Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Side 33
Helgarblað 24.–27. október 2014 Fólk Viðtal 33 uð og átti erfitt með að treysta fólki. Ég treysti bara á sjálfa mig. Ég hef reyndar unnið mikið í því síðustu árin. Þetta var nefnilega þannig að eftir að málinu lauk þá var þetta ekkert rætt í mörg ár. Þetta var það sárt og erfitt allt saman.“ Það gekk ýmislegt á milli foreldra hennar og allt samfélagið í kringum þau dróst inn í deilurnar. Úr urðu ýmsar lögfræðiflækjur og að lok- um fór málið fyrir dómstóla. „Þetta snerist bara um hvar hag okkar systkininna yrði betur borgið,“ út- skýrir Þórhildur. Ætlaði að verða barnasálfræðingur Hún segir deilum foreldra sinna þó hafa lokið á farsælan hátt, en á end- anum fékk móðir hennar forræðið yfir þeim systkinunum og þau bjuggu hjá henni á Flúðum. Fað- ir hennar bjó í Reykjavík og systk- inin heimsóttu hann eitthvað um helgar. Þórhildur segir þau systkinin í raun ekki hafa fengið almennilega fagaðstoð vegna deilna foreldra sinna. „Ég talaði við einhverja sál- fræðinga sem krakki en ég sá svo í gegnum þá. Mér fannst þetta svo asnalegt og þeir spurðu mig asna- legra spurninga. Mér fannst þetta ekkert hjálpa mér. Eftir þetta ætlaði ég mér lengi vel að verða barnasál- fræðingur svo ég gæti í alvörunni hjálpað börnum. Mér fannst þetta fólk nefnilega ekki geta hjálpað okkur.“ Lætur sjúkdómin ekki stoppa sig Mörkin á milli frekju og ákveðni eru ekki alltaf skýr, og Þórhildur segist nú ekki bara vera frek, heldur sé hún líka ákveðin. Hún segir það lýsandi fyrir ákveðni sína hvern- ig hún tókst á við það þegar hún greindist með sykursýki 1 þegar hún var þrettán ára. „Það var ákveðin sorg. Það var mjög erfitt fyrir mig sem ungling að þurfa allt í einu að breyta lífi mínu. Ég man bara þegar ég þurfti að sprauta mig sjálf í fyrsta skipti. Þetta er minning sem ég gleymi aldrei og mér fannst heimi mínum kollvarp- að. Ég er með mjög mikla sprautu- fóbíu og finnst óþægilegt að fara í sprautur, en þetta er eitthvað sem ég er orðin vön, enda búin að gera þetta mörgþúsund sinnum,“ segir Þórhildur en hún þarf að sprauta sig með insúlíni nokkrum sinnum á dag. „Eftir að ég komst upp á lag- ið með þetta þá ákvað ég að láta þennan sjúkdóm ekki stoppa mig. Ég hef líka kosið að líta ekki á þetta sem sjúkdóm, þetta er bara hluti af mér. Allir hafa sinn djöful að draga og þetta er minn. Ég var allavega það heppin að ég fékk sjúkdóm sem get lifað með og hann þarf ekk- ert að há mér.“ Insúlínið hvarf í Kambódíu Þegar Þórhildur fór í Asíureisu fyrir fjórum árum varð hún því að gjöra svo vel að drösla með sér þriggja mánaða skammti af insúlíni, sem var töluverð fyrirhöfn. „Ég reyndi að „gúgla“ hvernig ætti að ferðast með sykursýki í allt öðru loftslagi en það er mjög lítið til af upplýsing- um um það. Við vorum náttúrulega að fara í skítugt bakpokaferðalag en ekki gista á flottum hótelum. Ég var með insúlínið í sér tösku sem var svolítið pirrandi, en það erfiðasta var að lyfið þarf að geymast í kæli. Ég var allaf að redda mér klakapok- um í sjoppum til að skítmixa þetta,“ segir hún hlæjandi. „Stundum voru ísskápar í herbergjunum sem við gistum í en annars þurfti ég bara að treysta fólkinu í móttökunni til að geyma þetta fyrir mig. Svo lenti ég í því í Kambódíu að meginhluti lyf- janna var horfinn þegar ég kom að sækja þau.