Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 13
Fréttir 13Helgarblað 24.–27. október 2014 E bólufaraldurinn sem nú geis- ar í Vestur-Afríku hefur sýkt um 8.600 manns og lagt um helming þeirra að velli. Talið er að tilfellin séu miklu fleiri, jafnvel tugþúsundir. Fjöldi hjálp- arstarfsmanna hvaðanæva að úr heiminum hefur starfað um lengri eða styttri tíma í þeim löndum sem verst hafa orðið úti. Meðal þeirra eru hjúkrunarfræðingurinn Magna Björk Ólafsdóttir og Gísli Rafn Ólafs- son, sérfræðingur í upplýsingatækni á hamfarasvæðum. Dánartala sjúk- dómsins er mjög há, eða 30 til 90 prósent. Núverandi faraldur er sá mesti hingað til og sá fyrsti sem fram kemur í Vestur-Afríku. Hann hefur að mestu verið bundinn við Gíneu, Síerra Leóne og Líberíu. n Íslendingar í eldlínu ebólu n Forðast smit með öllum tiltækum ráðum n Fólk hvatt til að borða ekki apakjöt Óttast ekki smit Magna Björk Ólafsdóttir hjúkrunar- fræðingur dvaldi í Síerra Leóne sem sendi- fulltrúi á vegum Rauða krossins síðasta sumar og gegndi starfi heilbrigðisfulltrúa Rauða krossins fyrir allt landið. Hún segir tilfellum ebólu í landinu fara fjölgandi. „Dánartíðnin getur verið allt upp í 90 pró- sent en hefur verið 50 til 60 prósent. Ekki er til nein þekkt meðferð og því er fræðsla svo mikilvæg til að koma í veg fyrir smit.“ Starf Mögnu fólst að mestu í að styðja landsfélag Rauða krossins og var hún því í nánu samstarfi við sjálfboðaliða við að skipuleggja hvernig best væri að miðla fræðslu um ebólu til íbúa landsins. „Stærsta hlutverkið var þó að skipuleggja greftranir því þörfin var mikil.“ Magna segir ebólu smitandi fyrst eftir andlát og því mikilvægt að setja upp gott kerfi og bregðast fljótt við og koma í veg fyrir að fólk snerti lík. „Þá eru sérstakar reglur um tegund líkpoka, hversu djúp gröfin á að vera og hversu langt er á milli grafa.“ Allt snýst um ebólu Að sögn Mögnu snertir útbreiðsla ebólu daglegt líf fólks í Síerra Leóne og í fjöl- miðlum er vart fjallað um annað. „Áhrifin eru víðtæk og búið var að loka skólum og hindra að fólk kæmi saman. Sums staðar var búið að loka mörkuðum og jafnvel setja heilu þorpin í einangrun. Til langframa á þetta eftir að hafa gífurleg áhrif á efnahag og lifibrauð íbúa landsins,“ segir hún. Ekki hættuför Magna hefur farið í nokkrar ferðir sem sendifulltrúi Rauða krossins, meðal annars til Haíti, Íraks og Filippseyja. Hún kveðst ekki hafa litið á ferðina til Síerra Leóne sem hættuför. „Ég sá þetta sem faraldur því þarna er smitsmjúkdómur að breiðast út. Maður gæti ekki unnið þetta starf ef maður væri hræddur um að smitast. Ef fólk fylgir leiðbeiningum og veit hvernig það á að haga sér gengur yfirleitt vel þó að auðvitað geti orðið slys.“ Magna dvelur nú í Swiss og starfar fyrir Alþjóða Rauða krossinn og hefur umsjón með námskeið- um fyrir sendifulltrúa á leið til starfa á spítölum í þeim löndum þar sem ebóla hefur breiðst út. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagny@dv.is Fólk hvatt til að snertast ekki Gísli Rafn Ólafsson er yfirmaður neyðar- mála hjá Net Hope sem eru regnhlífar- samtök 41 stærstu hjálparsamtaka í heimi og dvaldi hann í Líberíu í tíu daga fyrr í mánuðinum. Talið er að rúmlega 4.000 manns hafi smitast af ebólu í Líberíu en íbúar landsins eru um fjórar milljónir. Gísli segir að lífið gangi að mestu leyti sinn vanagang hjá almenningi. „Smitaðir eru lítið brot af heildarfjöldanum. Það er þó mikill ótti við að smitast og er reynt að fá fólk til að breyta ýmsum venjum sínum til að minnka líkur á smiti. Til dæmis er fólk hvatt til að hætta að heilsast og snertast. Í frumskógunum er algengt að fólk borði apakjöt og leðurblökur og er því reynt að fá fólk til að hætta því til að minnka líkur á smiti.