Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 28
Helgarblað 24.–27. október 201428 Fólk Viðtal
Þ
etta hékk yfir mér í fjögur
ár en nú er langþráður
dómur fallinn. Ég hef
fengið uppreisn æru,“ seg-
ir Mummi Týr Þórarinsson
eða Mummi í Götusmiðjunni eins
og hann er jafnan kallaður. Nýlega
féll dómur í meiðyrðamáli Mumma
gegn Braga Guðbrandssyni, for-
stjóra Barnaverndarstofu. Ummæli
Braga frá árinu 2010, um að Mummi
hefði hótað krökkum vistheimilisins
ofbeldi, voru dæmd dauð og ómerk.
Götusmiðjunni var lokaði en nú
fjórum árum síðar er Mummi stað-
ráðinn í að opna hana aftur.
Skömmin erfiðust
„Ég var úthrópaður ofbeldismaður
og kynferðisafbrotamaður. Fólk
hreytti í mig ónotum og ruglað-
ist á mér og Gumma í Byrginu. Ég
forðaðist að fara niður í bæ,“ segir
Mummi sem missti algjörlega und-
an sér fæturna fyrir vikið. „Ég dró
mig inn í skel og týndist. Ég var 52
ára og Götusmiðjan var ævistarf
mitt. Fólk á erfitt með að trúa að það
geti einhver starfað í þessu af hug-
sjón og ég þurfti að sitja undir ásök-
unum um að ég væri í einhverjum
„monkey-business“. Breiðavíkur-
málið var í umræðunni og Byrgið
og hverju vistheimilinu á fætur öðru
var lokað. Við vorum öll sett undir
sama hatt, þóttum öll sömu krimm-
arnir.
Ég varð örugglega þunglyndur,
gerði alls konar þvælu, hljóp út
undan mér, fór til Las Vegas og gifti
mig en það hjónaband entist í kort-
er. Ég gerði alls kyns gloríur. Ég var
bara svo týndur,“ segir Mummi sem
ákvað loks að taka á sínum málum.
„Það erfiðasta í þessu öllu saman
hefur verið skömmin. Ég er af þeirri
kynslóð sem er alin upp undir þeim
formerkjum að þurfa að standa sig.
Skömmin yfir því að hafa verið tek-
inn niður, ekki í bakherbergi, held-
ur fyrir framan alla þjóðina, var yf-
irþyrmandi. Fjölmiðlar hjóluðu í
mig og RÚV tók þá stöðu að ég væri
þessi maður. Ég var máttlaus rödd
að reyna að standa á móti þessu.
Á kvöldin á koddanum hugsaði ég
með mér að það bara hlyti að vera
eitthvað mikið að mér. Þetta var
mikill rússíbani.“
Íhugaði að stiga til hliðar
Mummi hefur aldrei sagt sína hlið
en fær hér tækifæri til þess: „Ég kem
úr fríi árið 2010 og fer beint á fund
hjá Barnaverndarstofu. Bragi spyr
hvort ég sé ekki orðinn þreyttur og
býður mér að hverfa út úr Götu-
smiðjunni. Ég segist ætla að skoða
það og hugsa með mér að kannski
sé þetta orðið fínt; að minn tími sé
kominn. Ég var hreykinn af starf-
inu, nú gæti annar tekið við keflinu.
Ég var til í að stíga til hliðar ef Götu-
smiðjan yrði rekin áfram og það
eina sem ég bað um var að skuld-
irnar yrðu yfirteknar og að ég hefði
sex mánuði til að fóta mig í lífinu.
Það var allt guðvelkomið. Það sem
ég vissi hins vegar ekki var að Bragi
hafði þegar lagt til við félagsmála-
ráðuneytið að Götusmiðjunni yrði
lokað í sparnaðarskyni. Þegar ég
kemst að því dreg ég samninginn til
baka, segi nei takk.“
Kem í eyðibýli
Mummi segist síðan hafa lent í
orðaskaki við starfsmann sem
Bragi hafi ráðið inn á Götusmiðj-
una. „Hann neitar að taka fyrirmæl-
um frá mér og segist aðeins taka
við fyrirmælum frá Barnaverndar-
stofu. Hann verður það æstur að
ég bið hann rólega að yfirgefa stað-
inn. Þarna voru krakkar í meðferð
sem ég vildi ekki að yrðu vitni að
þessum látum. Hann fer af staðn-
um en nær fyrst að segja við krakk-
ana að ég hefði rekið hann, sem ég
gerði alls ekki. Daginn eftir verður
þessi örlagaríki fundur. Krakkarnir
eru reiðir við mig fyrir að hafa rekið
starfsmanninn. Við spjöllum saman
og ég útskýri að ég hefði ekki rekið
hann, aðeins beðið hann að fara
heim þar sem hann hafi ekki verið
í jafnvægi. Ég bið krakkana um að
standa við bakið á honum og sýna
Ég var tekinn af lífi
Mummi Týr Þórarinsson
er mættur aftur eftir að hafa látið
lítið fyrir sér fara síðustu fjögur árin.
