Jökull


Jökull - 01.12.1981, Page 106

Jökull - 01.12.1981, Page 106
slíkum viðburðum eldgos, annað hvort nálægt miðju eldstöðvarinnar eða á sprungusveimum sem liggja út frá miðjunni. A báðum stöðum verða viðburðir sem likjast eldgosum að öllu leyti nema þvi, að kvika kemur ekki til yfir- borðs. Kvikan virðist þá leita undir yfirborði út eftir sprungusveimunum, sem jafnframt gleikka og bólgna. Krafla er á plötumótum og er gleikkunin líklega tengd plötuhreyfingum. Á Kilauea er gleikkunin tengd skriði suður- hlíða dyngjunnar undan halla. Þannig eru aðstæður i dýpri hluta jarðskorpunnar og lík- lega orsök gleikkunarinnar ólíkar á þessum tveimur svæðum. Hins vegar virðast aðstæður í efstu kílómetrum skorpunnar vera svipaðar, þannig að samspil kviku og tektónískra hreyf- inga verður með líkum hætti. KRAFLA - OLKARIA, KENYA SAMANBURÐUR Á JARÐFRÆÐI Kristján Sœmundsson, Orkustofnun Háhitasvæðin á íslandi og í Kenya munu ásamt Imperial Valley vera ein af fáum, sem liggja jarðfræðilega utan eyjaboga og kordil- leru-strengja. Islensku háhitasvæðin eru í gliðnunarbelti úthafshryggjar, en Olkaria í sigdæld á meginlandi. Olkaria-svæðið er al- mennt ekki talið með, þegar minnst er á eld- fjöllin í Gregory-sigdalnum, líklega vegna þess hve eldfjallslögunin er illgreinanleg, en jarð- fræðileg bygging sýnir, að það á tvímælalaust heima þar á meðal. Á Olkaria-svæðinu hefur einkum gosið súru bergi gagnstætt Kröflu, þar sem basalt er ráðandi. Það er líkt með svæð- unum, að öskjur eru í báðum og yfir öskjurnar liggja gossprungur og gjár með norð-suðlægri stefnu. Gliðnun í Gregory-sigdalnum er 20 sinnum hægari en hér á landi (um 5 km á síðustu 5 m. árum); lóðréttu hreyfingarnar eru hins vegar af sömu stærðargráðu og hér. „Ol- karia“-eldfjallið er nokkuð gamalt og veru- legur hluti þess kominn á kaf í fyllinguna á botni sigdalsins. ÞYNGDAR- OG HÆÐARBREYTINGAR Á KRÖFLUSVÆÐI Gunnar Johnsen og Axel Björnsson, Orkustofnun Sven Þ. Sigurðsson, Raunvísindastofnun Háskólans Þyngdar- og hæðarmælingar á Kröflu- Námafjallssvæðinu hafa leitt í ljós að Kröfluaskjan er á hreyfingu. Hreyfingarnar einkennast af löngum ristímabilum og fremur stuttum sigtímabilum. Mest rís land milli Leirhnjúks og borsvæðisins inn af Leirbotn- um, um 6—8 mm á sólarhring, en minnkar hratt, er út úr öskjunni er komið. Áætlað er að um 5 mVs af kviku streymi inn í kvikuþró í Kröfluöskju. Sigið hegðar sér á svipaðan hátt, nema hvað hreyfingar eru mun örari. Hreyfing sprungubeltisins hefur einnig ver- ið kortlögð. Eftir umbrot mælist veruleg gliðnun yfir virkasta hluta sprungubeltisins, en samþjöppun strax utan þess. Virkasti hluti sprungubeltisins sígur, en land rís utan við hann. SAMSPIL LÁRÉTTRA OG LÓÐRÉTTRA HREYFINGA VIÐ KRÖFLU Eysteinn Tryggvason, Norrœna Eldfjallastöðin Margendurteknar mælingar á um 30 „geo- dimeterlínum“ á Kröflusvæðinu, sýna mjög náið samræmi milli lengdarbreytinga á svæð- inu og hallabreytinga í stöðvarhúsi Kröflu- virkjunar. Áður hefir verið sýnt að halli stöðvarhússins er góður mælikvarði á landhæð á svæðinu. Mest breytist lengd lína við Leir- hnjúk, eða allt að 1.5 X 10'4 (15 cm á km) við 100 u-rad halla í stöðvarhúsi, sem samsvarar um 34 cm landrisi við Leirhnjúk. Mælinga- linur, sem liggja frá austri til vesturs, breytast meira en þær sem liggja norður-suður, og ör- fáar línur í norðaustur hluta Kröfluöskjunnar styttast þegar landið rís. Samanburður mæl- 104 JÖKULL 31. ÁR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.