“ Þórhildur fékk eðlilega mikið áfall, enda er í raun ekkert heil- brigðiskerfi í Kambódíu og ferða- menn sem veikjast þar eru fluttir til Taílands. „Málið með sykursýki er að ef þú færð ekki insúlín þá get- ur þú dáið á innan við sjö dögum. Þetta er jafn nauðsynlegt og súrefni fyrir líkamann,“ útskýrir hún hrein- skilin. Eftir smá panikkástand fann hún hins vegar stóran hluta af insúlín- pennunum á víð og dreif í nágrenni gististaðarins. Hún komst aldrei að því hvað gerðist, en telur líklegt að einhver forvitinn hafi komist í pakk- ann en fljótlega áttað sig að þetta var ekkert merkilegt. Hamingjusöm með Hjalta Aðspurð hvort hún hafi orðið fyr- ir einhverju áreiti, þá aðallega frá karlpeningnum, eftir að andlit hennar fór að birtast á sjónvarps- skjáum landsmanna, segir Þórhild- ur það hafa verið eitthvað. Þó ekkert neikvætt. Aðallega hefur verið um pot á Facebook að ræða og einhver skilaboð. Henni þykir þó ekki heill- andi að láta pota í sig með þessum hætti og kýs þá frekar að fá símtöl eða sms-skilaboð. Í vikunni voru því eflaust ein- hver hjörtu kramin þegar fréttir af því bárust að Þórhildur væri farin að slá sér upp með Hjalta Harðar- syni, framkvæmdastjóra Kjarnans. En hann potaði einmitt ekki í hana á Facebook. „Við kynntumst í sumar og það gengur mjög vel og við erum voða hamingjusöm,“ segir Þórhild- ur og verður hálffeimin. Hún vill lítið ræða sambandið, enda tiltölu- lega nýhafið og hún veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Lærði að lifa í núinu og keypti sófa „Líf mitt hefur svolítið einkennst af því að ég hef alltaf verið að leita að nýju ævintýri og lifa í morgundeg- inum. Lifa í framtíðinni. Ég stóð mig til dæmis að því þegar ég var á ferðalagi um Asíu að vera að hugsa um hvað ég ætti að gera næst. Eft- ir að ég byrjaði að vinna sem frétta- maður þá fann ég mig svo mikið og fann ástríðuna fyrir því sem ég var að gera, og þá breyttist þetta. Þá fór ég meira að lifa hvern dag fyrir sig og ekki hugsa jafn mikið um fram- tíðina eins og ég gerði. En ég er nátt- úrulega bara 24 ára og fullorðnað- ist mjög hratt. Ég upplifi mig mjög unga og finnst ég eiga rosalega mik- ið eftir og inni,“ segir Þórhildur og brosir. „Ég var til dæmis að kaupa mér sófa í fyrsta skipti,“ segir hún ánægð og bendir á fallegan ljósan tungusófa sem passar vel inn í bjarta stofuna. „Ég fékk alveg hrað- an hjartslátt þegar ég skrifaði undir kaupin í búðinni. Mér fannst þetta eitthvað svo varanlegt og hugs- aði með mér, hvað ef ég flyt út á morgun? Eins og hefur verið hugs- unarhátturinn minn, ég hef alltaf getað farið án fyrirvara. Það var skuldbinding fyrir mig að kaupa þennan sófa og mér fannst það mjög fullorðinslegt skref.“ Unga konan sem bjó í ferðatösku þangað til fyrir einu og hálfu ári er því orðin ansi ráðsett í miðbænum. Eigandi kattar og nýs tungusófa. Lifði af bílslys fyrir kraftaverk Þórhildur segist sem betur fer ekki hafa orðið fyrir miklum áföllum í líf- inu. Eða það er allavega ekki henn- ar upplifun. „Ég er mjög lítið í því að vorkenna mér út af einhverju sem kemur fyrir mig, eða aðstæð- um sem ég lendi í. Ef ég hefði dottið í einhverja vorkunn í hvert einasta skipti sem eitthvað hefði komið upp á, þá væri ég einhvers staðar annars staðar. Þetta er svolítið „áfram veg- inn“ viðhorf.