Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 164

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 164
Múlaþing Tóvinna Eins og fram kemur hér að ofan var margt í boði fyrir sýningargesti á sumaropnunartíma safnsins. A sunnudögum unnu eldri borgarar á Egilsstöðum við tóvinnu í baðstofunni frá Brekku. Böm gátu fengið að prófa að spinna, tvinna eða kemba með aðstoð þeirra og fengið árituð diplom fyrir. f baðstofunni var einnig sýnt hvernig sauðskinnskór voru gerðir, kveðnar rímur og jurtalitun sýnd. Þá var ullin, sem unnin var í baðstofunni, einnig lituð að gömlum hætti í soði ýmissa blóma og jurta. Hestakerruferðir A laugardögum var boðið upp á hestakerraferðir í nágrenni safnsins. Ferðimar vora aðallega ætlaðar bömum en þær voru ekki síður vinsælar hjá fullorðnum. Helgi Valmundsson var kúskur en hann lánaði safninu jafnframt hestinn sem dró kerruna með gestum safnsins um Lómatjarnarsvæðið á Egilsstöðum. Sumarsýningar Tvær sumarsýningar voru settar upp á árinu í tilefni 50 ára afmælis Egilsstaðabæjar. Innihald sýninganna miðaði að því að heiðra frumbyggja Egilsstaða fyrir uppbyggingu bæjarins, samhliða því sem þær áttu að minna á dagleg störf íbúanna. Önnur sýningin var sett upp af aðilum sem allir höfðu slitið bamsskónum á Egilsstöðum, gengið saman í grunnskólann og flestir sest þar að. Sýningin hlaut nafnið Gömlu dagana gefðu mér...en hún samanstóð af munum sem minntu á liðna tíma á Egilsstöðum. Þar mátti sjá húsgögn, leikföng, fermingargjafir, kort og skeyti, skólabækur, stíla, vörur úr KHB, mjólkurflöskur, glansmyndir, skylduverkefni úr smíðatímum og margt fleira. A sýningunni gafst einnig tækifæri til að hlusta á tónlist frá sjötta og sjöunda áratugnum. Egilsstaðabær styrkti uppsetningu þessarar skemmtilegu sýningar en hana unnu Lára Vilbergsdóttir, Guttormur Metúsalemsson, Stefanía Steinþórsdóttir, Sigrún Bjamadóttir, Signý Ormarsdóttir og Þorsteinn Steinþórsson auk margra annarra sem lögðu hönd á plóginn. Þau lánuðu einnig safninu flesta þá muni sem sýndir voru við þetta tækifæri. Sömu aðilar stóðu fyrir því að sett var upp homabú og bílabrautir fyrir trébfla utan við inngang Minjasafnins, þar sem böm gátu leikið sér eins og gert var fyrrum. Homabúið var hannað og sett upp af Guttormi Metúsalemssyni. Gissur Ámason smíðaði bflana. Hin sýningin sýndi áhöld og tæki Þorsteins Sigurðssonar læknis. Hann var einn af fyrstu læknum Egilsstaða, bjó þar nánast alla sína starfstíð og stuðlaði að uppbyggingu heilsugæslu á Egilsstöðum sem og annars staðar á landsbyggðinni. Verk hans og vinna var því innlegg í uppbyggingu Egilsstaða sem bæjar. Áhöld og tæki Þorsteins vora fengin að láni hjá Læknaminjasafninu í Nesstofu á Seltjamarnesi í tilefni sýningarinnar. Gestafjöldi Alls rituðu 3737 gestir nöfn sín í gestabók Minjasafns Austurlands árið 1997. Þar af voru böm 655, auk þeirra 507 skólabarna sem tóku þátt í safnakennslu Minjasafnins. Utlendingar voru 291 eða tæp 8% gesta. Samtals sóttu 4555 gestir Minjasafnið heim árið 1996, þar af útlendingar 362. Samkvæmt þessu fækkaði gestum um 18% á milli áranna 1996 og 1997. Rétt er að minna á að árið 1996 var opnunarár safnsins en það hefur tvímælalaust haft áhrif á fjölda gesta. 162
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.