Jökull - 01.12.1981, Qupperneq 65
augljóst að raunverulega hefur jökulhop verið
lítið fyrir þann tíma, en hins vegar hefur verið
mikil þynning á jökuljaðrinum. Mælisniðið
(7) er því nokkuð misvísandi um jökulhopið
fynr þann tíma (tafla 1). Aftur á móti hefur sú
þróun snúist við eftir það. Á amerísku
kortunum (U. S. Army Map Service) liggur
jökuljaðarinn svo svipað og á dönsku kortun-
um, að ég sá ekki ástæðu til að teikna hann
serstaklega upp. Þó má sjá á þeim, að jökul-
jaðarinn er víða að losna frá dauðisgörðunum
meira en áður, sérstaklega vestan Krókárfells.
5. Jökuljaðannn 1960 er lauslega dreginn
UPP eftir flugmyndum. Allur jaðarinn hefur
hopað verulega og nálgast sitt núverandi
form.
6. Jökuljaðarinn 1974 er dreginn upp eftir
kortum Orkustofnunar. Þau eru í mæli-
kvarðanum 1:20 000 með 5 m hæðarlínum og
eru því langnákvæmustu kortin, sem völ er á.
Það eru því aðeins fannir við jökuljaðarinn er
villt geta um legu hans.
7. Mœlisniðið fyrir 1. mynd og vörðurnar, sem
mcelt er út frá.
8. Vörðurnar.
Mælisniðið getur talist nokkuð gott, þó
1 ítilsháttar misræmi kæmi í ljós miðað við
jöklabreytingar vestan Krókárfells. Sniðið á
því að gefa vel til kynna jöklabreytingar í
norðvestanverðum Hofsjökli. Vestari Jök-
ulsá, Fossá og Blanda að nokkru leyti sækja
jökulvatn sitt þangað. Jökullinn hefur verið að
hopa og þynnast í a. m.k. s. 1. 60 ár. Jökla-
rýrnunin hefur því valdið rennslisaukningu í
þessum ám, svo að numið getur allt að 1,5
m3/s í meðalrennsli um langt árabil.
ABSTRACT
In the year 1950 Björn Egilsson buill cairns in the
front of the north edge of Hofsjökull on the postglacial
lava Lambahraun in order to measure the variations of
the glacier snout. Three measurements vuere made in
the fifties, the last one in 1959. The present author
made new measurement from the cairns in 1981. The
glacier had then retreated 205 m dunng a 22 years
period. By using all available aerial photos and maps
it was possible to evaluate the glacier variations as
presented in Table 1 and by the profile on Fig. 1,
which show the total retreat of about 615 m in this
cenlury with the maximum rate of 15 m/year. Fig. 2
shows changes in the position of the glacier edge
compiled from maps and aenal photos.
HEIMILDIR
Jón Eypórsson 1959: Jöklabreytingar 1957/58
og 1958/59. Jökull 9:47—49.
Kort í mælikvarðanum 1:100 000. Geodætisk
Institut, Kaupmannahöfn 1954.
Kort í mælikvarðanum 1:50 000. U. S. Army
Map Service. Washington 1949.
Kort í mælikvarðanum 1:20 000. Orkustofn-
un, Reykjavík 1976.
JÖKULL 31.ÁR 63