“ Hún lenti þó í alvarlegu bílslysi fyrir rúmu einu og hálfu ári á Skeiðavegi. Þau voru fjögur í bíln- um á leið heim af balli og Þórhildur sat í farþegasætinu þegar ökumað- urinn sofnaði undir stýri á um 90 kílómetra hraða. „Ef við hefðum ekki verið í beltum þá hefðum við öll dáið. Þetta var algjört kraftaverk. Bíllinn fór út af veginum og við fór- um þrjár, fjórar veltur og enduðum í skurði.“ Þórhildur reynir að sýna það með höndunum hvernig bíll- inn valt og endaði með ótrúleg- um hætti ofan í skurði, en það varð þeim hugsanlega til lífs. „Í skurðin- um var vatn, mýrarrauði og mold þannig undirlagið var mjúkt. Við lentum ekki á jörðinni, á vegg eða götunni. Þetta var mikið áfall. Ég rankaði við mér í vatni upp á bringu og við vissum ekkert hvort við kæm- umst út. Ég var ansi vönkuð og slös- uð eftir þetta, en það brotnaði samt ekkert. Við hefðum ekki geta ver- ið heppnari. Allir sem komu þarna að, sjúkraflutningamenn og lækn- ar, sögðu að þetta væri ótrúlegt og algjör mildi að ekki hefði farið verr.“ Hélt hún myndi deyja En hvað hugsaði hún þegar hún átt- aði sig á því að bíllinn var á leið út af veginum? „Það fyrsta sem ég hugs- aði var: „jæja, nú er þetta búið. Þetta eru mín örlög“. Ég hélt það yrðu mín örlög að deyja í þessu bílslysi. Ég hugsaði það í veltunni en svo datt ég út og rankaði ekki við mér fyrr en við vorum í skurðinum.“ Þórhildur segir að þau hafi í raun ekki vitað hvort þau kæmust út úr bílnum eða ekki. Það var svarta- myrkur og kalt vatnið umlukti þau. Bíllinn var alveg ofan í skurðinum og þau því illsjáanleg frá veginum. Það var hins vegar fyrir algjöra til- viljun að vinur hennar, sem sat í aftursætinu, hafði náð að halda á símanum sínum í veltunni og forða honum þannig frá því að lenda í vatninu. Hann gat því hringt eftir hjálp. „Þetta fór sannarlega betur en á horfðist. Við komumst öll heil frá þessu og gjörsamlega sigruðum þetta. Það er svo fjarlægt manni að lenda í bílslysi og maður hugs- ar aldrei að þetta geti komið fyrir sig. Þetta var ekki skemmtileg lífs- reynsla en allt svona fær mann til þess að hugsa skýrar,“ segir Þórhild- ur alvarleg í bragði. Hefur unnið fyrir hlutunum Að lokum leikur blaðamanni forvitni á að vita hvort svona ung, en samt lífsreynd kona, líti á eitt- hvað eitt í lífi sínu sem sérstakt af- rek? „Allir litlir sigrar eru sigrar út af fyrir sig. Ég hugsa mikið þannig að ég búi mér sjálf til tækifæri. Ég fæ stundum að heyra frá alls kon- ar fólki að ég hafi verið heppin að fá hitt eða þetta tækifærið. En staðreyndin er bara sú að þú upp- skerð eins og þú sáir og þú þarft að vinna fyrir hlutunum. Það er algjör- lega þannig í mínu tilfelli. Ekkert sem hefur gerst hef ég fengið upp í hendurnar. Þetta er bara þrotlaus vinna,“ segir Þórhildur ákveðin „Það fer í taugarnar á mér þegar fólk stimplar mig á ákveðinn hátt og er fullvisst um að ég hafi verið ráðin í vinnu af þessari eða hinni ástæð- unni. Af því ég er ung og sæt kona. Ég þoli þetta ekki. Eins og mað- ur geti ekki verið frambærilegur og klár. Í fréttabransanum þá er það oft þannig að ungir strákar sem koma inn eru strax mjög efnilegir á með- an ungar konur þurfa miklu meira að sanna sig. En þetta er sem bet- ur fer að breytast,“ segir Þórhildur, þessi skelegga fréttakona, að lok- um. n Fullorðnaðist allt of hratt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.