Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 170

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 170
Múlaþing Héraðsskjalasafn Austfirðinga. Alltaf berast til safnsins skjöl og bréfasöfn. Sveitarfélögin hafa þó ekki verið nægilega virk í að skila inn skjölum og þarf að verða breyting þar á, vísast þar til "Reglugerðar um héraðsskjalasöfn" nr. 283/1994. Stöðugt er unnið að tölvuskráningu þess efnis sem berst til safnsins. Skráningar eru komnar töluvert á níunda þúsund. Guðgeir Ingvarsson hefur sérstaklega unnið við skráninguna. Mjög bagalegt er að hafa ekki afmarkaða geymslu fyrir óflokkuð skjöl, eða efni sem búið er að flokka en fer ekki í varðveislu í skjalageymslu. Nauðsynlegt er að koma upp góðri geymslu fyrir þetta efni, ekki verður það mál leyst að sinni án þess að leigja húsnæði. I fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir leigu upp á 150.000,- kr. Ljósmyndasafn Austurlands Amdís Þorvaldsdóttir hefur unnið við skráningu og flokkun ljósmynda og miðar vel í því verki. Flokkun er langt komin og nú hafa verið tölvuskráðar rúmlega 3000 myndir, og er það nálægt því að vera helmingur mannamynda í safninu. Alltaf bætast við myndir í safnið og hefur það eignast velunnara vítt og breitt um Austurland. Þessu fólki eru færðar þakkir fyrir þá fyrirhöfn sem það hefur lagt á sig til að sinna fyrirspumum starfsmanna safnsins. Eigendur Ljósmyndasafns Austurlands eru auk Héraðsskjalasafns Austfirðinga, Minjasafn Austurlands og Safnastofnun Austurlands. Eigendur safnsins lögðu því fjármuni á síðasta ári kr. 175.000,- pr. safn. Það er von mín að áframhald verði á fjárveitingum til Ljósmyndasafns Austurlands. Þá hvet ég til þess að önnur ljósmyndasöfn á Austurlandi verði tölvuskráð á sama hátt og Ljósntyndasafn Austurlands og með því móti verði fengið betra yfirlit yfir ljósmyndaeign Austfirðinga. Bókasafn I stjóm Bókasafns Önnu Guðnýjar og Halldórs eru Arni Halldórsson formaður, Arndís Þorvaldsdóttir ritari ,Magnús Þorsteinsson meðstjórnandi. Eins og kemur fram í reikningum þá var farið all rækilega fram úr fjárhagsáætlun varðandi bókasafnið. Miklu réði sú ákvörðun að tölvuskrá safnið í gegnum Feng. Eg tel að sú ákvörðun hafi verið rétt og skip- ti verulegu máli upp á not eigenda safnsins, Austfirðinga allra, af safninu. Ég hefi á yfirstandandi ári reynt að draga úr bókakaupum og öðrum útgjöldum til bókasafnsins til að rétta af heildardæmið. Starfsemi Safnahússins Samstarf innan Safnahússins hefur verið með miklum ágætum. Nýr forstöðumaður var ráðinn að Minjasafni Austurlands á síðasta ári þegar Steinunn Kristjánsdóttir lét af störfum og Jóhanna Bergmann tók við. Samrekstur hefur verið á ýmsurn þáttum svo sem hita, rafmagni, ræstingu og umhirðu á lóð. Nú er stefnt að því að ljúka frágangi á loftræstibúnaði hússins, er þá farið að sjá fyrir endann á bygg- ingu þess. Ekki er búið að leysa lyftumál hússins en ekki verður hægt að segja að byggingunni sé lokið fyrr en sér fyrir endann á þeim þætti. Skilaskylda sveitarfélaga. Sveitarfélögum og stofnunum þeirra ber að skila héraðsskjalasafni skilaskyldum skjölum eigi síðar en þegar þau hafa náð 30 ára aldri. Skjölunum á að skila frágengnum á fullnægjandi hátt til Héraðsskjalasafns, sé það ekki gert þá ber að greiða þann kostnað sem safnið ber af því að ganga frá skjölum svo viðunandi sé. 168
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.