Jökull - 01.12.1993, Blaðsíða 89
BÍLAMÁL OG FARARTÆKI
Bflanefnd telur æskilegt að félagið eignist nýtt farar-
tæki til jöklaferða, auk Bombans. Bendir nefndin á að tor-
færujeppi hefði ýmsakosti, þarsem slíkurbfll gæti nýstbæði
til flutninga að jökulrönd og á jökli. Þessi mál eru nú mikið
rædd í stjóm og nefndum félagsins því að þau tengjast fyrir-
huguðum verkefnum félagsins í rannsóknum, útgáfumálum,
viðhaldi skála og nýbyggingum. Auknum bflakosti fylgir
þörf á bflageymslu í Reykjavík, jafnvel í Jökulheimum, ef
snjóbfll yrði keyptur.
HAUSTFERÐ
Haustferðin í Jökulheima var farin 11.-13. septemberog
tókst vel að vanda. Fararstjóri var Stefán Bjamason.
ÁRSHÁTÍÐ
Arshátíð var haldin laugardag 30. október í Skíðaskál-
anum í Hveradölum og tókst hún ágætlega. Stjómin þakkar
þeim sem unnu að undirbúningi mjög vel unnin störf.
GJÖRFI
Skíðagöngufélagar í GJÖRFI fóm sínar venjulegu
heilsubótagönguferðir frá Nesti í Ártúnsbrekku.
FYRIRHUGAÐAR RANNSÓKNIR
Það er venja í lok þessarar skýrslu að drepa á rannsókna-
verkefni sem framundan eru. í vor mun væntanlega unnið að
íssjármælingum á Skeiðarárjökli með tilstuðlan Vegagerðar
og Landsvirkjunar. Um er að ræða 1500 km2 svæði og að
loknum þeim mælingum verður Vatnajökull allur mældur að
undanskildum Öræfajökli, litlu svæði norðan við Esjufjöll
og smájöklunum sem falla austur frá Breiðubungu. Lang-
jökull verður þá einn eftir af stóru jöklunum. Að lokinni
kortagerð af þessum jöklum mun íssjármælingum væntan-
lega beint að könnun á útbreiðslu öskulaga í jöklum til þess
að kanna afkomu jöklanna frá því öskulögin féllu. Þá kann
einnig að koma að því að borað verði til botns í einhvem
stóru hveljöklanna, m.a. til þess að kanna öskulög og fræð-
ast um eldvirkni og aldur jöklanna. Á næstu árum munu
aukasthérá landi mælingar á afkomujökla og skriði íss nið-
ur að jökulsporðum, auk jökulleysingar og sjálfvirkar veð-
urathugunarstöðvar verða settar á jökulsker. Kæmi vel til
greina að þær yrðu við alla skála félagsins. Þessar rann-
sóknir munu tengjast auknum áhuga manna á áhrifum lofts-
lagsbreytinga á afkomu jökla um allan heim.
í Grímsvötnum er á næstu ámm stefnt að auknum bor-
unum með bræðslubor gegnum íshelluna og ýmsa sigkatla
til þess að mæla hitastig og efnasamsetningu vatns. Það
yrði til aukins skilnings ájarðhitasvæðumundirjökli og eðli
jökulhlaupa. Þá er rætt um að hefja samfelldar mælingar á
vatnshæð Grímsvatna með því að koma fyrir þrýstingsmæl-
um á botni þeirra. Niðurstöður yrðu sendar með fjarskiftum
upp á Grímsfjall og síðan til byggða.
Þá vil ég geta þess að í ágústmánuði næstkomandi verð-
ur hér á landi vinnufundur um líkangerð af jöklum á vegum
Vísindastofnunar Evrópu, sem hefur aðsetur í Strasbourg.
Einnig er fyrirhugað að halda hér alþjóðlega ráðstefnu um
rof jökla árið 1995. Þá verða 100 ár frá fæðingu Jóns Ey-
þórssonar, stofnanda og fyrsta formanns þessa félags. Færi
vel á að minnast þess með slfkri ráðstefnu.
BREYTINGAR í STJÓRN FÉLAGSINS
Sveinbjöm Bjömsson, varaformaður félagsins, hefur
beðist undan endurkosningu í stjóm vegna anna sem rektor
Háskólaíslands. Hann var formaður félagsins 1986-89, hef-
ur verið varaformaður frá 1989, var ritstjóri Jökuls, 1967-
1977. Sveinbjöm tók við Jökli af Jóni Eyþórssyni, dauð-
vona, hélt uppi ritinu í áratug og ég veit að til þess þurfti hann
oft að endurskrifa fyrir höfunda fjölmargar greinar í hverju
hefti. Hann tók við félaginu af Siguijóni Rist, heilsutæpum,
þegar enginn annar fékkst til þess og stýrði því meðan það
var að ná áttum eftir að brautryðjendur höfðu fallið frá eða
látið af störfum. Það hefur verið okkur mikill styrkur að
hann hefur setið sem varaformaður eitt kjörtímabil eftir að
hann lét af formennsku. Hann hefur gert það sem hann hefur
verið beðinn um. Hann situr nú í valnefnd og ég vona að
svo geti orðið áfram. Fyrir hönd félagsmanna færi ég Svein-
birni þakkir fyrir ómetanlegt starf fyrir Jöklarannsóknafélag
Islands.
Helgi Björnsson
JOKULL, No. 43,1993
87