Jökull


Jökull - 01.12.1975, Síða 32

Jökull - 01.12.1975, Síða 32
hringrás — inn að og upp með innskotinu — sem hitinn frá því olli, því að slík hringrás og flutningur á uppleystum efnum úr berginu er vel þekkt fyrirbæri í jarðfræði. En hækkað hita- stig auðveldar einnig tapið. Með þessu dæmi er bent á, að grunnvatns- straumur geti haft mjög veruleg áhrif á aldurs- mælingar bergs, valdið of lágri útkomu, ef hann hefur þvegið burt dótturefni meira en móður- efni, eða ef til vill of hárri útkomu, ef þetta hlutfall snýst við. Þannig gæti vafalítið 100 °C heitur grunnvatnsstraumur á fyrri tíð (sbr. hveravatn hér á landi sem runnið hefur á 1—2 km dýpi, áður en það kom til yfirborðs) hafa þvegið efni úr krystöllum og gleri í bergi, sem nú er á eða nærri yfirborði jarðar, og valdið röskun á hlutfalli móður- og dótturefnis, ekki síst 40K/ 40Ar-hlutfallinu, svo að af þessu bergi yrði réttur aldur ekki ráðinn. Dæmið sýnir einnig, að þótt Ar og Sr gæfu svipaðan aldur bergs, gætu báðar aðferðirnar gefið of lágan aldur, ef sama krystallategund hefur verið not- uð. Með því að nota tvær eða fleiri tegundir krystalla ætti hins vegar að koma í ljós — miðað við 1. mynd — hvort efnin hafa þvegist burt eða ekki. Síðar verður hins vegar getið fleiri sjónarmiða (m. a. krystallastærðarinnar, sbr. 4. kafla), sem taka verður tillit til. í 2. kafla er fjallað um það, að 40Ar hlýtur að vera í hraunkvoðu, þegar hún kemur upp, þar eð þetta efni hefur stöðugt framleiðst úr 40K niðri í jörðinni. Þetta hefur mönnum verið Ijóst, en hitt verið nokkurt vafamál, hvernig þetta upphafs-argon hverfur úr hrauni eftir uppkomu, þannig að K/Ar„klukkan“ sé sett á núll. I greininni er talið, að upphaflegt argon muni eðlilegast verða innlyksa á mótum kryst- allanna og skolast þaðan með úrkomu á næstu áratugum eða öldum. Oft er gler í hraunum milli krystallanna og mundi upphafs-argonið þá að miklu leyti geta safnast fyrir í þvi en rokið úr því heitu. Af því, sem hér fer á eftir er og ljóst, að úr svona gleri hverfur argon auðveld- lega á svipuðum tíma og að ofan var nefndur. I ljós hefur komið það athyglisverða fyrir- brigði, að upphafs-argon hefur ekki losnað úr hraðkældri skorpu glerkenndra hnykla (sbr. koddaberg), sem myndast hafa við gos á meira hafdýpi en um 2000 m, en þeir, sem fundu þetta með mælingum á krökuðu efni á eldgosa- línu frá Hawaii, gáfu ekki skýringu á fyrirbær- inu. Hér er fyrst bent á, að dýptarmörkin séu eðlileg, og eigi fræðilega séð að vera 2160 m í sjó, en verði þó ekki skörp í þessu sambandi. Mörkin byggjast á því, að eingöngu ofan við þau, er þrýstingur nógu lágur til þess að eigin- leg suða vatns geti átt sér stað. í grunnum sjó snöggkælist örþunn glerhúð niður að suðu- marki (rúmlega 100 °C), þegar opin hraunleðju- glóð snertir vatnið og það sýður, þar eð hinn mikli uppgufunarvarmi er þá snögglega tekinn frá hraunhúðinni. Elúðin kólnar svo enn frekar af snertingu við sjóinn. En þetta kælda yfirborð þýðir, að nú hitar hraunið sjóinn hægt, eða með öðrum orðum: glerið undir bláskorpunni kólnar hægt. Neðan við ofangreind dýptarmörk er útkom- an önnur. Þar breytist þunnt sjávarlag næst glóðinni í gufulag, sem er svo þétt í sér, að það hefur um hálfan eðlisþunga vatns og hitastig um og yfir 375 °C. Engan uppgufunarvarma þarf að taka frá glóðinni til þessarar ástands- breytingar sjávarins, aðeins upphitunarvarma, sem er miklu minni. Gufulagið, með hálfurn eðlisþunga vatns, streymir nú hægt upp og víkur fyrir kaldari sjó, sem í fyrstu myndar nýtt gufulag. Niður- staðan verður sú, að sjálft yfirborð hraunsins helst lengur heitt en á grunnsævi, og það gefur jafnari, en í heild hraðari kælingu en á grunn- sævi, eina 4—6 cm inn í hraunið. Það myndast þykk glerskorpa, og hún heldur í sér upphafs- argoni. Mest er argonið í ysta sentimetranum, minna á 1—2 cm dýpi, en vel mælanlegt 4 cm inn í glerhnykilinn. Hér er bent á, að það hlýt- ur að vera kœlingarhraði glersins sem úrslitum ræður. Nægilega hröð kæling myndi gler, sem heldur argoni í sér talsvert langan tíma, en inni í hnyklinum sé hægar kælda glerið í öðru ástandi, þannig að úr því hefur hið upphaflega argon losnað og komist út á áratugum, öldum eða slíkri tímalengd, sem liðið hefur frá neðan- sjávargosinu til mælingarinnar. Nánar er fjall- að um þennan eðlismun glersins í grein, sem birt verður á öðrum stað. Þessar mælingar á upprunalegu argoni benda til þess, að hraunkvoða sem storknar djiipt í gossprungu sem gangur eða stærra innskot, geti innihaldið upprunalegt argon, enda er þekkt dærni um það, að gangur sýni að minnsta kosti 5-faldan réttan aldur eftir K/Ar-mælingu. I 3. kafla er bent á þá staðreynd, að þegar 30 JÖKULL 25. ÁR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.