Jökull


Jökull - 01.12.1992, Page 14

Jökull - 01.12.1992, Page 14
lopt upp, jeg ætla 100-200 fet, og máski nokkru meira stundum. Gosið gengur að kalla jafnt og stöðugt, en lækkar annað veifið í sumum gígunum, en espast þá í öðrum um leið. Optast eru eldgosin áköfust fyrstu dægrin, en síðan smá dregur af þeim; stundum detta þau furðu fijótt niður. Mun það vera af því að hóla- kambamir við gígana springa fram og falla ofan í þá og kæfa gosið í bráðina. Til þessa má sjá merki á stöku stöðum“. Ofangreindar lýsingar gefa ótvírætt til kynna ann- an gang í Sveinagjárgosunum en við áttum að venjast í Kröflueldum, þar sem gosvirknin dróst saman án þess að taka sig upp annars staðar. Áberandi er hversu virknin hleypur til eftir allri gjánni í gosunum í mars, 1875. Mest gaus í norðanverðri Sveinagjá. Kröflueldar og Sveinagjárgosin eiga það sam- merkt að í þeim skiptast á tímabil gliðnunar með inn- skotavirkni og eldgos. Gliðnunartímabilið var þó mun lengra í Kröflueldum, rúmlega 4 ár en einungis um 4 mánuðir í Sveinagjárgosunum. Því miður er ekki hægt að bera saman gliðnunina í þessum umbrota- hrinum þar sem gliðnun Sveinagjár er ekki þekkt. Þó bendir ýmislegt til að þar hafi síst gengið minna á en í Kröflueldum sem bendir aftur til þess að at- burðarásin í Sveinagjárgosunum hafi verið hraðari en í Kröflueldum. Heildarrúmmál hrauna er svipað í báð- um eldsumbrotahrinunum sem bendir einnig til hraðari atburðarásar í Sveinagjárgosunum, en ekki endilega meiri kvikuframleiðslu. Þó að hugmyndir um lárétta kvikuflutninga hafi ekki fengist staðfestar fyrr en í Kröflueldum þá voru menn sem fylgdust með Sveinagjárgosunum þegar famir að spá í samband á milli eldstöðva og töldu „að ein eldæð hafi legið í jörðu niðri milli hvorra tveggja aðaleldstöðvanna, allt sunnan úr Dyngjufjöll- um og norður á Mývatnsöræfi", (Anonymous, 1876a). Á árunum 1921-1933 urðu nokkur eldgos um- hverfis og í Öskjuvatni, einnig sunnan í Dyngjufjöll- um. Ekki er vitað um neina jarðskjálfta í tengslum við þessi gos. Þó skjálftar upp undir4 stig á Richterkvarða hafi orðið í Dyngjufjöllum á þessum tíma þurfa þeir ekki að hafa fundist í byggð. Jarðskjálftamælir var settur upp í Reykjavík 1925, en ekki er hægt að styðjast við einn mæli til þess að ákvarða staðsetningu skjálfta. Síðasta gos í Öskju hófst 26. október, 1961. Vik- umar á undan höfðu menn orðið varir við aukinn jarð- hita í Öskju. Samhliða mældust nokkrir jarðskjálftar, 2.8-4.0 stig á Richterskvarða, en enginn þeirra fannst í byggð. Þrír jarðskjálftamælar voru í gangi á þessum árum, íReykjavík, Vík í Mýrdal og á Akureyri. Stærsti skjálftinn kom um leið og gosið braust út, kl 11:56,26. október. Mjög lítil skjálftavirkni fylgdi sjálfu gosinu (Mynd 2) en því lauk í desember sama ár (Sigurður Þórarinsson, 1963). Ekki var öll sagan úti enn, þó hætt væri að gjósa í Öskju. Jarðskjálftavirkni í Öskju jókst til muna 1962, og áberandi voru tvær stuttar skjálftahrinur, 30. janúar og 12. júní það ár. Hinn 30. janúar bárust þær frétt- ir úr Mývatnssveit, að mikinn gosmökk legði upp úr Öskju. Daginn eftir fór Sigurður Þórarinsson ásamt fleirum í könnunarflug yfir eldstöðvamar og fullyrti hann að ekki hafi verið um gosmökk að ræða, heldur uppstreymi lofts og myndun skýjabólstra af veðurfars- legum ástæðum. Athyglisvert er að Mývetningar sjá „gosmökk“ sama dag og skjálftahrina, stærri en sú sem fylgdi októbergosinu, verður í Öskju. Líklega hefur grunn innskotavirkni valdið skjálftahrinunni og senni- legast hefur „gosmökkurinn“ stafað frá aukinni jarð- hitavirkni í kjölfar hennar. Skjálftahrinan stóð mjög stutt og gæti gos hafa gert það líka og því engin um- merki sést næsta dag, þegar flogið er yfir Öskju. Mikil jarðskjálftahrina varð í Öskju 12.júní 1962. Sjötíu jarðskjálftar eru skráðir þann dag, sá stærsti 4.2 stig á Richterskvarða. Þegar farið var inn í Öskju í júnílok, virtist þar hafa orðið einhver sprenging, og nýr leirhver, allsprækur, kraumaði þar og þeytti upp smágjallmolum öðru hverju (Sigurður Þórarinsson, 1963). Einnig hafði myndast sprunga frá Öskjuvatni og norður eftir austurvegg Öskju neðarlega. Austur- veggur sprungunnar var sums staðar hálfum metra hærri en vesturveggur og í Öskjuvatni hafði lækkað um næstum 3 metra. Allt bendir þetta til innskota- virkni innan öskjunnar á þessum tíma. Eldsumbrotin í Öskju og Sveinagjá 1874-1876, 1921-1933 og 1961-1962, eru hvert með sínu sniði og segja má að atburðarás í slíkum umbrotahrinum ráðist af spennuástandi gosbeltisins hverju sinni og kvikuþrýstingi í rótum eldstöðva. 12 JÖKULL, No. 42, 1992
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.