Jökull


Jökull - 01.12.1993, Blaðsíða 83

Jökull - 01.12.1993, Blaðsíða 83
viðkomu í sundlauginni á Brautarholti á Skeiðum. Ekki er búið að vinna úr mælingum ferðarinnar nema að litlu leyti. Frumniðurstöður og yfirlit yfir mælingar fer hér á eftir: V ök fannst á gosstöðvunum undir S víahnúk Vestri. Hæð vatnsborðsins í vökinni var 1410 m y.s. þann 19. júní. Hefur það því risið um 21 m frá sama tíma í fyrra. Landmælt var 4 km langt snið upp úr Vötnunum að norðan. Landmælingarnar vann Ingvar Þór Magnús- son, Landmælingum Islands. Vetrarafkoman í Grímsvötnum var með meira móti, mældist hún 5,96 m og vatnsgildi hennar var 3170 mm. I djúpu kjarnaholunni á Grímsvatnahellunni var rnældur eðlismassi hjarnsins og hitastig þess. Sýni voru tekin til samsætumælinga en frekari athuganir verða gerðar á kjarnanum í bænum. Issjármælingarnar tókust vel. Auk þess sem botn var kannaður á þeim stöðum sem að framan greinir fóru fram ýmsar prófanir á íssjánni. Vegna borfestunnar náði holan á Öræfajökli ekki gegnum vetrarlagið. Var kjarninn þó orðinn 11,20 m á lengd og vatnsgildi hans 5820 mm þegar hætta varð borun. Benda þessar tölur til þess að Öræfajökull sé úrkomusamasti staður á landinu og kemur e.t.v. fáum á óvart. Hitastig kjarnans var mælt og sýni tekin til samsætumælinga. Hæð Hvannadalshnúks, 2119 m, var ákvörðuð með þríhyrningamælingum sumarið 1904. Sú aðferð sem þá var notuð þykir nú úrelt en mælingar með nýj- ustu landmælingatækni hafa ekki verið gerðar. Því var í ferðinni gerð tilraun til að mæla hæð Hvanna- dalshnúks með svokölluðum DGPS mælingum. Ut kom talan 2111 m y.s. en ekki má taka hana of há- tíðlega því óvissan er talin a.m.k. 5 metrar. Ekki er því tímabært að breyta hinni viðteknu hæðartölu en rétt væri að stefna að því á næstu árum að fara með nákvæm GPS tæki til landmælinga á Öræfajökul og mæla Hvannadalshnúk og fleiri tinda. Margt hjálpaðist að til að gera þessa ferð hina ánægjulegustu. Veður var með eindæmum gott og skíðamenning því með meiri blóma en oft áður. Allir lögðust á eitt við að vinna þau verkefni sem fyrir lágu. Matráðskona og birgðastjóri var Sólveig Kristjánsdótt- ir og var hennar hlutur ekki lítill í farsælli útkomu ferðarinnar. Þá bar ferðanefnd undir forystu Astvalds Guðmundssonar hitann og þungann af undirbúningi ferðarinnar. Landsvirkjun lagði til vörubíl í ferðirnar að og frá jökli, einnig hefil til að opna leiðina inn í Jökulheima. Þar sem snjóbíll Landsvirkjunar var bilaður gat hún ekki lagt til bíl í þetta sinn. Því var tillegg Hjálpar- s veitar skáta í Hafnarfirði ómetanlegt en snj óbíll þeirra flutti allt eldsneyti og mikinn hluta annarra birgða leið- angursins á Grímsfjall. Þá vakti það Ijúfsáran söknuð margra að bíll nr. 1, Bombinn (Bombardier snjóbíll JÖRFI), hafði hægt urn sig á meðan á ferðinni stóð og hélt kyrru fyrir í híði sínu í Jökulheimum. Bílanefnd félagsins stóð þó fyllilega fyrir sínu og brást félögum hennar hvergi bogalistin við úrlausn hinna margvís- legustu verkefna, hvort heldur voru boranir, viðgerðir eða nýsmíði. JÖKULL, No. 43,1993 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.