Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Blaðsíða 130
Múlaþing
Carl Guðmundsson
var sótt þaðan á öldum áður yfir á
Fáskrúðsfjörð og ennfremur á Djúpavog en
um þetta munu heimildir af skornum
skammti, eins og á svo mörgum öðrum
sviðum er varða sögu byggðarlagsins.
Það hlýtur því að hafa verið mikil
lyftistöng fyrir íbúa Stöðvarfjarðar, þegar
ung hjón ákváðu undir lok seinustu aldar að
flytjast þangað búferlum frá Fáskrúðsfirði í
því skyni að koma á fót verzlun og öðrum
atvinnurekstri, svo sem útgerð. Þetta voru
Carl J. Guðmundsson f. 1861 og Petra A.
Jónsdóttir f. 1866.
Formlegt verzlunarleyfi Carli til handa
var gefið út 1896 og telst hann fyrsti
kaupmaður á Stöðvarfirði. Þetta sama ár
byggðu þau hjón heimili sitt og verzl-
unarhús, er nefndist Carlshús og stóð á
128
sjávarbakka, ofan við uppsátur á þeim
slóðum sem hafnarmannvirki staðarins er nú
að finna. Þetta hús stóð fram eftir seinasta
áratug, og var þar m.a. til húsa starfsemi
Kaupfélags Stöðfirðinga til fjölda ára.
Þau Carl og Petra áttu nokkur böm áður
en þau fluttu á Stöðvarfjörð, en eignuðust
einnig böm eftir að þau settust þar að. Elzt
var Anna, sem hóf búskap á Heyklifi á
Kambanesi, en flutti síðar með Jóhanni Páls-
syni, manni sínum, í íbúarhúsið Þrastarhól,
sem stendur þar enn, að vísu í breyttri mynd.
Anna var fyrsti símstöðvarstjóri á
Stöðvarfirði.
Andrés, var næstelztur. Flutti hann síðar
til Reykjavíkur og bjó þar með konu sinni,
Vilfríði Bjamadóttur. Stefanía var næst í
röðinni. Hún bjó síðar á Eiríksstöðum á
Jökuldal með manni, sínum Jóni Snædal.
Þar á eftir kom Þóra, sem gift var Gunnari
Emilssyni og bjuggu þau síðar m.a. í
Keflavík. Stefán kom þar á eftir. Var hann
kvæntur Nönnu Guðmundsdóttur. Þegar
hann hafði aldur til hafði hann m.a. búrekstur
föður síns með höndum, sem þó mun hafa
verið í smærri stíl en útgerðin. Seinna bjó
Stefán á Hóli og gerðist sjálfur kaupmaður í
þorpinu. Var verzlun hans í daglegu tali
nefnd Stebbabúð. Einnig var hann póst-
meistari þar til margra ára. Níels var næstur í
röð systkinanna og bjó hann síðar í
Reykjavík. Kona hans var Kristjana
Amadóttir. Dóttirin Klara þótti mjög mann-
vænleg, en dó ung. Hið sama gildir um
tvíburana Pétur og Carl, en sá síðamefndi
lifði þó til 14 ára aldurs.
Þau Carl og Petra ólu upp tvær fóstur-
dætur, Valgerði Lilliendahl, gift Lárusi
Jónssyni, en þau bjuggu m.a. í Grindavík.
Hin var Guðrún Valdimarsdóttir, gift Stefáni
Sigurðssyni. Þau bjuggu í Reykjavík.
Eins og áður segir voru umsvif Carls ekki
eingöngu bundin við verzlunarrekstur. Hann
X