Mummi segist hafa fengið uppreisn
æru eftir að dómur í meiðyrðamáli
féll honum í vil. Mummi ræðir hér
um Götusmiðjuna, deilurnar við
forstjóra Barnaverndarstofu, erfiða
æsku, foreldrana sem brugðust
honum, ástina og börnin á götunni
sem eiga hjarta hans.
honum trúnað. Í kjölfarið fer um-
ræðan að snúast um trúnað og
umræðan færist út á götu. Krakk-
arnir tala um hvað sé lítill trúnað-
ur á götunni, að hann þekkist ekki
í eiturlyfja heiminum. Þá segi ég að
ef trúnaður í undirheimum sé ekki
virtur sé fólk einfaldlega hnébrotið.
Það var engin hótun meint til krakk-
anna og þau voru alveg sammála
því út frá sínum reynsluheimi. Svo
lýkur fundinum og allir eru glaðir.
Tveimur dögum seinna er ég á
fundi í borginni þegar ég fæ símtal
frá lögfræðingi mínum um að stór-
skotaliðið sé mætt austur, það er
Bragi og félagsmálastofnun Kópa-
vogs. Þá var búið að „tvista“ um-
ræðuna þannig að ég á að hafa sagt
að ef unglingarnir héldu ekki trún-
að við mig þá myndi ég hnébrjóta
þau! Á þessu byggði Bragi þau rök
að ég hefði beitt þau hótunum.
Þegar ég kem austur er búið að
loka staðnum. Ég kem bara í eyði-
býli og blaðamenn eru farnir að
hringja í mig. Bragi fór sjálfur með
þetta í fjölmiðla. Ég var bara jarðað-
ur, markmiðið var að breyta mér í
Gumma í Byrginu,“ segir Mummi og
bætir við að það hafi verið reiðarslag
fyrir mann eins og hann sem gefi
sig út fyrir að vera heiðarlegur. „Og
trúðu mér, ef ég ætlaði að krimmast
myndi ég gera það á stærri skala en
að ræna meðferðarheimili. Það er á
hreinu.
Ég margbað um að fá lögreglu-
rannsókn á þessu því hótun um
líkamsmeiðingar er klárlega lög-
brot. Bragi hafnaði þeirri beiðni al-
farið en tók sér fullt rannsóknar-
leyfi, dómarastöðu og sá um
aftökuna og jarðaði mig og starf-
semina. Blóm og kransar voru af-
þakkaðir af hálfu Barnaverndar-
stofu. Ég og lögfræðingur minn
sendum lögreglunni bréf en feng-
um þau svör að það væri engin
ástæða til að skoða þetta.
Braga kom ekkert við ágrein-
ingur milli mín og ónefnds starfs-
manns þar sem Götusmiðjan
var algerlega sjálfstætt batterí
en Barnaverndastofa hafði, lög-
um samkvæmt, eftirlitsskyldu. Þar
höfðum við alltaf komið út með A+
einkunn. Þeir pappírar eru til hjá
Barnaverndarstofu ef einhver vill
skoða.“
Með kjaftforari mönnum
Mummi segir þeim Braga aldrei
hafa verið vel til vina. „Ég var
óþægileg stærð, var með kjaft-
forari mönnum og hjó fólk ósvíf-
inn niður. Ég reif kjaft og var dug-
legur í því. Mér fannst samfélagið
bara svo áhugalaust gagnvart þess-
um krökkum og tók þessu öllu
svo persónulega. Ég þekkti þessa
krakka, hvernig átti ég ekki að taka
þessu persónulega?
Ég fór í taugarnar á kerfinu. Ég
kem úr þessu umhverfi, er kvik-
myndagerðarmaður að mennt, en
ekki sálfræðingur eða uppeldis-
fræðingur, er þessi gaur með þessa
miklu lífsreynslu og spurði óþægi-
legra spurninga. En ef þú móðgar
kerfið meiðir kerfið þig til baka.“
Hann segist vita um afdrif krakk-
anna sem fluttir voru út þegar
Götusmiðjunni var lokað. „Sum
fóru heim en öðrum var reynt að
koma fyrir á fósturheimilum,“ segir
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Fólk
hreytti
í mig ónotum
og ruglaðist á
mér og Gumma
í Byrginu