Jökull - 01.12.1981, Síða 104
Þriðji fundurinn stóð fram að kvöldmat og
snerust flest erindi um jarðhitakerfið sjálft,
borholur og vinnslutæknileg atriði.
Eftir matarhlé hófst óformlegur kvöld-
fundur um málefnið „Hvað hefur Krafla
kennt okkur?“. Tóku margir til máls og urðu
umræður það fjörugar að fundarstjóri varð að
gera hlé af og til svo menn gætu kælt sig niður
með eðalveigum. Ekki fengust endanleg svör
við spurningunni hvað Krafla hefði kennt
okkur, en greinilega kom í ijós að sumum hafði
ævintýrið kennt töluvert en öðrum alls ekkert.
Þessum fundi og þar með ráðstefnunni lauk
um kl. 23. Ráðstefnugestir voru um 110, er
flest var. Aftan við þessa greinargerð eru ágrip
erinda, sem flutt voru á Kröfluráðstefnunni.
FÉLAGATAL
Tala félaga hefur vaxið jafnt og þétt
undanfarin ár og fjöldi nýliða verið teknir í
félagið á hverjum aðalfundi. Fyrir aðalfund 2.
maí 1980 voru félagsmenn alls 120 og á fund-
inum fengu 19 nýir inngöngu. Um 15 félags-
menn voru við nám eða störf erlendis og því
óvirkir af þeim sökum og ekki krafðir um
félagsgjöld. Stjórnin tók upp nýja aðferð við
innheimtu félagsgjalda. Gjaldkeri hætti að
ganga á eftir mönnum með hnefann og kvitt-
anahefti á lofti en í stað þess voru sendir út
gíróseðlar. Ákveðið var að þeir, sem ekki
greiddu félagsgjald við fyrstu áminningu,
yrðu strikaðir út af skrá félagsmanna. I lok
skýrslu þessarar er skrá yfir félagsmenn í
Jarðfræðafélagi Islands.
FRÉTTABRÉF og heimilisfang
Ein merkasta nýjung í starfsemi félagsins er
sú að á starfstímabilinu hóf stjórnin útgáfu
fréttabréfs. Tilgangurinn var fyrst og fremst sá
að ná til allra félagsmanna með fundarboð og
ýmsar upplýsingar, en einnig að bjóða félags-
mönnum vettvang til þess að koma sínum
máium á framfæri og stuðla að umræðum
innan félagsins. Fréttabréfið hefur komið út
alls 5 sinnum. Þar sem sú hefð hefur skapast að
menn sitji ekki nema 2 ár í senn í stjórn
félagsins og heimilisföng stjórnarmanna því
síbreytileg var orðið bráðnauðsynlegt að út-
vega félaginu fastan heimastað. Heimilis-
fangið er nú Jarðfræðafélag Islands, Pósthólf
10105, 130 Reykjavík.
JÖKULL
Á tímabilinu kom út fyrsta hefti tímaritsins
Jökuls eftir að félagið varð aðili að útgáfu þess.
Mikið var rætt um fjárhagsvanda Jökuls í
stjórn félagsins og á aðalfundum og varð
niðurstaðan sú að vænlegast þætti til úrbóta
að formenn beggja félaganna snéru sér til
fjárveitingavaldsins með ósk um beinan ríkis-
styrk. Var svo gert og viti menn, Jökull fékk 3
milljónir gkr. á fjárlögum ársins 1980 og sam-
bærilega upphæð (miðað við verðbólgu) 1981.
Væntanlega verður framhald á fjárveitingum
og má telja að með þessum málalokum sé út-
gáfa Jökuls tryggð fjárhagslega á komandi
árum. Fulltrúi félagsins í ritstjórn Jökuls var
fyrst Ingvar Birgir Friðleifsson. Hann baðst
undan endurkosningu vegna anna og tók Leó
Kristjánsson þá við starfinu.
NORRÆNT VETRARMÓT
Ákveðið var að félagið skyldi standa fyrir
móti norrænna jarðfræðinga hér á landi í árs-
byrjun 1982. Ljóst var að stjórn félagsins gæti
ekki tekið þetta að sér og var því valin nefnd til
þess að sjá um undirbúning mótsins. I nefnd-
inni sitja: Sigurður Þórarinsson, Sveinn
Jakobsson, Þorleifur Einarsson, Ólafur Fló-
venz, Sigríður Friðriksdóttir, Gillian Foulger,
Sveinbjörn Björnsson, Kjartan Thors, Karl
Grönvold og Hrefna Kristmannsdóttir.
Ákveðið var að tengja mótið á einn eða annan
hátt Sigurði Þórarinssyni í tilefni af 70 ára
afmæli hans, sem er hinn 8. janúar 1982.
Hrefna Kristmannsdóttir hefur tekið að sér
að vera fulltrúi félagsins í stjórn Nordisk Geo-
logisk Association.
102 JÖKULL 31. ÁR