Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2009, Síða 58
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 85. árg. 200954
með að þiggja aðstoð frá fjölskyldu og vinum heldur en
félagslega kerfinu (Feldman o.fl., 2003). Okkur viðmælendum
nægði þó ekki eingöngu að hafa samband við fjölskyldu því
félagsskapur utan hennar, þar sem fólk kom saman á öðrum
forsendum, var einnig talinn nauðsynlegur.
Leita sér aðstoðar og upplýsinga en taka eigin ákvarðanir
Allir þátttakendur voru sammála um gildi þess að leita sér
aðstoðar til að viðhalda heilsunni. Lögð var áhersla á traust,
að geta treyst sínum lækni. Væri það ekki fyrir hendi leituðu
þátttakendur annað. Hugsanlega gildir það sama um fleiri
heilbrigðisstéttir. Ráðleggingar, sem læknar gáfu, voru teknar
alvarlega og þátttakendur lögðu sig fram um að fara eftir þeim.
Átti það við um ráðleggingar varðandi meðferð við sjúkdómum
og fyrirbyggingu þeirra, svo sem lyf, hreyfingu og mataræði.
Hliðstæðar niðurstöður komu fram í finnskri rannsókn sem
byggðist á stöðluðum viðtölum og voru þátttakendur á
aldrinum 6584 ára (Hirvensalo o.fl., 2003). Athyglisvert er hvað
þátttakendur voru sjálfstæðir og tilbúnir að leggja sitt eigið mat
á hvað skipti máli fyrir heilsuna. Þeir lýstu því hvernig þeir tóku
eigin ákvarðanir um forvarnir og eflingu heilsunnar. Þessar
ákvarðanir voru byggðar á upplýsingum sem þeir öfluðu sér,
meðal annars úr blöðum og því sem var í umræðunni á hverjum
tíma. Forsenda ákvarðanatöku var að hafa eitthvað til að
byggja á, eins og t.d. kom fram hjá einni konunni sem lét mæla
beinþéttni reglulega eftir að hún frétti af þeim möguleika. Það
er því greinilegt að gott aðgengi að fræðslu og upplýsingum
er mikilvægt fyrir aldraða og að heilsuefling eins og Nutbeam
(2001) skilgreinir hana hefur gildi fyrir þennan hóp.
Notagildi
Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk
að þekkja hvaða þættir geta haft áhrif á heilbrigði aldraðra þar
sem það getur auðveldað greiningu á þörfum þeirra. Þrátt fyrir
lítið úrtak og aðrar takmarkanir rannsóknarinnar mætti smíða
matskvarða sem byggist á þeim þáttum sem hafa áhrif á
viðhald og eflingu heilsu á efri árum (sjá töflu 3). Þennan kvarða
mætti síðan nota við ýmsar aðstæður, eins og í heilsueflandi
heimsóknum, þegar verið er að undirbúa útskrift einstaklings
af sjúkrahúsi og þegar aldraðir leita til heilsugæslunnar. Þannig
væri hægt að átta sig á styrk einstaklinganna og erfiðleikum
sem þeir standa frammi fyrir. Ef einstaklingarnir myndu sjálfir
merkja inn á kvarðann væri búið að skapa umræðugrundvöll
og þannig væri hægt að fá betri sýn á aðstæður þeirra.
Fram kemur að aldraðir sækist eftir fræðslu og upplýsingum.
Hægt væri að birta fræðslugreinar markvisst, til dæmis
í dagblöðum og Félagsriti Landssambands eldri borgara,
Listinni að lifa, þar sem fram kæmi einnig hvar leita mætti
frekari upplýsinga. Í niðurstöðunum má finna ýmis atriði sem
þátttakendur telja að hafi mikið gildi til að viðhalda góðri heilsu,
þessi atriði hafa verið tekin saman í töflu 4. Á þau má líta sem
heilbrigðishvatningu frá öldruðum til aldraðra og mætti dreifa
þeim til þessa aldurshóps. Fyrir starfsfólk í öldrunarþjónustu
geta þessi atriði verið til áminningar um hversu margir þættir
hafa áhrif á heilsu aldraðra.
Tafla 4. Heilbrigðishvatning frá öldruðum til aldraðra.
Hvatning 1 Eigin vilji skiptir sköpum. Gefstu ekki upp, gerðu það
sem getan leyfir og ekki gera veður út af smámunum.
Hvatning 2 Leitaðu þér aðstoðar til að viðhalda heilsunni og finndu
eigin ráð til að líða vel.
Hvatning 3 Hreyfðu þig, það er mikilvægt fyrir líkama og sál.
Njóttu útiveru og þess sem náttúran hefur upp á að
bjóða.
Hvatning 4 Leggðu rækt við sjálfa(n) þig. Finndu gleðina í lífinu og
láttu þér ekki leiðast.
Hvatning 5 Vertu sátt(ur) við sjálfa(n) þig og lífið, hugaðu að útlitinu
og lifðu lífinu.
Hvatning 6 Njóttu augnabliksins. Horfðu á björtu hliðarnar
og athugaðu að breytingar í lífinu geta skapað ný
tækifæri.
Hvatning 7 Taktu þátt í lífinu, ekki loka þig af því félagsskapur
er nauðsynlegur. Hafðu frumkvæði, ekki bíða eftir að
einhver komi.
Hvatning 8 Fylgstu með því sem er að gerast í samfélaginu.
Farðu út á meðal fólks og hafðu gott samband við
fjölskylduna en vertu út af fyrir þig þegar þér hentar.
Hvatning 9 Hafðu eitthvað fyrir stafni og eigðu þér áhugamál
en ekki ætla þér um of, mundu að hvíld er líka
nauðsynleg.
Hvatning 10 Fylgdu tímanum og hugsaðu ekki um aldur.
LOKAORÐ
Stefnt er að því að aldraðir geti búið sem lengst á eigin heimili
og er heilsuefling ein af þeim leiðum sem talin er geta aukið
möguleika á því. Íslenskar rannsóknir á reynslu aldraðra af
heilbrigði eru takmarkaðar en til að geta skipulagt heilsueflingu
er mikilvægt að þekkja reynsluheim þeirra og hvað hefur
dugað þeim vel til að viðhalda og efla heilsu sína. Þrátt fyrir
lítið úrtak og aðrar takmarkanir rannsóknarinnar teljum við að
hún gefi vísbendingar um aldraða Íslendinga sem búa á eigin
heimili.Þessar vísbendingar geta nýst sem mikilvægur hlekkur í
keðjunni sem þarf til að bæta lífi við efri árin og virka sem hvati
til frekari sóknar í rannsóknum á þessu sviði.
Þakkir
Bestu þakkir til þeirra einstaklinga, sem þátt tóku í rannsókninni,
fyrir að gefa sér tíma til þess og vilja deila reynslu sinni. Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga eru einnig færðar þakkir fyrir að styrkja
rannsóknina.
Heimildir:
Arcury, T.A., Quandt, S.A., og Bell, R.A. (2001). Staying healthy: The
salience and meaning of health maintenance behaviors among rural older
adults in North Carolina. Social Science and Medicine, 53, 15411556.
Barak, Y. (2006). The immune system and happiness. Autoimmunity
Reviews, 5, 523527.
Belza, B., Walwick, J., ShiuThornton, S., Schwarts, S., Taylor, M., og
Logerfo, J. (2004). Older adult perspectives on physical activity and exer
cise: Voices fram multiple cultures. Preventive Chronic Disease Public
Health Research, Practice and Policy, 1 (4), 112.