Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1971, Síða 115
í vinnukonu þar eð hann var vinnumaður. Þau bjuggu seinna í
Hlíðarhúsum.
Næstu þrjú ár vantar í sóknarmannataliS, en 1836 er orðiS tví-
býli á HallfreSarstöðum. GuSmundur Jónsson nú orðinn hálfsjö-
tugur og býr með 29 ára bústýru, Ragnhildi Vigfúsdóttur, en á
hinu búinu áðurnefndur GuSmundur Bjarnason frá Ekru er kvænt-
ist Sigríði dóttur nafna síns, en hefur misst hana, því að kona hans
er Þórdís Þorsteinsdóttir ættuð úr Þingeyjarsýslu. Hjá honum er
m. a. Jón bróðir hans, ekkjumaður með tvö börn, 18 alls á báðum
búum.
Þeir nafnar bjuggu á Hallfreðarstöðum allt fram til 1845 með
16 til 20 manns í heimili alls. Þá er GuSmundur Jónsson kominn á
áttræðisaldur og hverfur úr fólkstali Hallfreðarstaða. „Hann var
bezti bóndi og ágætismaður,“ segir í Ættum Austfirðinga.
Af Þórunni Pálsdóttur er kunn saga. Hún giftist 1841 Halldóri
stúdent Sigfússyni pr. Arnasonar og Sigríðar Einarsdóttur vinnu-
konu. Halldór var ávöxtur ástar sem ekki féll í kram ráðríkra ætt-
hrokaforeldra Sigfúsar prests Arnasonar sem að sögn leit aldrei
glaðan dag eftir að Sigríði var frá honum hrundið, en vonandi hefur
nú almannarómurinn ýkt þetta eitthvað því að hann er hrikalega
skáldhneigður, og nokkuð lyginn.
Arið 1846 flytjast þau Halldór og Þórunn í Hallfreðarstaði saman
gefin fimm árum fyrr með syni tvo unga, Benedikt fj ögra og Stefán
eins árs. Með þeim er „jómfrú“ Þórdís Árnadóttir ógift föðursystir
Halldórs og þrjú hjú. Þar er enn á öðru búi Guðmundur Bjarna-
son, og eru þá heimilismenn 22.
Þetta sama ár drukknar Halldór á sundreið undir Lagarfossi á
sama stað og faðir hans 24 árum fyrr, og var hann þá nýbúinn að
fá veitingu fyrir Hofteigi. Þórunn bjó áfram og ævilangt á Hall-
freðarstöðum. Guðmundur Bjarnason bjó þar til 1858 og er þá
kvæntur í þriðja sinn, Guðrúnu Eiríksdóttur frá Vífilsstöðum. Hún
var bróðurdóttir hans. Guðmundur átti tvö börn með Margréti
fyrstu konu sinni, missti bæði ung, en engin með hinum. „Guðmund-
ur var vænn maður og góður bóndi,“ segir séra Einar í Ættunum.
Þórunn bjó nú nokkur ár með ráðsmanni er hét Guðmundur
Jónsson. Árið 1856 vantar í manntalið, en 1857 er Guðmundur,
MULAÞING
111