Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1971, Page 83
ÁRMANN HALLDÓRSSON
Hallfreðarstaðir,
bæjarhús, jörð og búendur
„Á Hallfreðarstöðum var bara ein blá,
einn háls og einn Páll.“
Eiríkur Stejánsson.
Satt að segja ætlaði ég Eiríki Stefánssyni kennara frá Hallfreðarstöðum
að skrifa þessa grein um gamla bæinn sem hann gjörþekkti og gekk um á
þriðja áratug, 1911—1933. En þegar hann bar það blákalt fram sá orðheppni
og fróði maður, að sér væri með öllu fyrirmunað að koma hugsunum sínum á
pappír svo að sæmilega færi á brá mér svo, að ég samþykkti að reyna að hnoða
saman þeirri vitneskju sem hann og fleiri létu mér í té um þessi bæjarhús.
Eiríkur var hins vegar fús að grafast fyrir um sögu bæjarins og leiða mig við
hönd sér um teikninguna af þessu völundarhúsi og fræða um ýmislegt varðandi
jörðina. Teikninguna höfðu þeir látið gera fóstbræður, Eiríkur og Hallfreðar-
staðabræður Vigfús og Elís Eiríkssynir, og sömuleiðis fengu þeir gerða myr.d-
ina, er Matthías Sigurðsson málaði eftir gamalli en fremur óskýrri Ijósmynd
sem Helga Kalman, sonardóttir Páls Ólafssonar, tók sumarið 1928. Síðan sögðu
þeir Eiríkur, Vigfús og Elís mér frá flestu því sem hér er skráð um jörð og
bæjarhús, Eiríkur hafði upp á óprentuðum bréfum frá Páli Ólafssyni á Lands-
bókasafni og þeir bræður gengu með mér um jörðina, sögðu frá og sýndu.
Hróarstunga er sú langa og breiða spilda sem liggur milli Jökuls-
ár á Dal og Lagarfljóts alla leið innan úr Bótarheiði og frá Sand-
vatni og út af Héraðsflóa. Hún er um 50 km löng og breiddin um
Hallfreðarstaði um 9 km. Mörkin við Fell fylgja Rangá að mestu, frá
ósnum utan við Skógargerði og inn í Sandavatn, og mörk við Jökul-
dal eru á vatnaskilum Bótar- og Giljaheiðar og niður í Jökulsá nokk-
uð innan við brúna.
Sunnudag seint á hausti 1970 héldum við Vigfús Eiríksson út og
mulaþing - c
81