Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 144

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 144
Múlaþing eru syðstu drög hennar kringum Þrælaháls 8-10 km norðan Snæfells (sjá kort). Spildan milli ánna tveggja og Jöklu nefnist Rani og verður aðalsögusvið þáttarins. Eyvindarfjöll eru í innanverðum Rana og skammt sunnan þeirra liggur Aðalbóls- vegur frá Kleif í Fljótsdal til Hrafnkelsdals. Bessastaðavegur liggur að Eyvindará rétt norðan Eyvindarfjalla og var aðalleið til afréttarinnar Rana úr Fljótsdal og til býl- anna þar síðar. Rani er allvel gróin afrétt, einkum meðfram Hölkná og frá henni út að Sauðá, sem er lítil þverá og fellur í Jöklu um miðjan Rana. Utan Sauðár verður landið brattara og endar í Ranasporði, þar sem Eyvindará fellur í Jöklu. Og rétt innan við Sauðá reisti Eiríkur Eiríksson býli sitt vorið 1807. Verður næst vikið að fjölskyldu hans. Tölur í svigum eru númer viðkomandi persóna í Ættum Austfirðinga sem verða skammstafaðar Æ. Au. Við númer 2462 í Æ. Au. er sagt að hjón, sem hétu Vermundur og Kvenborg hafi verið fengin í hallæri sunnan af landi til að verja húsbroti á Brú á Jökuldal. Þau áttu dóttur, sem hét Margrét og ílengdust þau eystra. Hvað sem hæft er í sögninni, þá er víst að mæðgurnar Kvenborg Jónsdóttir f. um 1650 og Margrét Vermundsdóttir, f. um 1695 voru í Fáskrúðsfirði um 1703. Margrét giftist Runólfi Þorsteinssyni, er bjó í Görð- um í Fljótsdal 1723 en síðar á Kleif. Son áttu þau, Eirík að nafni og bjó hann að Egilsstöðum í Fljótsdal 1762 og er Margrét þar hjá honum. Eiríkur Runólfsson bjó síðar að Brú. Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Solveig (2053) Jónsdóttir frá Hákonarstöðum á Dal. Dóttir þeirra hét Sigríður (2054) f. 1763 og bjó síðar með manni sínum Olafi Jónssyni á Kleif. Verður getið síðar. Síðari kona Eiríks Runólfssonar hét Vilborg Pálsdóttir og var upprunnin í 142 Suðurdal Fljótsdals. Við sjáum þau fyrst í kirkjubókum árið 1789, búandi á Klúku í Fljótsdal: Eiríkur bóndi 65 ára, Vilborg kona hans 45 ára og böm þeirrra: Solveig (2465) 17 ára, Eiríkur (2463) 14 ára og Margrét (2466) 13 ára. Enn áttu þau soninn Runólf (2464), sem síðar bjó á Sellátrum í Helgustaðahreppi. Hefur líklega verið elst- ur alsystkina sinna. Sonur hans „Þorleifur varð úti um tvítugt, var að verja fé í stór- hríð, gestkomandi á bæ, með öðrum manni. Sá flúði heim og enginn kom aftur til Þorleifs en hann barðist fyrir fénu meðan hann gat og fannst þar dáinn daginn eftir.“ (Æ. Au.) Eiríkur og Vilborg voru með börnin þrjú á Glúmsstöðum í Norðurdal næstu þrjú ár. Árin 1793 og 1794 eru Eiríkur yngri og Margrét systir hans hjá Sigríði hálfsystur sinni á Kleif. Foreldramir og Solveig eru á Glúmsstöðum. Eiríkur Runólfsson lést 1794. Það ár giftist Solveig Jóni Andréssyni frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal og búa þau á Þuríðarstöðum í Fljótsdal við manntal 1795. Um vorið flytjast þau í Vaðbrekku og búa þar langa ævi. Varð Jón frægur í sögnum fyrir afburða frískleika og má um það lesa í 10. bindi þjóðsagna Sigfúsar Sigfússonar. Margrét systir Solveigar fór með þeim að Vaðbrekku, var hjá þeim sjö ár en fór vorið 1803 austur í Egilsstaði í Fljótsdal. Þá bjó þar Eiríkur bróðir hennar. Síðar fór hún í Eiríksstaði á Jökuldal og var lengi vinnukona hjá Gunnlaugi Þorkelssyni bónda þar. Hún var mjög vönduð og góð manneskja. (Æ.Au.) Fjölskylda Eiríks Eiríkssonar. Við manntal 1785 er Eiríkur vinnu- maður hjá systur sinni á Þuríðarstöðum en næsta ár á Glúmsstöðum með móður sinni. Árið 1796-1797 eru mæðginin á Brekku- J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.