Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 103
Jarðfræðafélag íslands
Skýrsla Axels Björnssonar formanns fe'lagsins um störf þess tímabilið frá
frá 16. maí 1978 til 2. maí 1980
inngangur
Eftir að Jarðfræðafélag íslands tók höndum
saman við Jöklarannsóknafélag fslands um
utgáfu timaritsins Jökuls þótti rétt að birta
arlega stutt yfirlit um athafnir félagsins í Jökli.
Hér á eftir fer stutt skýrsla um starfsemina þau
tvö starfsár, er höfundur þessa pistils gegndi
formennsku í félaginu, þ. e. frá aðalfundi 16.
maí 1978 til aðalfundar 2. maí 1980.
STJÓRN
Fyrra starfsárið var stjórnin skipuð sem hér
segir: Axel Björnsson, formaður, Haukur
Jóhannesson ritari, Davíð Egilson gjaldkeri,
Páll Einarsson og Jón Eiríksson meðstjórn-
endur. Á aðalfundi 30. apríl 1979 gengu úr
stjorninni Páll og Haukur en í stað þeirra voru
kosin þau Gillian Foulger og Helgi Torfason.
Helgi tók að sér ritarastarfið og Gillian umsjón
með spjaldskrá félagsins.
Stjórnin hélt alls 8 formlega fundi á tíma-
bilinu, auk þess sem stjórnarmenn hittust oft í
oformlegum umræðum um málefni félagsins.
FELAGSFUNDIR
A þessu starfstímabili voru óvenju margir
fræðslufundir á vegum félagsins, einkum fyrra
starfsárið. Hafa þeir ekki orðið eins margir
aður í sögu þess. Eftirtalin erindi voru flutt á
fræðslufundum:
Sigurður Steinþórsson: Gjóskulög í Bárðar-
bungukjarna, 25.10. 1978.
Kristinn Jón Albertsson: K/Ar-aldursákvarð-
anir, 16.11. 1978.
Stefán Arnórsson: Uppruni ölkelduvatns —
utreikningar á efnafræði jarðhitavatns,
14.12. 1978.
Guðrún Larsen: Gjóskugos á Tungnaáröræf-
um um 1500 A.D., 25.1. 1979.
Haukur Tómasson: Rof- og aurburðarrann-
sóknir, 21.2. 1979.
GuðmundurE. Sigvaldason: Öskjugosið 1875,
21.3. 1979.
Gordon Eaton, USGS: Volcano-tectonic
activity on Hawaii, 24.3. 1979.
Gordon Eaton: Volcanic activity in the Great
Basin of Nevada, 25.3. 1979.
Sveinn Jakobsson: Bergfræði basalthrauna á
eystra gosbeltinu, 7.5. 1979.
Ólafur Flóvenz: Niðurstöður skjálftamælinga
á íslandi, 17.10. 1979.
Helgi Torfason: Jarðfræði Suðausturlands,
12.12. 1979.
Leó Kristjánsson: Yfirlit yfir nýjar segul-
stefnumælingar í islenskum hraunlögum,
6.2. 1980.
Kjartan Thors: Samtíningur um íslenska
landgrunnið, 11.3. 1980.
Guðmundur E. Sigvaldason: Stykkishólms-
kenningin, 2.5. 1980.
KRÖFLURÁÐSTEFNA
Hinn 16. nóvember 1979 gekkst félagið fyrir
ráðstefnu í húsakynnum Hótels Loftleiða.
Ráðstefnan bar heitið: „Krafla — jarðhita-
svæði og megineldstöð“. Formaður setti ráð-
stefnuna kl. 9.00 en síðan hófst flutningur
erinda. Flutt voru 21 erindi, sem flokkuð voru
niður á 3 fundi. Fyrsti fundurinn var fyrir
hádegi og var þar einkum fjallað um umbrotin
á Kröflusvæðinu þ. e. landslagsbreytingar,
skjálftavirkni, eldsumbrot og efnasamsetn-
ingu kviku og gass.
Á öðrum fundi, sem stóð frá hádegi og fram
að kaffi, var fjallað í 6 erindum um jarðhita-
svæðið við Kröflu og rannsókn þess.
JÖKULL 31. ÁR 101