Jökull - 01.12.1993, Blaðsíða 78
tröllslegar frá hjallanum og hornrétt á jaðar jökulsins.
Mikið sprungukraðak er í hlíðinni ofan hjallans og eru
þær samsíða jökuljaðrinum.
Framskrið virðist jafnvel meira bæði austan og
vestan við þennan mælistað [Múlajökull S]. ísstykki
féllu úr hinum háttliggjandi jaðri með brestum.“
MÝRDALSJÖKULL
Sólheimajökull - Bæði austur- og vestur-tungan
skríða fram en jökullinn hörfaði uppi á Jökulhaus.
Valur Jóhannesson tekur fram að jökullinn sé lægri
og ekki eins úfinn og undanfarin ár.
VATNAJÖKULL
Tungnaárjökull - Hafliði Bárður tók eftir því að
miklar breytingar eru orðnar á jöklinum og hann mjög
sprunginn alla leið frá sporði og upp fyrir 1200 m y.s.
Skeiðarárjökull - Við mælingu í fyrrahaust var enn
gangur í jöklinum við vestasta merkið sem Eyjólfur
á Núpsstað mælir og er framskriðið sem hér mælist
síðustu hreyturnar af framhlaupi jökulsins 1991. Að
austan er jökuljaðarinn aftur farinn að hopa.
Skaftafellsjökull - Guðlaugur bóndi á Svínafelli
veitti því eftirtekt að jökulsporðurinn gekk fram fyrr á
árinu en var kominn í sömu stöðu og í fyrra haust við
mælinguna í október.
ÖRÆFAJÖKULL
Virkisjökull - Guðlaugur tekur einnig fram að
Virkisjökull hafi þynnst en brúnin sé svo aurborin að
hún bráðnar mjög hægt.
Kvíáir-, Hrútár-, Fjalls- og Breiðamerkurjökull V
- I bréfi sem Flosi Björnsson á Kvískerjum skrifar
með mælingaskýrslum Helga bróður síns segir m.a.:
„Fjallsjökullmun og nokkuð lækkandi og Hrútárjökull
við Ærfjall, en hins vegar ekki við Múlann, þar sem
hann rekur sig á hamrabrúnina inn af Múla.
Kvíárjökull er kyrrstæður og jaðarinn að mestu
hulinn grjótjökli. Mun tilgangslaustað mælaþarfram-
vegis meðan svo er. Jökull sést þó við lónið en mun
kyrrstæður. Annars er Kvíárjökull sléttur framantil að
baki grjótjökulsins alllangt uppeftir.“
VATNAJÖKULL
Breiðamerkurjökull -1 bréfi Flosa er einnig sagt frá
því að Breiðmerkurjökullhafi lækkað verulega í sumar
langt inneftir. Steinn Þórhallsson segir á mælingablaði
sem á við staðinn næst Fellsfjalli: „A mælistað er jað-
ar jökulsins ekki eins brattur og í fyrra, annars lítil
breyting þarna. A mælistað við Jökulsá er vatnið milli
jökuls og lands svipað og í fyrra, .... og jökullinn
lægri.“
Skálafellsjökull - Breytt var stefnu á línunni sem
ákvarðast af merkjum nr. 158 og 159 þannig að hún
vísar nú beint upp eftir jöklinum.
Heinabergsjökull - Hornamælingin yfir lónið er
fremur ónákvæm og ber því að taka 90 m framskriði
jökulsins með fyrirvara.
SUMMARY
GLACIER VARIATIONS 1930-1960,1960-1990, and
1991-1992
In late summer and fall 1992 glacier variations
were recorded at 39 locations, 11 tongues showed ad-
vance, 2 were stationary and 21 retreated. Five of
the visited stations were inaccessible because of snow,
lagoons or debris.
The summer of 1992 was a cool one with frequent
snow fall in the highlands particularly in the north.
Ablation was thus exceptionally low.
Múlajökull started surging in late summer and was
at full speed at the time of measurement. Three other
glaciers not regularly measured surged this period, i.e.
SE part of Hofsjökull, southern part of Köldukvíslar-
jökull in W-Vatnajökull and NW corner of Mýrdals-
jökull. In the table of glacier variation there is now
a sign by each glacier that is considered a surge-type
glacier.
Results of direct measurements of mass balance
that are carried out at the National Energy Authority
and the Science Institute of the University are reported
in table 1.
76 JÖKULL, No. 43, 1993