Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 156

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 156
Múlaþing Jónsson, f. 31.okt. 1869, d. 29. júní 1944. Hann var klæðskeri, ljósmyndari og úti- bússtjóri Islandsbanka á Seyðisfirði frá 1904 til 1929. Eyjólfur var bæjarfulltrúi frá janúar 1897 til 7. janúar 1924 og frá 10. janúar 1925 til 30. janúar 1938. Arið 1882 hóf Stefán verzlunarnám í Norskubúð (Norske Kompagnies handel) á Seyðisfirði. I októbermánuði árið 1884 sigldi hann til Noregs með aleigu sína, 315 krónur, í vasanum og dvaldi þar tvö ár við úrsmíðanám hjá úrsmíðameistaranum Fuglestad í Stav- anger og lauk þar sveinsprófi. Að námi loknu árið 1886 kom Stefán aftur til Seyðisfjarðar og settist að á Fomastekk. Þar stundaði hann úrsmíðar og verzlun með úr, klukkur og ýmsa gjafavöru. Þegar Stefán hóf iðnnámið hafði hann ekki notið neinnar skólafræðslu, en sú menntun sem hann hlaut í heimahúsum entist honum vel. Var hann vel lesinn, lagði mikla rækt við ljóðalestur og kunni ógrynni kvæða og vísna. Stefán hafði gaman af veiðiskap. Hann fór mikið með byssu og stundaði bæði hreindýraveiðar og fuglaveiðar, einnig iðkaði hann stangveiði. Hann átti jafnan góða reiðhesta og ferðaðist mikið um landið ríðandi. Eiginkona Stefáns var Ólafía Sigurðar- dóttir frá Firði, fædd 3. janúar 1863, og gengu þau í hjónaband 17. júní 1889. Börn þeirra vom: Anna Jóhanna, f. 16.apríl 1890, giftOtto Wathne, Jónína, f. 13. júlí 1892, gift Jóhanni Hanssyni; Sigurður, f. 14. desember 1893, Garðar, f. 8.nóvember 1896, og Gróa Helga, f. 10. mai 1902. Synimir og yngsta dóttirin létust ung. Arið 1888 var Stefán kosinn í hreppsnefnd og tveimur ámm síðar oddviti og jafnframt settur hreppstjóri og skipaður í það embætti 1891. Einnig var hann skipaður í sáttanefnd. Árið 1890 var Sparisjóður Seyðisfjarðar stofnaður og var Stefán meðal stofnenda og einn þriggja stjómarmanna. I stjóm Spari- sjóðsins var hann til ársins 1904 þegar sparisjóðurinn sameinaðist útibúi Islands- banka á Seyðisfirði. Fiskveiðifélagið Garðar var stofnað á Seyðisfirði 31. mai, 1898 með 180.000 kr. hlutafé. Stefán var meðal stofn- enda og í stjóm félagsins. Árið eftir hófust miklar framkvæmdir á vegum félagsins. Árin 1899-1900 keypti félagið tvo gufutogara og fimm seglatogara. Veiðar gengu vel í byrjun en brátt gerði fjárskortur vart við sig. I marzmánuði árið 1901 ákvað stjórnin að hætta starfseminni vegna rekstrarerfiðleika. Aukafundur haldinn 13. apríl ákvað síðan að slíta félaginu og afhenda skiptaráðanda eignir þess til opinberrar meðferðar. Stefán átti hlut að kaupum bæjarins á útgerðarstöð Garðars fyrir 25.000 krónur. Var það stærsta og dýrasta hafskipabryggja landsins, með vatnsleiðslu og jámbrautarsporum um bryggju og lóð, þrjár stórar samliggjandi vöruskemmur og íbúðarhús. Árið 1889 fékk Stefán verzlunar- leyfi. Hann varð umboðsmaður „Nýja danska brunatryggingarfélagsins" og „Sameinaða gufuskipafélagsins“ Árið 1900 tók Stefán við umboði „Det nationale Livforsikringsselskab Dan“ í Kaupmannahöfn. I maímánuði 1906 varð Stefán konung- legur norskur vararæðismaður. Hinn 1. janúar 1895 fékk Seyðisfjörður kaupstaðarréttindi og var Stefán þá kosinn í bæjarstjóm. Jafnframt var hann settur bæjarfógeti án dómsvalds til 1. apríl 1896. Árin 1895-6 var honum falið að annast fjárreiður bæjarins og færa upp reikningana. Stefán sat síðan í bæjarstjóm frá 2. janúar 1895 til 3. janúar 1910 og frá 6. janúar 1911 til 6. janúar 1917 og frá 24. janúar 1920 til 8. janúar 1921. Árið 1888 endurbyggðu Stefán og Sigurd Johansen 30 fermetra hús með portbyggðri rishæð, á lóðinni nr. 6 við Bjólfsgötu. Húsið fluttu þeir utan frá Liverpool eftir snjóflóðið 1885. Verzlun var á neðri hæð en íbúð á þeirri efri. Flutti Stefán verzlun sína og úrsmíða- 154
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.