“ Bæta flæði upplýsinga Í Líberíu vann Gísli að úttekt á fjarskipta- málum og nauðsynlegum útbótum til að bæta viðbrögð vegna ebólu. „Mitt hlutverk var að taka út fjarskipta- og upplýsinga- kerfin í landinu til að hægt væri að sjá hvað þyrfti að koma með inn til að bæta fjarskiptin og upplýsingaflæðið sem er takmarkað í dag. Talið er að fjöldi smitaðra sé mun meiri en opinberar tölur segja til um,“ segir hann. Gísli segir farsímakerfin í Líberíu ekki byggð með mikla notkun í huga enda sé byggð mjög strjál fyrir utan höfuðborgina. „Stór hluti landsins er frum- skógur og lítil þorp og því mjög erfitt og ekki talið fjárhagslega hagkvæmt að setja upp farsímakerfi alls staðar. Talið er að á bilinu 40 til 60 prósent fólks eigi farsíma, sem er ágætt en þó lægra hlutfall en í mörgum öðrum Afríkuríkjum.“ Aðeins 50 læknar Tíu ár eru liðin síðan 18 ára borgarastyrjöld lauk í Líberíu og því eru innviðir landsins mjög viðkvæmir. „Þegar ebóla fór að breiðast út voru aðeins 50 læknar í landinu öllu. Alþjóðasamfélagið er á fullu að veita aðstoð og þetta er mjög stórt verkefni þegar ekki eru neinir spítalar sem geta tekið við sjúklingum. Það þarf að byrja á að reisa tjaldsjúkrabúðir til að taka við sjúklingum og reyna að aðstoða þá. Fyrir hvern sjúkling þarf tæplega fimm starfsmenn og því er stórmál að fá þjálfað fólk sem getur unnið við þessar aðstæður.“ Handsprittið mikilvægt Gísli hefur áður starfað á hamfarasvæðum og aðspurður hvort hann hafi óttast að smitast af ebólu í Líberíu segir hann alltaf hættu til staðar á hamfarasvæðum en að hann reyni að meta hana og lágmarka með öllum tiltækum ráðum. „Maður var ekki að heilsa neinum og notaði einn brúsa af handspritti á dag og ýmislegt þess háttar til að takmarka áhættuna.“ Hann bendir á að hættulegast sé að vera í framlínunni að hjúkra sjúklingum. Mælir hitann tvisvar sinnum á dag Þegar Gísli flug frá Líberíu til Brussel í síðustu viku fór hann í athugun hjá Bandarísku sótt- varnastofnuninni, CDC, sem er með teymi á flugvellinum í Líberíu. Þar svaraði Gísli spurn- ingum um heilsufar og hiti hans var mældur. Það sama var svo gert í Brussel. Í 21 dag eftir komuna þangað mun hann mæla líkamshit- ann tvisvar sinnum á dag og fylgjast með að engin af einkennum ebólu geri vart við sig, eins og uppköst, niðurgangur og hiti. Fer líklega aftur til Líberíu Gísli hefur starfað undanfarin fjögur ár hjá Net Hope og var áður í þrjú ár hjá Microsoft, þá einnig við ráðgjöf um notkun upplýs- ingatækni í hamförum. Núna dvelur hann í Brussel við undirbúning á uppsetningu gervihnattabúnaðar í þeim löndum sem verst hafa orðið úti eftir ebólufaraldurinn. Fjölskylda Gísla býr á Íslandi og kemur hann heim um miðjan nóvember en segir líklegt að hann fari aftur til Vestur-Afríku og hafi umsjón með uppsetningu á búnaðinum. „Við verðum með mjög öflugt starf þarna næstu þrjá til sex mánuðina svo ég geri ráð fyrir að fara þangað aftur. Þá verð ég reynsl- unni ríkari og með nóg af handspritti.“ Síerra Leóne Greftrunarteymi að störfum. Lík eru meðhöndluð á sérstakan hátt til að koma í veg fyrir smit. LjóSMynD/REutERS Sendifulltrúi Rauða krossins Magna Björk Ólafsdóttir hjúkrunar- fræðingur . Á hamfarasvæðum Gísli Rafn Ólafsson. Myndin er tekin á Haítí eftir jarðskjálftann mikla árið 2010. „Smitaðir eru lítið brot af heildarfjöldanum Síerra Leóne Líbería Gínea Ebólufaraldurinn í Afríku Þau lönd sem hafa orðið verst úti Ebólufaraldurinn sem nú geisar í Vestur- Afríku hefur, samkvæmt op- inberum tölum, sýkt um 8600 manns og dregið um helming þeirra til dauða. Talið er að tilfellin séu miklu fleiri, jafn- vel tugþúsundir. Ebóluveiran greindist fyrst árið 1976 í Kongó og Súdan. Dánartala er mjög há, eða 30 til 90 prósent. Núverandi faraldur er sá mesti hingað til og sá fyrsti sem fram kemur í Vestur-Afríku. Hann hefur að mestu verið bundinn við Gíneu, Síerra Leóne og Líberíu. Hann hófst í desember 2013 með andláti tveggja ára barns, en hans varð þó ekki að fullu vart fyrr en í mars 2014 í landamærahéruðum Gíneu. Heimild: Vísindavefurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.