Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Qupperneq 54
Helgarblað 24.–27. október 201454 Fólk
Sveinbjörg
Breiðholtsbúi
Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, borgarfulltrúi Framsókn-
ar og flugvallarvina, verður brátt
Breiðholtsbúi og tilkynnti hún
það formlega á Facebook-síðu
sinni í vikunni. Fjölmargir vina
hennar kunnu að meta færsluna
og eru væntanlega ánægðir fyrir
hennar hönd. Sveinbjörg sagði
frá því í helgarviðtali í DV fyrir
skömmu að hún byggi þröngt
og hefði gert í töluverðan tíma.
Þá hefur hún verið í skamm-
tímahúsnæðislausnum og því
flutt ansi oft á síðustu árum. Hús-
næðið í Breiðholti mun vera eitt-
hvað rýmra en núverandi hús-
næði og einnig til frambúðar. Það
er því ekki nema von að Svein-
björg sé kát.
n Segist ekki vera einkaþjálfari fræga fólksins
E
inkaþjálfarinn Antoine
Hrannar Fons er ekki allur
þar sem hann er séður. Eftir
áramót er hann að fara í BA-
nám í frönsku en hefur nú
þegar lokið leiklistarnámi, IcelandA-
ir-prófi til að verða flugþjónn og
einkaþjálfaranámi ÍAK. Þess utan
hefur hann klárað hálft mastersnám
í fjölmiðlafræði. „Mér finnst gaman
að læra og þar sem ég get gert það
samhliða vinnu án þess að taka lán
þá er það alveg frábært,“ segir hann.
„Ég hef verið að mennta mig rosa-
lega mikið og mér fannst vera kom-
inn tími til að vinna við eitthvað sem
ég er búinn að mennta mig í. Ég ætl-
aði að fara í fjölmiðlafræði og komst
inn í mastersnám í því í Háskóla Ís-
lands en ákvað á sama tíma að fara
í inntökuprófið
hjá ÍAK á Keili í
einkaþjálfun og
komst þar inn
líka. Ég ákvað að
gera það frekar
og hef verið að
vinna hjá Laug-
um síðan ég út-
skrifaðist úr því
námi.“
Vinsæll
þjálfari
Antoine er afar
vinsæll þjálfari
og alltaf mikið
að gera hjá
honum. Ein-
hvern veginn
æxlaðist það
svo að hann
fékk nokkra
nafntogað fólk í þjálfun
til sín eins og Unnstein í Retro
Stefson, Emmsjé Gauta, Högna í
Hjaltalín, Björgu Magnúsdóttur og
Katrínu Oddsdóttur. En hann vill
þó ekki kannast við að vera einka-
þjálfari fræga fólksins. „Nei, það er
mjög kjánalegt að segja það, ég er
bara einkaþjálfari og fæ viðskipta-
vini,“ segir hann og hlær. „Ég vakna
eldsnemma á morgnana og byrja
að þjálfa. Ég get ráðið tíma mín-
um mikið sem þjálfari. Ef eitthvað
kemur upp á
hjá mér eða
þeim sem
ég þjálfa þá
er því bara
reddað. Ég
er minn eigin
herra. Ég er
heldur ekkert
að skamma
fólkið ef það
mætir ekki
nema það geri það að vana sínum.
Þá kannski læt ég það gera auka
armbeygjur eða gef þeim smá spark
í rassinn.“
Allt er gott í hófi
Antoine finnst mikilvægt að ýta fólki
ekki of hratt út í líkamsrækt og að
allt sé best í hófi. „Ef fólk er nýbyrj-
að og hefur ekki hreyft sig í mörg ár
kannski er ekki gott að ýta of mikið á
það. Þetta verður gera í stigum. Byrja
rólega og þjálfa fólk upp. Ég funda
yfirleitt með fólki í byrjun og þá kem-
ur í ljós að það vill léttast eða kom-
ast í form einn, tveir og tíu. En þetta
er maraþon, ekki spretthlaup. Eins
skiptir máli hvern þú ert að þjálfa,
það er ekki hægt að láta fitness-
gaur og sextuga konu taka sömu æf-
ingarnar. Mér finnst það vera svolítið
þannig í crossfit, að sama er sett yfir
alla. En það er líka öðruvísi í svona
hópþjálfun en einkaþjálfun. Þú sérð
meira um þig sjálfur í hópi og mað-
ur þarf kannski meiri aga til að vera
í þannig íþrótt. Einkaþjálfarar hreyfi-
greina fólk til að sjá hvernig æfingar
hentar hverjum og einum. Ég hef alls
ekkert á móti crossfit, maður þarf
bara að passa sig. Allt er gott í hófi.“
Ekki lögverndað starf
Hver sem er getur titlað sig einka-
þjálfara í dag þar sem starfsheitið er
ekki lögverndað. „Að mínu mati er
mjög mikilvægt að vera allavega með
grunnþekkingu á því hvernig vöðv-
ar og líkaminn virkar ef maður ætl-
ar að titla sig einkaþjálfara. Ég fékk
mjög góðan grunn, ég kláraði 60 ein-
ingar í skólanum á Keili. Þetta er eitt
besta einkaþjálfaranámið á Íslandi
því maður lærir alla anatómíu og
lífeðlisfræði til dæmis, sem maður
getur svo notað mikið í þessu starfi.
