Jökull - 01.12.1993, Blaðsíða 71
Engum getum skal að því leitt hvað langt var að
j ökli, þó orð Sigurðar Stefánssonar sýslumanns í sýslu-
lýsingu frá 1746 (Kálund, 1914) um að Máfabyggðir
tilheyri Öræfum bendi til sagna urn að þau hafi áður
fyrr verið nytjaland. En á því svæði sem þá var jök-
ullaust hefur verið vel gróið land, m.a. hafa þar verið
mómýrar því fram eftir þessari öld bai' Breiðá fram
allmikið af ágætum mó. Hvernig það hefur verið fyrir
þann tíma er ekki vitað nema um 1756 þegar Eggert
og Bjarni fóru um. Ekki var þetta jafn og stöðugur
framburður af mó, en stundum talsvert mikill. Eftir að
farið var að nota kerrur á Kvískerjum (1916) var öðru
hvoru sóttur mór að Breiðá, stundun á tvær til þrjár
kerrur í einu en sum árin bar lítið á að áin bæri fram
mó. Dálítið var af lurkum í mónum, en lítið af stórum
stofnum. Breiðamerkurfjall virðist hafa verið notað
fyrir fráfærnalömb eitthvað fram á 17. öld, sbr. orð sr.
Gísla Finnbogasonar í bréfi til Árna Magnússonar um
1700 um að það verði ekki notað til lambagöngu því
þar girði nú jökull í kring (Kálund, 1914). (ísleifur
Einarsson segir um Hafrafell 1709 að það hafi verið
upprekstrarland, "nú óbrúkandi því allt er komið í jök-
ul"). Þetta bendir til að ekki hafi verið langt urn liðið
frá því að jöklar gengu sarnan framan við fjöllin því
menn hafa nokkuð fljótt áttað sig á að hægt var að reka
kindur yfir jökulinn, en það gæti þó hafa verið verra
fyrstu árin.
Þegar jöklarnir fóru að ganga frarn, hafa þeir vikið
anum sitt á hvað. Faðir minn Björn Pálsson kvaðst
hafa séð jökulvatn í hverjum einasta farvegi á Breiða-
merkursandi að undanskildum Nýgræðum og Fitjum
frá aldamótum til 1940, en oft ekki nema skamma
stund í einu í hverjum farvegi. Líklegt má telja að
svipað hafi þetta verið áður, en nokkur óvissa er samt
hvernig gróðureyðingin gerðist, hvort árnar rifu nið-
ur grassvörðinn eða huldu hann aur, en það hefur að
minnstakosti sums staðar gerst. Þegar Fjallsáflutti sig
i núverandi farveg 1936 gróf hún sér djúpan farveg urn
Jökulöldur og möl. Undir mölinni, um það bil tveim
metrum undir yfirborði reyndist vera jarðlag, sem mun
hafa verið hálft fet að þykkt, en vegna þess að alltaf
var nokkurt vatn yfir því var það aldrei kannað vel.
Undir jökulöldunum nokkru ofar er þunnt jarðlag sem
vel er hægt að athuga þó e.t.v. þurfi að grafa frá því
möl sem hrapað getur úr öldunni.
Þegar Breiðá sameinaðist Fjallsá 1954 gróf hún sér
farveg þvert fyrir framan Breiðamerkurfjall. Þar kom
í ljós þunnt jarðlag sem ætla má að hafi verið yfirborð
lands áður en jökull gekk yfir það. Vel má því vera að
víða megi finna jarðlag með gróðri undir mölinni ef
borað væri. Hugsanlega væri hægt með skipulegum
rannsóknum að rekja þróun svæðisins frá landnámi til
þessa dags, sem mundi að sjálfsögðu skýra ýmislegt.
Lítið er um heimildir um gróðurfar á Breiðar-
merkursandi á fyrri tíð. Þó getur ísleifur Einarsson
um Fjallsfit 1709, og svo vill til að hægt er að vita
nokkurn veginn hvar hún var, því til er vitnisburður
frá 1701 um að mörkin milli Fjalls og Kvískerja voru
um vörðu vestast á Fjallsfit, en mörkin munu vera
óbreytt. Meðan Fjallsfit var við lýði hlýtur Fjallsá að
hafa runnið nokkuð mikið austar en hún gerði í byrjun
þessarar aldar, sennilega í farvegi í Króknum, en rétt
fyrir aldamótin rann þar hluti Fjallsár og var sú á nefnd
Deildará (sögn B.P.). Vestan viðFjallsfit var aðal gras-
og slægjuland Kvískerja og voru Fitjar sem Fjallsá og
Hrútá hafa nú eytt vestasti partur þess. Nærri austur
við mörkin sem áður getur, héldust tvö örnefni fram
á sjöunda tug síðustu aldar, sem bentu til að þar hefði
áður verið meiri gróður; Langibakki og Stórasvæða
(B.P. eftir móður sinni). Um svipað leyti var jökullinn
að ganga yfir svæði austan við mörkin vaxið það háum
víði að lítið bar á kindum þar. Þegar sást hvað að fór
skóguðu Hofsmenn viðinn sem var á nokkra hesta.
TILVITNANIR
Blanda I. Fróðleikur gamall og nýr, 1918.
Jón Eyþórsson, 1952. Þættir úr sögu Breiðár. Jökull 2,17-20.
Kristian Kálund, 1914. Afmælisrit.
Eggert Olafsson og Bjami Pálsson, Ferðabók 1975.
BREIÐAMERKURSANDUR
Breiðamerkursandur, originally Breiðársandur, was named
after the farm Breiðá, settled in the Age of Settlement (874-
930 AD). It is argued that the farm was located in the area
between the present glacial lagoons of Breiðárlón and Jök-
ulsárlón (Figure 1). The farm was apparently prosperous,
but was later ruined by the glacial advance. Last remains
were seen in 1793. The glacier and the sandur advanced
over vegetated areas, and a layer of soil and peat, presuma-
bly from this time, is found beneath the sandur in a few
places.
JÖKULL, No. 43, 1993 69