prestur hafi komið á sitt heimili
drukkinn. En hann hafi ekki sýnt af sér neinn ófrið nema einu sinni,
þegar hann kom frá jarðarför Guðrúnar Markúsdóttur. Var þá mikið
drukkinn og fór að skamma vitnið.
(Séra Stefáni mun hafa verið í nöp við Antoníus vegna þátttöku
hans í ryskingunum í Borgargerði, er Antoníus lagði hönd að því að
setja prest í bönd).
MULAÞING
75