Jökull - 01.12.1992, Blaðsíða 112
plexígler í gluggahlera. Áburðarefni var komið í skálann í
Goðahnúkum í vorferðinni, en þar sem ekki reyndist unnt
að bera á hann vegna snjóa var gerð sérstök ferð til þess um
mitt sumar. Þá var einnig sett plexígler í gluggahlera til þess
að hleypa birtu inn á vetuma þegar snjór og ísing liggur á
skálanum. Nú er skálinn í mjög góðu lagi. Esjufjallaskálinn
er í góðu horfi, borið var á hann að utan, en þörf fer að verða
á að lakka gólf og veggi og setja plexígler í gluggahlera. Á
Grímsfjalli var fúavöm borin á skálana í vorferð.
Helstu framkvæmdir sem skálanefndin leggur til em
bygging geymslu á Grímsfjalli og endurbætur á gamla skál-
anum í Jökulheimum. Á Grímsfjalli er um að ræða geymslu-
húsnæði fyrir eldsneyti, gas, tæki og áhöld, sem þarf að
geyma á fjallinu. Rætt hefur verið um að í þessari bygg-
ingu verði settur kamar til notkunar allt árið með tilheyrandi
losunarútbúnaði til þess að leysa sívaxandi vandamál sem
fylgir ört vaxandi umferð um fjallið. Stjóm félagsins hef-
ur samþykkt að ráðist skuli í þessar framkvæmdir. Gamla
skálann í Jökulheimum þarf að einangra og klæða að innan.
Bflaskemmuna og bensíngeymslunaþarf einnig að klæða og
þétta. Að lokum skal á það bent að tekjur em nú nokkrar af
læstu skálunum og ekki veitir af vegna mikils viðhaldskostn-
aðar.
HÚSNÆÐISMÁL
Húsnæðismál félagsins í Reykjavík em enn óviðunandi.
Leiguherbergi að Bakkagerði 9 er allt of lítið og engin leið að
koma þar skipulagi á rit og skjöl félagsins vegna þrengsla.
Á nokkmm undanfömum ámm hefur verið rætt um það í
félagi okkar að úr þyrfti að bæta, annað hvort með leigu á
nýjum stað eða kaupum á húsnæði. Stjómin telur að það
yrði lyftistöng fyrir félagið að eiga húsnæði og því vill hún
stefna að því. Á liðnu ári héldu hins vegar áfram viðræður
við Ferðafélag Islands, sem hófust fyrir um tveimur ámm,
um að félag okkar fengi inni í húsi Ferðafélagsins, sem nú
rís að Mörkinni 6 í Reykjavík. Skemmst er frá því að segja
að á stjómarfundi fyrr í þessum mánuði var samþykkt að
taka tilboði Ferðafélags Islands um að leigja aðstöðu í risi
hússinsog líta á það sem tilraun til ársloka 1994 svo að fram
komi á þeim tíma hver not félagsins em af húsnæði eins og
því sem þar býðst. Að þeim tíma loknum verði okkur betur
ljóst hvers kyns húsnæði hentar félaginu best í Reykjavík.
f húsi Ferðafélags íslands býðst okkur 25 m2 einka-
geymsla í kjallara, þar sem birgðir okkar af Jökli yrðu
geymdar. Mánaðarleiga yrði um 9000 kr., að viðbættum
kostnaði við að koma upp skilrúmum. Auk þess höfum
við aðgang að risi hússins, þar sem er 60 manna salur með
eldhúsi og fundarherbergi fyrir stjóm og nefndir. Fundar-
herbergið hefðum við til einkaafnota ásamt Islenska alpa-
klúbbnum og Ferðaklúbbnum 4x4. Gegn þessum afnotum
af risinu, frá miðju ári 1992 til ársloka 1994 (30 mánuði),
kosta þessi þrjú félög vinnu við innréttingu þess, en Ferða-
félagið leggur til allt efni. Sá kostnaður er áætlaður um 6000
kr. á hvert félag á mánuði, en auk þess er stofnkostnaður
við innréttingar í fundarherberginu. Ekki er ætlast til þess
að leigutakar greiði rafmagn og hita eða fasteignagjöld. Að
loknu þessu leigutímabili yrðu gerðir nýir leigusamningar ef
félögin óska þess.
Með þessu opnast möguleikar á að auka félagsstarfið
hér í Reykjavík t.d þannig að haft yrði opið hús svo sem
hálfsmánaðarlega y fir vetrarmánuðina þar sem félagar ræddu
fyrirhugaðar jöklaferðir, sýndu myndir að loknum ferðum,
grúskuðu saman í gömlum skjölum og ljósmyndum af jökl-
um eða kæmu eingöngu til þess að hittast.
BÍLAMÁL OG FARARTÆKI
Snjóbfll félagsins, Bombardier, hefur nú verið endur-
bættur, sett í hann sjálfskipting og millikassi og beltin breikk-
uð. Hann reyndist vel í vorferðinni á Vatnajökul. Bflanefnd-
in vinnur nú að því að smíða kerru á breiðum dekkjum, sem
getur tekið allt að 6 olíutunnur og draga má af jeppum, jafnt
á jökli sem vegum. Einnig hafði nefndin forgöngu í því að
fjölga stikum á leiðinni frá Vatnsfelli inn í Jökulheima og
hefta ný endurskinsmerki á gömlu stikumar. Nefndin hefur
nú ákveðið að setja upp skilti víða á hálendinu með lóran-
og GPS-hnitum.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð var haldin laugardag 9. nóvember í Ármúla 40
og og tókst hún ágætlega og skilaði um 36000 kr. hagnaði.
Stjómin þakkar skemmtinefnd mjög vel unnin störf.
GJÖRFI OG KJÖRFI
Skíðagöngufélagar í GJÖRFI fóru sínar venjulegu
heilsubótagönguferðir annan hvem laugardag frá Nesti í Ár-
túnsbrekku.
BREYTINGAR í STJÓRN FÉLAGSINS
Pétur Þorleifsson, sem setið hefur í varastjóm síðastlið-
inn áratug, baðst undan endurkosningu. Pétur hefur unnið
110 JÖKULL, No. 42, 1992