Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 146
Múlaþing
í Görðum 1S07 Á Eiríkshúsum 1808 - 1810 Á Amaldsstöðum 1811
Eiríkur Eiríkss. húsb. 32 ára 33 - 35 ára 36 ára
Margrét Jónsd. k. h. 41 ára 42 - 44 ára 45 ára
Gróa dóttir þeirra 8 ára 9 - 11 ára 12 ára
Vilborg - 4 ára 5 - 7 ára 8 ára
Solveig - 1 ára 2 - 4 ára 5 ára
Sigríður - 1 - 3 ára 4 ára
Guðrún - fædd 1810 2 ára
Gróa Jónsd. fósturd. 6 ára 7 - 9 ára 10 ára
Gróa Einarsd. v. s. t. 17 ára
Vilborg Pálsd.
móðir bónda 62 ára 63 - 65 ára 66 ára
Eyjólfur Brynjólfss. vinnum. 34 - 36 ára
Fjölskylda Eiríks Eiríkssonar, talin í janúar öll árin.
Þegar hér var komið sögu, höfðu þeirn
fæðst átta börn, þar af 5 drengir sem allir
dóu ungir nema Páll elsta barnið en hann
lést átta ára. Kirkjubók segir hann hafa
verið „bráðnæmt bam.“ Var sagður geta
endursagt prédikun prestsins nokkurn
veginn orðrétta að lokinni messu. Nefna má
að fram að þessu höfðu þau búið á fremur
landþröngum leigujörðum, nema þá helst
Egilsstöðum en þar var tvíbýli. Ekki verður
séð að þeim hafi verið þröngvað til að fara
frá Görðum. A það má þó líta að sr. Vigfús
Qrmsson hafði stórbú á Valþjófsstað. Voru
þar á hverju ári um og yfir 20 manns í
heimili en Garðar hjáleiga í túnjaðri. Hefur
verið þröngt í högum. Eiríkur var á besta
aldri, rúmlega þrítugur, hefur eflaust verið
harðsnúinn til vinnu en líka viljað hafa
pláss fyrir sig og sitt fé. En landstór jörð var
ekki laus í dalnum.
Svo verður það úr að hann byggir upp úr
auðn á Eiríkshúsum. Staðháttum hefur
þegar verið lýst. Ætla má að hann hafi vart
verið einhamur við verk. Ohjákvæmilegt
var að koma upp húsum fyrir fjölskylduna
(10 rnanns) og alla gripi á einu sumri. Hann
hafði vinnumann á besta aldri. Og honum
hefur lagst til góð hjálp því systir hans
Solveig og Jón Andrésson bjuggu þá á
Vaðbrekku í Hrafnkelsdal næsta bæ austan
Jöklu og í 5 km fjarlægð. Örstutt er til
Eiríksstaða en þá þarf yfir Jöklu, sem ekki
er alltaf árennileg.
Guðlaug Brynjólfsdóttir (4238) er skráð
1809 en aldur ekki tilgreindur. Sagt er í Æ.
Au. að hún hafi að mestu alist upp á
Amaldsstöðum hjá Eiríki. „Var stórlynd og
dugleg og einkar ráðvönd.“ Hefur líklega
verið systir Eyjólfs. Ekki fara neinar sögur
af búskap Eiríks og Margrétar á nýbýlinu.
Ætla má að þeim hafi stundum þótt „vík á
milli vina“ og langt til aðdrátta í afréttinni,
þar sem þau komu úr svo fjölmennri og
þéttbyggðri sveit sem Fljótsdalur var og er.
Hafa þau gripið tækifærið, þegar ábúð
losnaði á Arnaldsstöðum í Suðurdal Fljóts-
dals vorið 1811. A því jarðnæði eru þó
stórir annmarkar, sem ekki komu að sök
meðan þau bjuggu þar. Bærinn er austan
undir snarbröttum hlíðum Múlans og
undirlendi lítið milli fjalls og Kelduár, sem
brýtur neðan af landinu. Múlinn er
144