Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1971, Blaðsíða 84
Gamli bœrinn á Hallfreðarstöðum. — Húsin frá vinstri: Stafn smiðju sést yfir
hestaréttina, skemmuþil, skáli, salur (Suðurstofa á uppdr.) og salloft yfir, út-
stofa, hestakofi og fjós. Hlóðareldhús ber vfir hestakofa. Framar hlaðið, rófu-
garður. Fremst á myndinni t. v. lækurinn með göngubrú. — Myndin er tekin af
málverki eftir Matthías Sigfússon, en það er málað eftir Ijósmynd er Helga
Kalman tók 1928.
norður Tunguveginn milli brúnna. Við höfðum litla viðdvöl utan
undir Heiðarenda skömmu áður en halla fer niður af Brúarhálsi
og lituðumst um. Tungan blasti við. Lágheiðin austan og norðan
lægðarinnar sem skilur hana frá Heiðinni, líkust úfnum sjó, ásar
sárir á hryggnum af flengingum veðra, óralöng mýrarsund vaxin
sölnuðu grasi, haustlitir á víði og fjalldrapa, Sprekahlíð, Tang-
holt, Selás, Hundsvatn, Mjóavatn. Lengst í norðaustri grámaði í
Skerslin utan við Kirkjubæ, en utar var láglendið hulið mósku.
Það andaði svölu á norðan, ský á reki um loft, heið á milli og kvik-
andi haustbirta yfir. Bæirnir í Lágheiðinni sáust ekki eða mjög ó-
ljóst, enda lítt áberandi, Fremrasel, Brekkusel, og sá fyrrnefndi
raunar í eyði.
Við ókum út með Jöklu framhjá Blöndugerði, Stóra- og Litla-
Bakka, en þar þverbeygir vegurinn austur í Hallfreðarstaði, og nú
82 MÚLAÞING