En svo er líka mikilvægt að vera vel
upplýstur því það er alltaf eitthvað
nýtt að koma fram, greinar og rann-
sóknir og slíkt. Ég reyni líka að halda
mér við með því að fara á nám-
skeið hjá ÍAK sem eru mjög flott og
eru sérstaklega gerð fyrir útskrif-
aða þjálfara. Á þessi námskeið eru
fengnir prófessorar frá Bandaríkj-
unum og Evrópu til dæmis. Þetta er
bara eins og hvert annað fag, maður
hættir ekkert að læra þó að mað-
ur sé útskrifaður,“ segir Antoine að
lokum. n
Með næstum
5 háskólagráður
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
Hálfgerður eilífðarstúdent Antoine
finnst gaman að læra og segist vera
í þeirri frábæru stöðu að geta farið í
háskólanám án þess að taka lán.
Antoine Fons
Til í slaginn í Laugum.
„Eins og þú sért að fá rafstuð“
Arna Birna keppir í popping um helgina
É
g gæti ekki hugsað mér lífið án
dans, ég er alltaf dansandi. Ég
hef prufað allt, djassballett,
ballett og samkvæmisdansa
en fann mig best í hiphopp-
inu,“ segir Arna Birna, dansari og
fyrsta árs nemi í Menntaskólanum
við Sund.
Arna Birna byrjaði að læra ball-
ett þegar hún var sex ára en færði
sig yfir í „street“-dans þegar hún
var tíu. Hún segir ballettgrunninn
hafa hjálpað í street-dansinum.
„Ballettinn var bara ekki fyrir mig.
Í hiphoppi getur maður meira ver-
ið maður sjálfur. Þá þarf maður ekki
að læra eitthvað aftur og aftur en
getur gert það sem maður vill, svo
lengi sem maður er með taktinn og
í stuði til að dansa.“
Þessa vikuna er danshátíð í
Reykjavík og af því tilefni verður
street-dans einvígi í íþróttahúsi
Seljaskóla á laugardaginn. Þetta
verður í þriðja skiptið sem Arna
Birna keppir en hún ætlar að dansa
popping en það er stíllinn sem
Brynjar Dagur heillaði þjóðina með
þegar hann sigraði í Ísland Got
Talent. Arna Birna segir popping alls
ekki bara fyrir stráka. „Það eru samt
fáar stelpur í þessu. Margar stelp-
ur vilja dansa stelpulegri dansa. Í
popping er eins og þú sért að fá raf-
stuð. Ég hef verið að dansa þennan
stíl í tvö ár og hef æft mig með hjálp
Youtube og netsins,“ segir hún og
bætir við að þótt stíllinn virki erfið-
ur sé hann það alls ekki. „Ekki þegar
þú hefur náð grunninum, þá verður
þetta einfalt.“
Aðspurð segist hún ekki ætla
að semja dans fyrir keppn-
ina um helgina. „Maður
fer bara beint í þetta. Það
er ekki hægt að búa til
rútínu því þú veist ekk-
ert við hvern þú keppir
eða hvaða lag verður
spilað undir. Þú þarft
bara að finna taktinn
og byrja. Þetta verð-
ur alvöru „battle“. n
indiana@dv.is
Arna Birna Arna
Birna hefur dansað
frá sex ára aldri.
Nýtt
stjörnupar?
Bjarni í Mínus og Saga Sig tísku-
ljósmyndari hafa sést mikið
saman upp á síðkastið og velta
menn fyrir sér hvort þau séu far-
in að rugla saman reytum. Saga
var um tíma með Ella Egilssyni
sem er í hljómsveitinni Steed
Lord og Bjarni var með Hrefnu
Óskarsdóttur sem nú er með
Magnúsi Scheving. Bjarni hefur
verið meðlimur hljómsveitarinn-
ar Mínus frá upphafi en Saga var
í University Arts London þar sem
hún lærði tískuljósmyndun.
Gleðitíðindi
fyrir Stefán Jón
Stefán Jón Hafstein, fjölmiðla-
maður og starfsmaður hjá
Þróunarsamvinnustofnun,
greindi frá því fyrir nokkrum
dögum á Facebook að nærri átta
þúsund evrur hefðu safnast á
Karolina Fund til að kosta útgáfu
ljósmyndabókar hans um Afríku.
Stefán Jón þakkaði fyrir stuðn-
inginn á Facebook en bók hans
var að koma út.
Færst hefur í aukana að höf-
undar reyni að fjármagna bækur
sínar í gegnum Karolina Fund en
ekki er víst að öllum takist eins
vel upp og Stefáni Jóni. Fjár-
mögnunarleiðin virðist geta ver-
ið stórsniðug, líklega sérstaklega
fyrir unga höfunda sem eru að
koma sér á framfæri.